04.02.1987
Neðri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2753 í B-deild Alþingistíðinda. (2594)
318. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 54/1986, um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins. Þetta er á þskj. 560. Frv. þetta er samið til að sníða af nokkra vankanta sem komið hafa í ljós á lögunum við framkvæmdina, einkum varðandi lánsrétt, þó þannig að ekki verði vikið frá þeirri stefnu sem samningsaðilar og stjórnvöld urðu ásátt um á s.l. vori. Þau atriði sem einkum þótti ástæða til að taka til endurskoðunar lúta að rétti fólks sem ekki er reglubundnir þátttakendur á vinnumarkaði og rétti námsmanna og þeirra sem stunda endurmenntun eða annað nám. Einnig voru stærðarreglur laganna teknar til endurskoðunar. Auk þess er lagt til að sett verði í lögin heimild til lánveitinga, t.d. til félagasamtaka eða sveitarfélaga, vegna kaupa á notuðu húsnæði fyrir viðurkenndar stofnanir, öryrkja eða fatlaða eða vegna íbúða fyrir öryrkja og fatlaða. Ofangreind atriði voru send húsnæðisnefnd aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar til umsagnar. Í umsögn nefndarinnar kom fram að ef óhjákvæmilegt er talið að flytja nú frv. til breytinga á lögunum þrátt fyrir litla reynslu af framkvæmd þeirra legði nefndin áherslu á að reynt yrði að hafa tillögurnar eins fáar og unnt er og leitast verði við að forðast breytingar á lögunum ef talið er fært að styðjast við reglugerðarákvæði eða jafnvel gildandi lagaákvæði. Með þessum fyrirvara lagði nefndin fram tillögur sínar um þau atriði sem nefnd eru hér að framan í þessu frv. og er frv. í aðalatriðum í samræmi við álit þessarar sérstöku nefndar.
Komið hefur í ljós að nokkuð er um það að fólk vinni ekki reglubundið á vinnumarkaði og getur því átt það á hættu að missa lánsrétt sinn af þeim sökum. Til þess að koma í veg fyrir að tímabundið brotthvarf af vinnumarkaði valdi missi lánsréttar er lagt til að skilyrði laganna um aðild að lífeyrissjóði undanfarin tvö ár verði rýmkað að nokkru án þess þó að slakað verði á þeirri hvatningu, sem nú er í lögunum, að menn greiði iðgjald í lífeyrissjóð af launum sínum. Hins vegar er þegar fyrir í lögum sérákvæði um þá sem stunda árstíðabundin störf. Hvað sumarleyfi varðar á fólk ekki að missa rétt meðan á því stendur og vegna reglna um greiðslu lífeyrissjóðsiðgjalds af orlofi.
Um þá sem gera hlé á störfum um skeið, t.d. hálft til eitt ár vegna endurmenntunar eða annars náms, má segja að ósanngjarnt geti verið að þeir missi rétt sinn til lána hafi þeir áður verið reglubundnir greiðendur í lífeyrissjóði. Því er lagt til að sett verði sérstakt undantekningarákvæði um slík tilvik.
Hvað varðar námsmenn sem eiga rétt á láni hjá Lánasjóði ísl. námsmanna á þeim nú að vera ljós réttur þeirra til aðildar að Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda, sbr. 3. gr. laga nr. 72/1982. Í þessu sambandi skal tekið fram að gengið hefur verið frá samkomulagi milli söfnunarsjóðsins og Lánasjóðs ísl. námsmanna um að greitt verði í söfnunarsjóðinn fyrir námsmenn frá og með 1. sept. 1986. Við greiðslu í sjóðinn öðlast námsmenn að hluta til níu mánaða lífeyrisrétt og að hluta til tólf mánaða lífeyrisrétt. Ástæðan er sú að ef námsmaður lýkur námi í maí eða júní fær hann níu mánaða lífeyrisrétt. Ef hann kemur aftur til náms að hausti er honum reiknaður tólf mánaða réttur. Þetta þýðir að komi námsmaður aftur til náms að hausti reiknast námsleyfið inn í lífeyrisgreiðslutímabilið. Framtíðarréttur námsmanna á því að vera tryggður innan ramma núgildandi laga og því er ekki ástæða til að kveða sérstaklega á um það atriði.
Hins vegar er talin ástæða til að setja sérákvæði vegna vanda námsmanna næstu 1-2 árin þar sem þeir hafi ekki haft tækifæri til að búa sig undir breytinguna sem fólst í lögunum. Því er gert ráð fyrir ákvæði til bráðabirgða í frv. þessu þar sem gert er ráð fyrir heimild til að undanþiggja námsmenn sem sækja um lán á árunum 1986-1987 skilyrðum um greiðslu iðgjalda til lífeyrissjóðs samanlagt 20 mánuði á undanförnum 24 mánuðum.
Herra forseti. Ég tel að um þetta mál ætti að geta náðst samkomulag. Þessar breytingar koma skýrt fram í athugasemdum við einstakar greinar frv. Í 1. gr. eru tvær efnisbreytingar. Annars vegar sú að í stað skilyrðisins um greiðslu iðgjalda til lífeyrissjóðs tvö undanfarandi ár sé nægjanlegt að hafa greitt iðgjald í 20 mánuði á undanförnum 24 mánuðum. Þetta ákvæði kemur fram í frumvarpsgreinunum víða.
Samkvæmt gildandi lögum veldur brotthvarf af vinnumarkaði á síðustu tveim árum áður en lánsumsókn er lögð fram réttindamissi. Hér er t.d. um að ræða þá sem ekki eru reglubundnir þátttakendur á vinnumarkaði, m.a. þá sem skipta um atvinnu eða taka sér stutt launalaust leyfi af ýmsum orsökum. Til að koma í veg fyrir að slíkt brotthvarf af vinnumarkaði um skamman tíma leiði til réttindamissis er hér lagt til að gerð verði breyting á skilyrði um greiðslu iðgjalda til lífeyrissjóða þannig að nægilegt sé að umsækjandi hafi greitt iðgjald til lífeyrissjóðs í 20 mánuði á undanförnum 24 mánuðum.
Eitt atriði hér, þ.e. í 2. gr., er um stærðarútreikninga. Eins og er í lögunum frá því á s.l. ári var viðmiðunin við 170 fermetra. Það er lagt til að stærðarútreikningur verði gerður samkvæmt staðli IST-50, stærðarmörk verði færð í 180 fermetra, enda sé það sambærilegt við núgildandi 170 fermetra sé miðað við staðalinn. En eins og kunnugt er var staðall IST-50 staðfestur af Iðntæknistofnun og tók gildi 1. des. 1986. Þessi viðmiðun við þennan staðal mun einfalda mjög framkvæmd laganna með tölvutengingu við fasteignamatsskrá þar sem staðli verður beitt.
Í 3. gr. er breyting. Það er gerð tillaga um eina efnisbreytingu raunar, þá að heimilt verði að veita lán til kaupa á notuðum íbúðum vegna stofnana eða íbúða fatlaðra eða öryrkja. Breytingin er viðbót við 5. gr. laga nr. 54/1986. Hér er um sanngirnismál að ræða sem getur komið þessum samtökum að notum, en skilyrðið er að viðkomandi félagasamtök hafi hlotið starfsleyfi viðkomandi ráðuneytis.
Ég vil aðeins nefna eitt atriði sem hefur verið mjög til umræðu í sambandi við framkvæmd þessara laga sem er í raun og veru á byrjunarstigi. Eins og allir vita er verið að ganga frá svörum og staðfestingum í sambandi við lánsréttinn og kemur ýmislegt í ljós sem eðlilegt er við svo mikla breytingu sem þarna er um að ræða. Þess vegna var það eðlilegt sjónarmið hjá húsnæðisnefndinni og aðilum vinnumarkaðarins að hrófla ekki við miklu í sambandi við þessi lög á fyrsta ári nema því sem væri óhjákvæmilegt til að við framkvæmd þeirra væri hægt að taka til greina ákveðin atriði sem varða miklu fyrir marga einstaklinga.
En það sem ég vil nefna hér og hefur valdið miklum vandkvæðum í sambandi við framkvæmd þessara laga er sú meginregla laganna að miða við einstaklingana og lánsþörf þeirra en ekki þegar um er að ræða hjón. Þetta virðist ætla að koma mjög harkalega niður, þannig að ef annað hjónanna, annaðhvort eiginmaður eða eiginkona, hefur ekki fullan lánsrétt dregur það lánsréttinn niður. Í raun og veru má því segja að það sé brotinn réttur á þeim aðila í sambúð sem hefur fullan lánsrétt þar sem hann verður að þola skerðingu vegna hins aðilans. Þetta vildi húsnæðisnefnd aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar ekki fallast á að leiðrétta nú og heldur ekki Húsnæðisstofnun, vildu sjá hvernig þetta kæmi út úr heildardæminu. En ég vek athygli á að þetta er mjög umdeilt atriði. Þó að nokkur leiðrétting felist í breytingum sem hér eru lagðar til verður þessi mismunun til staðar hjá allmörgum. Ég teldi eðlilegt að nefndir þingsins athuguðu það nánar hvort hægt væri að ganga lengra í þessari breytingu en hér er lagt til.
Ég treysti því að hv. alþm. greiði fyrir því að þessar leiðréttingar nái fram að ganga. Þær eru allar þess eðlis að þær greiða fyrir framkvæmd þeirra nýju laga sem sett voru á s.l. ári og bæta mjög úr ýmsum agnúum sem komið hafa fram í sambandi við meðferð málsins.
Ég vil svo, herra forseti, að lokinni þessari umræðu leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. félmn.