04.02.1987
Neðri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2756 í B-deild Alþingistíðinda. (2595)

318. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Í því frv. sem hér er til umræðu er tekið á nokkrum ágöllum sem í ljós hafa komið við framkvæmd nýju húsnæðislöggjafarinnar og er það vissulega til bóta að á þessum málum sé tekið. Ég vil, með leyfi forseta, vitna í það sem fram kemur í athugasemdum við þetta lagafrv., en þar segir að nefndin leggi áherslu á að reynt verði að hafa tillögurnar eins fáar og unnt er og leitast verði við að forðast breytingar á lögunum ef talið er fært að styðjast við reglugerðarákvæði eða jafnvel gildandi lagaákvæði.

Þetta er nokkuð einkennandi setning fyrir þá umræðu sem orðið hefur um húsnæðismálin allt frá því að nýju húsnæðislögin tóku gildi og raunar allt frá því að frv. um nýja húsnæðislöggjöf var lagt fram á þingi í febrúar í fyrra. Þar var einmitt niðurstaðan sú þegar Alþingi hafði það mál til meðferðar að þm. voru feimnir við að hreyfa nokkuð við því samkomulagi sem gert var af aðilum vinnumarkaðarins og þó ýmsir alþm. hefðu ýmsar efasemdir við frv. þá varð það engu að síður að lögum. En í nál. meiri hl. félmn., sem fjallaði um húsnæðisfrv., var lögð áhersla á að milliþinganefnd sem starfaði þá í húsnæðismálum skyldi taka fyrir ýmsa veigamikla þætti í frv. sem þm. töldu ástæðu til að skoða nokkuð nánar.

Eins er það svo í áliti þeirrar milliþinganefndar sem hefur skilað af sér að þar eru ekki lagðar til neinar breytingar á þeirri húsnæðislöggjöf sem í gildi er eða nokkur tilraun gerð til þess að endurmeta þær forsendur sem lágu að baki nýju húsnæðislöggjöfinni. Spyrja má af hverju ekki má taka meira á þessu máli og ræða hér betur þær forsendur sem menn gáfu sér í upphafi þegar þetta frv. að nýrri húsnæðislöggjöf var samþykkt. Það má spyrja yfirleitt í þessu efni að því er varðar húsnæðismálin hvort það nægi yfirleitt ekki að fá bara stimpil hjá aðilum vinnumarkaðarins, hjá Vinnuveitendasambandi Íslands og ASÍ þegar breyta þarf einhverju í sambandi við húsnæðismál, hvort það sé ekki orðinn óþarfi að koma með þessi mál inn á Alþingi vegna þess að það er yfirleitt viðkvæðið að engu megi breyta og engu megi hreyfa.

Herra forseti. Ég tel það brýnt að hér á Alþingi fari fram nokkur umræða um húsnæðismálin og þá reynslu sem fengin er af framkvæmd nýju húsnæðislöggjafarinnar. Þó að ég kynni að eiga það á hættu að ýmsir segi að ég sé með einhverjar úrtölur í þessu efni eða svartagallsraus þá tel ég nauðsynlegt, og skyldu mína reyndar, að koma ýmsu hér á framfæri að því er varðar húsnæðismálin sem skiptir veigamiklu máli fyrir það fólk sem treyst hefur mikið á þessa nýju húsnæðislöggjöf, en í henni fólust ýmis fyrirheit til húsbyggjenda og íbúðakaupenda.

Þegar nýja húsnæðislöggjöfin var til umræðu á síðasta þingi skilaði ég séráliti. Snerti það einkum fjármögnunarþátt frv. og forsendur þess sem ég taldi í mikilli óvissu. Ég tel að þær viðvaranir sem ég setti fram þá hafi átt við full rök að styðjast og það hafi komið í ljós á þeim mánuðum sem húsnæðislöggjöfin hefur verið í gildi. Ég tel raunar að forsendur séu brostnar í veigamiklum atriðum sem húsnæðislöggjöfin byggist á. Í fyrsta lagi varðandi útlánaþörf, í annan stað varðandi fjármögnun húsnæðiskerfisins, sem er stórlega vanáætluð og stendur nánast á brauðfótum, og í þriðja lagi hefur sú framkvæmd sem lögin byggja á Ieitt til stórfelldra hækkana á verði fasteigna á fasteignamarkaðnum.

Ég vil, og tel nauðsynlegt, herra forseti, við umræðu um þetta frv. að gera nokkru nánar grein fyrir því, því ég tel nauðsynlegt að Alþingi taki á þessu máli og að nefndin sem fær frv. þetta til meðferðar kanni einnig þennan þátt mála sem er auðvitað undirstaða þess að hægt sé að framkvæma húsnæðislöggjöfina og standa við gefin fyrirheit.

Það sem blasir við er í fyrsta lagi þetta: Frá því í ágúst s.l. og fram í janúarmánuð, eða á 5-6 mánaða tímabili, hefur verðhækkun á fasteignum orðið um 30%. Þetta jafngildir um 60% verðbólgu á fasteignamarkaðnum á ári. Hækkun í fyrstu viku september hér á Reykjavíkursvæðinu var um 15% og áætla má að meðaltalshækkun hafi orðið 30% á 5-6 mánaða tímabili. Hvað segir þetta fyrir íbúðakaupendur og húsbyggjendur? Ég get tekið dæmi. Þriggja herbergja íbúð, sem kostaði 2,2 millj. í ágúst s.l., kostar nú 2,8-2,9 millj. kr. M.ö.o. þriðjungur, eða 600-700 þús. kr. af láni þeirra sem eru í forgangshópi og kaupa sér notaða íbúð hefur étist upp í verðhækkunum. Að auki hefur útborgunarhlutfallið hækkað úr 71% í nálægt 74-75% á þessu tímabili sem þýðir að útborgun sem reiða þarf fram er um 100 þús. kr. hærri en hún var í ágústmánuði. Þriðjungur af láninu hefur sem sagt étist upp í verðhækkunum og 100 þús. kr. meira þarf að reiða fram fyrir þriggja herbergja íbúð í útborgun.

En hver er skýringin á þessari verðhækkun? Jú, að hluta til getur hún verið sú að það er reynslan að þegar lán hækka í húsnæðiskerfinu þá fylgir þeirri hækkun nokkur hækkun á fasteignaverði. En þetta er þó ekki aðalskýringin. Meginskýringin snýr raunverulega að framkvæmd laganna og ákvæðum laganna. Meginskýringuna má rekja til tveggja samtengdra þátta, þ.e. stýringarinnar á fjármagninu. Ákvæði laganna gera ráð fyrir að þeir sem eru að kaupa og byggja í fyrsta skipti hafi forgang, aðrir verði að bíða. Og hvað þýðir þetta? Þeir sem eiga íbúðir fyrir og vilja stækka við sig, kannske þriggja herbergja íbúð, þeir geta ekki selt sínar íbúðir vegna þess að þeir þurfa að bíða svo lengi eftir lánum en það eru einmitt þær íbúðir sem forgangshóparnir vilja kaupa. Þetta þýðir m.ö.o. að það er svo mikill samdráttur á fasteignamarkaðnum í þessum íbúðum, þriggja og fjögurra herbergja íbúðum, af því að þeir sem eiga þær fyrir geta ekki selt, að það spennir upp verðið. Af því að ekki hefur verið sett nægjanlegt fjármagn inn í kerfið miðað við ákvæði frv. þá hefur þetta það í för með sér.

Máli mínu til stuðnings, herra forseti, vil ég vitna í bréf Félags fasteignasala, dagsett 1. des. s.l., sem sent var stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins og einnig fjmrh. og félmrh. Þar kemur það fram að augljóst sé að þeir sem frv. og grg. sömdu og lögðu forsendurnar hafi verið í afar litlum tengslum ef nokkrum við fasteignamarkaðinn. Síðar segir að miðað við ríkjandi greiðslukjör á fasteignamarkaði sé ekkert sem bendi til þess að árlegt framboð á notuðum íbúðum næstu tvö árin komist nálægt því að vera 2000 íbúðir á meðan þeir sem eiga þessar sömu 2000 íbúðir standa frammi fyrir því að þurfa að bíða í allt að tvö ár. Í þriðja lagi kemur fram í þessu bréfi fasteignasala að söluverð á notuðum íbúðum muni stórhækka, verða óeðlilega hátt í hlutfalli við nýbyggingar vegna óeðlilega mikillar eftirspurnar og lítils framboðs. Síðan segir: „Niðurstaða alls þessa verður sú að úthlutunarmáti lánanna kemur til með að valda stóraukinni þenslu og verðbólgu á byggingar- og fasteignamarkaði en mun ekki draga úr eða koma í veg fyrir þenslu og verðbólgu.“

Síðar í bréfinu segir, með leyfi forseta:

„Það kann því að reynast banabiti hins nýja húsnæðislánakerfis ef því verður haldið til streitu að láta þá sem eiga íbúð fyrir, seljendur, bíða tvöfaldan þann tíma eftir úthlutun lána sem þeir sem eru að kaupa í fyrsta sinn þurfa að bíða. Í fljótu bragði séð virðist eina lausnin á þessu vera aukið lánsfjárframboð um a.m.k. 1000-1500 millj. næstu tvö árin í það minnsta. Verði ekkert að gert strax á árinu 1987 er fyrirsjáanlegt að hið annars ágæta nýja húsnæðislánakerfi mun valda stóraukinni þenslu og verðbólgu sem mun hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér fyrir efnahagslíf þjóðarinnar.“

Í lokin segir hér í bréfi Félags fasteignasala: „Stjórn Félags fasteignasala álítur að hér sé um slíkt stórmál að ræða að það væri ábyrgðarhluti að vekja ekki athygli á því.“

Nú spyr ég félmrh., sem hefur fengið sent afrit af þessu bréfi ásamt hæstv. fjmrh.: Ætlar hann að hafa að engu viðvaranir þær sem koma fram í þessu bréfi Félags fasteignasala? Ég tel að þær viðvaranir sem hér koma fram séu þess eðlis að það eigi ekki að láta þær sem vind um eyru þjóta, þær eigi að skoðast gaumgæfilega og að hæstv. félmrh. beri skylda til þess að gera Alþingi nánari grein fyrir stöðu mála í ljósi þeirra upplýsinga sem hér hafa komið fram.

Auk þeirra verðhækkana sem ég hef hér greint frá má einnig skoða málið í öðru ljósi. 30% hækkun á fasteignamarkaði jafngildir því að árleg velta fasteignamarkaðarins hafi aukist um 2,5-3 milljarða kr. á hálfu ári vegna þessara verðhækkana. Af þessari fjárhæð þurfa kaupendur að leggja fram sjálfir um 800 millj. kr. Stefán Ingólfsson verkfræðingur, sem starfaði hjá Fasteignamati ríkisins, hefur haldið því fram, og það kom fram við umræður þegar húsnæðisfrumvarpið var til afgreiðslu á síðasta þingi, að mesta nettóaukning á lánsfé sem nýju lögin hafi í för með sér séu 4% af veltu fasteignamarkaðarins eða um 400-500 millj. kr. Þetta byggist m.a. á því að lífeyrissjóðslán til íbúðakaupa sem áður gekk beint til sjóðfélaga gengur nú að mestu í hið nýja húsnæðislánakerfi. Í reynd sé því ekki um mikla aukningu að ræða á lánsfé, t.d. ef hjón fengu áður bæði lífeyrissjóðslán og G-lán, þó vissulega séu greiðslukjörin hagstæðari. Því spyr maður nú: Hefur nettóaukning fjármagns á fasteignamarkaðinum með tilkomu nýju laganna étist upp og meira en það vegna þeirra miklu verðhækkana sem ég hér lýsti?

Niðurstaðan er sem sagt sú að 30% hækkun á verði fasteigna á 5-6 mánaða tímabili þýðir 60% verðbólgu á fasteignamarkaðinum á ári og afleiðingarnar fyrir kaupendur eru að þriðjungur af láni forgangshópa hefur horfið í verðhækkanir.

Ég tel nauðsynlegt, herra forseti, að líta líka á þetta mál út frá öðrum sjónarhóli og það er varðandi biðtíma lántakenda og fjölda lánsumsókna sem liggja fyrir og forsendur um útlána- og fjármögnunarþátt laganna.

Milliþinganefnd sem starfaði í húsnæðismálum hafði greinilega af því nokkrar áhyggjur að því er fjármögnunarþáttinn varðar en þar segir, með leyfi forseta:

„Þegar hins vegar er litið á breytingarnar í heild og reynt að meta samanlögð áhrif þeirra fyrir húsnæðiskaupendur og samfélagið í bráð og lengd vakna ýmsar efasemdir um ágæti þeirra og þess húsnæðislánakerfis sem nú er við lýði. Kerfið er orðið óhemju stórt og dýrt. Ef starfrækja á kerfið eins og til er ætlast í lögum þarf ríkissjóður árlega í fyrirsjáanlegri framtíð að verja til þess stærri hluta af tekjum sínum en nú er gert og stærri en hann hefur nokkru sinni áður gert. I ár nemur framlag ríkissjóðs til byggingarsjóðanna samtals 1300 millj. kr. sem samsvarar fjórðungi þess sem ríkissjóður fær í formi tekjuskatts. Með hliðsjón af því að þessi háa fjárhæð þarf að verða enn stærri í framtíðinni og í ljósi þeirrar erfiðu fjárhagsstöðu sem ríkissjóður á við að etja er ekki hægt að tala um að horfur kerfisins séu bjartar.“

Það er því greinilegt, þó að milliþinganefndin hafi ekki tekið á þessu máli að því er varðar fjármögnunarþáttinn, að hún hefur haft af þessu verulegar áhyggjur þó ekki séu lagðar fram tillögur til úrbóta.

Forsendur ráðstöfunarfjár og útlána byggðust í frv. á síðasta ári á eftirfarandi: Eðlileg eftirspurn eftir notuðum íbúðum næmi 2000 íbúðum á ári en fyrstu tvö árin bættust við 200 íbúðir, þar af 1100 til þeirra sem ekki eiga íbúðir fyrir. Eðlileg eftirspurn eftir nýbyggingarláni væri 1400 íbúðir á ári, fyrstu tvö árin 200 til viðbótar eða 1600, þar af um 800 sem njóta forgangs. Forsendur um útlán fyrstu tvö árin voru því 2200 vegna notaðra íbúða og 1600 vegna nýbygginga.

En hverjar eru staðreyndirnar, hvað liggur fyrir af umsóknum?

1. sept. til 31. des. eða á fjórum mánuðum liggja fyrir 4000 umsóknir. Vegna eldri íbúða 3216 og vegna nýbygginga 850 umsóknir. Fjármagn til ráðstöfunar 1987 að því er varðar Byggingarsjóð ríkisins er 4,3 milljarðar og meðallán til nýbygginga og eldri íbúða er áætlað um 1500 þús. kr. Þetta þýðir að til að mæta á þessu ári lánsfjárþörf vegna umsókna sem bárust fyrir áramót þarf rúmlega 6 milljarða kr. Mismunurinn á því sem er til ráðstöfunar og þess sem raunverulega þarf er því 1700 millj. kr. og er það ekki fjarri þeirri upphæð sem Félag fasteignasala benti á í sínu bréfi. En þessum mismun, 1700 millj. kr., sem þarf til þess að fullnægja lánsumsóknum sem bárust fyrir áramót, er nú mætt með því að lengja biðtímann. Biðtími nú vegna desemberumsókna er að meðaltali um 15 mánuðir. Það þýðir að þeir forgangshópar sem lögðu fram sína umsókn í des. fá fyrsta hlutann ekki fyrr en í nóv. 1987 og annan hlutann í maí 1988. Aðrir, sem lögðu fram sína umsókn í desember, fá fyrsta hlutann ekki á þessu ári heldur á næsta ári eða í febrúar 1988 og annan hlutann í ágúst 1988. Fjármagn þessa árs nægir m.ö.o. eingöngu til að mæta lánsumsóknum sem bárust í mánuðunum sept., okt. og nóv. á s.l. ári. Desemberumsóknirnar verða að mestu að bíða fram til ársins 1988.

Ég tel að þetta sé mjög alvarleg staða að því er húsnæðismálin varðar vegna þess að fjöldi fólks, íbúðakaupenda og húsbyggjenda, hefur treyst á að fá lánin miklu fyrr en raun er á orðin. Þetta fólk hefur ráðist í það að festa sér kaup á íbúð, tekið til þess skammtímalán í bankakerfinu og hefur treyst á það að geta notað fjármagn úr húsnæðiskerfinu til þess að greiða niður skammtímalán sem það hefur tekið. Ég tel því að ástandið í þessum málum sé mun alvarlegra en menn vilja vera láta.

Það er ekki nóg með það að umsóknir sem bárust fyrir áramót séu um 4000 talsins heldur eru umsóknir sem bárust í janúar 500-600, sem þýðir 18 umsóknir á hverjum degi á móti því að þær voru fyrstu fjóra mánuðina 33 á hverjum degi. Ég tel það mjög varlega áætlað að gera ráð fyrir að á þessu ári berist um 4500 umsóknir eða um 12 umsóknir á dag. Þá hef ég til viðmiðunar, þegar ég geri þessa varlegu áætlun, 12 umsóknir á dag, að þær voru 33 sem bárust á síðustu fjórum mánuðum síðasta árs og 18 í janúarmánuði, þannig að ég tel að hér sé um mjög varlega áætlun að ræða. Af fjármagni næsta árs, 1988, hefur þegar verið ráðstafað allt að 1700 millj. kr. til að fullnægja fjárþörf vegna umsókna sem lagðar voru fram fyrir áramótin. Á verðlagi í janúar 1987 þarf því 6,7 milljarða kr. til að standa undir fjárþörf vegna þessara 4500 umsókna. Þetta þýðir að þó að gert sé ráð fyrir um 700 millj. kr. viðbótarfjármagni frá lífeyrissjóðunum á næsta ári, eins og forsendur nýju laganna byggja á, þá verður aðeins hægt að veita 2600 umsækjendum lán á árinu 1988 af 4500 umsækjendum sem áætla má varlega að sæki um á þessu ári. Verði ekki um verulega aukningu á ríkisframlagi að ræða verður meðalbiðtími því nú í árslok orðinn hátt í tvö ár eða um 22 mánuðir. Biðtími forgangshópa stefnir því í að verða 19 mánuðir og annarra 25-26 mánuðir.

Verði ekkert að gert og ríkissjóður láti ekki meira fjármagn af hendi í húsnæðislánakerfið, þá mun biðtíminn lengjast enn frá því sem ég gerði grein fyrir, frá því að verða hátt í tvö ár nú um næstu áramót.

Ég spyr hæstv. félmrh.: Var félmrh. kunnugt um að forsendur frv. stæðust ekki þegar frv. var lagt fram á þingi? Hafði hann undir höndum upplýsingar sem sýndu fram á að þær áætlanir sem voru lagðar fram og komu fram í fskj. með frv. voru vanmetnar að því er varðar til að mynda eftirspurn eftir lánum og að fjárhagslegar forsendur frv. væru langt frá því að vera raunhæfar? Ég spyr: Var hæstv. félmrh. kunnugt um það? Hafði hann upplýsingar undir höndum sem sýndu fram á að áætlanirnar sem frv. byggði á voru óraunhæfar?

Herra forseti. Ég get farið að ljúka máli mínu. Niðurstaðan sem liggur fyrir er þessi: Verðhækkanir á 5-6 mánaða tímabili eru 30%. Þriðjungur lána forgangshópa hefur horfið í verðhækkanir. Útborgunarhlutfall hefur hækkað úr 71 í nálægt 74-75%. 1,5-1,7 milljarða kr. vantar til þess að fullnægja lánsumsóknum, eingöngu sem bárust fyrir áramótin.

Í öðru lagi. Meðalbiðtími hjá þeim umsækjendum sem lögðu inn umsóknir í des. s.l. eru um 15 mánuðir. Í lok þessa árs má búast við að hann verði hátt í tvö ár. Til þess að biðtími lengist ekki frá því sem hann var í des. s.l., eða 15 mánuðir, þarf á næsta ári um 8 milljarða kr. í húsnæðiskerfið, þ.e. framlag í húsnæðiskerfið þarf að tvöfaldast frá því sem nú er.

Í þriðja lagi. Það hefur þegar verið ráðstafað 1,7 milljörðum kr. af fjármagni næsta árs, ársins 1988, til að standa undir fjárþörf umsókna sem bárust fyrir árslok 1986.

Ég tel alveg einsýnt, herra forseti, að í þessu máli, húsnæðismálunum, er verið að reyna að velta vandanum á undan sér, velta vandanum yfir á næstu ríkisstjórn, eins og þessi ríkisstjórn hefur hvað eftir annað sýnt að hún ætlar að gera. Er þá skemmst að minnast fjárlagahallans við afgreiðslu fjárlaga, þar er öllum vandanum velt yfir á framtíðina, yfir á næstu ríkisstjórn.

Ég spyr: Af hverju má ekki ræða þessi mál? Ég tel að hægt sé að byggja á þeim forsendum sem nú liggja fyrir og ég óska eftir því að hæstv. félmrh. geri Alþingi ítarlega grein fyrir stöðu þeirra mála sem ég hef hér rætt og að nefndin, sem fær þetta frv. til umfjöllunar, hafi tækifæri til þess að skoða þetta mál og meta allar forsendur upp á nýtt, sem ég tel alveg nauðsynlegt, vegna þess að ella erum við bara að blekkja það fólk sem treysti á nýju húsnæðislöggjöfina,íbúðakaupendur og húsbyggjendur sem voru gefin fyrirheit með nýju húsnæðislöggjöfinni.

Það frv. sem hér er til umræðu gengur allt of skammt til þess að taka á þeim ágöllum sem raunverulega eru á húsnæðislöggjöfinni. Til að mynda tel ég að það þurfi sérstaklega að skoða vanda þeirra hópa sem byggðu eða keyptu á árunum 1983, 1984 og 1985 og reyndar allt aftur til 1980. Ég spyr hæstv. félmrh. t.d. varðandi þessa hópa: Var ekki ástæða til að taka á því máli nú þegar verið er á annað borð að hreyfa við nýju húsnæðislöggjöfinni með þessu frv. hér á þingi? Í nýju húsnæðislöggjöfinni segir að fimm ár þurfi að jafnaði að líða á milli lána. Hvað þýðir þetta fyrir þá hópa sem nú eru í miklum greiðsluerfiðleikum og fengu sín lán á árunum 1983, 1984 og 1985? Ég veit að það er ákvæði í nýju húsnæðislöggjöfinni sem segir að ef fólk missir sínar eignir vegna mikilla greiðsluerfiðleika, þá megi líta svo á að það teljist í forgangshóp. En hvað með þá hópa sem hafa þurft að taka mikil lán á þessum árum, 1983, 1984 og 1985, og eignir þeirra eru að miklu leyti veðsettar þannig að þær eru mjög erfiðar í sölu til að mynda? Verða þessir hópar, sökum þessa ákvæðis um að líða þurfi fimm ár á milli lána, verða hóparnir, sem fengu lán 1983, 1984 og 1985 til að mynda, að bíða núna í tvö ár eftir því að fá fyrirgreiðslu skv. nýju húsnæðislöggjöfinni? Ef það er svo, þá er þetta stór galli á löggjöfinni, ekki síst þegar búið er að mér skilst að loka fyrir þá sérstöku fyrirgreiðslu sem þessir hópar fengu áður hjá Húsnæðisstofnun.

Þegar við ræðum um ágalla frv. getum við litið annars vegar á greiðsluerfiðleikahópinn sem byggði á árunum 1983, 1984 og 1985 til að mynda og annan hóp, sem fékk rétt samkvæmt nýju húsnæðislöggjöfinni, rétt sem hann hafði ekki áður. Þá á ég við þann hóp sem býr kannske í stórum skuldlausum íbúðum eða húsum og er að minnka við sig. Það er talið að þessi hópur geti verið um 15% af heildinni og eigi rétt á um 500 millj. kr. á ári. Dæmi þessa fólks getur litið þannig út að það á við skulum segja raðhús upp á 6 millj. kr. og það vill minnka við sig og fara í 4-5 herbergja íbúð sem kostar kannske 4 millj. Það fær reiðufé í mismun, í þessu tilfelli 2 millj. kr. í mismun á milli hússins sem það seldi og íbúðarinnar sem það kaupir. Samt á þetta fólk rétt á að fá 1200 þús. kr. lán frá Húsnæðisstofnun, ekki til þess að leggja í húsnæði, heldur hefur það þá bara í reiðufé ásamt þeim mismun sem það fær á milli kaupverðs stórrar eignar sem það hefur átt og þeirrar eignar sem það kaupir ef það er að minnka við sig.

Ég tel það fráleitt að við búum við slíka húsnæðislöggjöf, ef það er tilfellið að lokað er á þennan greiðsluerfiðleikahóp af því að hann uppfyllir ekki skilyrðið um að fimm ár líði á milli lána en hinn hópurinn getur fengið 1200 þús. kr. út úr húsnæðiskerfinu þó að fólk í þeim hóp þurfi ekkert á því að halda og fái mismun í reiðufé á milli stórrar eignar sem það á og minni eignar sem það festir kaup á. Auðvitað er þetta stór og mikill ágalli á frv. sem hefði verið nauðsynlegt að taka á.

Herra forseti. Ég skal ekki tefja tíma deildarinnar lengur að því er þetta mál varðar. Ég hefði viljað ræða líka félagslega hluta húsnæðiskerfisins sem greinilega er skilinn eftir og af áliti milliþinganefndar má ráða að ekki á að taka á. Ég vænti þess að það gefist tækifæri til þess að ræða félagslega þátt húsnæðiskerfisins ef og þegar skýrsla félmrh. um álit milliþinganefndar um húsnæðismál verður tekin til umræðu. Gefist ekki tækifæri til þess þá mun ég við 2. umr. þessa frv. taka sérstaklega fyrir, til að tefja nú ekki tíma deildarinnar, félagslega hluta húsnæðiskerfisins sem er náttúrlega stór þáttur í okkar húsnæðismálum, að hann sé ekki skilinn eftir eins og raunin hefur orðið á.

Ég vil ítreka ósk mína til hæstv. félmrh., og ég taldi nauðsynlegt að koma því á framfæri nú, að hann gefi nefnd þeirri sem fær frv. til umfjöllunar skýrslu um þá þætti sem ég hef gert að umræðuefni, þ.e. hvort hann telji ekki nauðsynlegt að endurmeta allar fjárhagslegar forsendur sem þessi lög byggja á og þá útlánaáætlun sem menn gerðu ráð fyrir í upphafi þegar lögin voru samþykkt.