04.02.1987
Neðri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2776 í B-deild Alþingistíðinda. (2600)
318. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég heyri það á ummælum hæstv. félmrh. og hv. þm. Halldórs Blöndals, sem hér talaði áðan, að þeir vilja bíða með umræðurnar um húsnæðismál almennt þar til fyrir verður tekin skýrsla milliþinganefndar um húsnæðismál og skal ég sætta mig við það og fara því ekki mikið nánar út í þessi atriði. Það var þó ljóst af því sem fram kom í máli hæstv. félmrh., að svo miklu leyti sem hann fór út í þá sálma, að forsendur þær sem frv. byggði á á sínum tíma hafa ekki staðist, þær hafa komið fram í lengri biðtíma eftir lánum vegna þess að fjármagn það sem ætlað var í húsnæðiskerfið hefur ekki dugað til. Þar sem hæstv. félmrh. fór ekki inn á einstök atriði sem ég nefndi og tel mjög mikilvægt að verði rædd hér á þingi og menn geri sér grein fyrir skal ég bíða með að ræða það frekar, eins og ég sagði.
Hv. þm. Halldór Blöndal var óvenjulega hógvær í sínum málflutningi nú þegar hann ræddi um húsnæðismálin, en það fór þó ekki hjá því að hann væri með nokkra útúrsnúninga og villandi ummæli. Hann nefndi t.a.m. að af orðum mínum mætti draga þá ályktun að ég væri ósammála aðilum vinnumarkaðarins og vitnaði þar til sérálits sem ég skilaði þegar félmn. fjallaði á s.l. ári um nýju húsnæðislöggjöfina. Auðvitað voru rök fyrir því að ég skilaði séráliti, en það var ekki þar með sagt að ég væri ósammála því samkomulagi sem þar var gert og vil ég, með leyfi forseta, vitna í nál. mitt frá þeim tíma. Þar segir, með leyfi forseta:
„Þó nokkrir ágallar séu á frv. að því er takmörkun á lánsrétti varðar sem og að fjármögnunarþáttur ríkissjóðs til að tryggja að við ákvæði frv. verði hægt að standa sé í mikilli óvissu, þá styður Alþfl. frv. og þar með það samkomulag sem gert var í nýgerðum kjarasamningum um húsnæðismál.“
Það kom sem sagt fram í þessu nál. að þau atriði sem menn greindi á um og voru ástæða þess að ég skilaði séráliti var fyrst og fremst að því er varðar fjármögnunarþátt frv. og forsendur þær sem útlánaáætlun og fjárþörf byggðist þá á og einnig vegna þess að félagslegi hluti húsnæðiskerfisins var að mínu mati skilinn eftir.
Ég tel að það sem hafi gerst síðan staðfesti það að þau rök sem ég hafði fyrir sérnefndaráliti voru rétt. Ég minni á að það var lögð fyrir Alþingi fyrir stuttu skýrsla um þörf á leiguhúsnæði á landinu öllu þar sem fram kom mikil þörf fyrir leiguhúsnæði á landinu á næstu tveim til fimm árum, talað var þar um 2000-3000 félagslegar íbúðir sem þyrfti að byggja. Ég vitna líka til þess að það kemur fram í þessu nál. milliþinganefndar, þó ég skuli ekki gera það mikið að umtalsefni, að eftirspurn er langt umfram það fjármagn sem Byggingarsjóður verkamanna hefur til ráðstöfunar. Þar kemur einnig fram að framkvæmdastjóri Sambands ísl. sveitarfélaga hefur á fundum með nefndinni og með bréfi til hennar bent á að það fólk sem verst er statt í þjóðfélaginu getur ekki risið undir vöxtum og afborgunum af lánum til kaupa á íbúð í verkamannabústað. Að því er varðar félagslega kerfið, og gæti ég auðvitað haft um það mörg orð, tel ég að það standi sem ég hef haldið fram, að það vantar mikið á félagslega hluta húsnæðiskerfisins og það sé hægt að koma til móts við þá hópa sem þurfa á félagslegum íbúðabyggingum að halda.
Að því er varðar fjármögnunarþátt frv. hef ég gert grein fyrir því í máli mínu hér áðan og skal ekki endurtaka það. Það hefur sýnt sig að töluvert mikið fjármagn vantar inn í húsnæðiskerfið á þessu ári til þess að hægt sé að standa við umsóknir og veita til þess það fjármagn sem þarf, þ.e. þær umsóknir eingöngu sem lagðar voru fram fyrir áramótin. Ég tel mig hafa sýnt fram á að áhrifin af nýju húsnæðislöggjöfinni hér á höfuðborgarsvæðinu hafi orðið óeðlilega mikil, að mínu mati, verðhækkun á íbúðum þegar það liggur fyrir að hún er um 30% á fimm til sex mánaða tímabil.
En vegna þess að ég heyrði það á málflutningi hæstv. félmrh. að hann óskar eftir að bíða með umræður almennt um húsnæðismál og vill ekki fara út í að ræða þá hluti sem ég hef gert hér að umtalsefni skal ég einnig bíða með að ræða frekar húsnæðismál og fjármögnunarþátt þeirra sem ég tel mjög mikilvægt að verði rætt á Alþingi.
Ég vil þó fagna því, sem fram kom í ræðu hæstv. félmrh. hér áðan, að hann ætlar að gera það sem í hans valdi stendur til þess að fyrir Alþingi verði lögð skýrsla um stöðu mála. Ég hygg að þá komi í ljós að það þurfi að endurmeta fjárhagslegar forsendur þessara laga. Ég vildi nú beina því til hæstv. félmrh. hvort hann gæti ekki flýtt þeirri skýrslugjöf frá Húsnæðisstofnun. Ég tel að það liggi fyrir nægjanlegar upplýsingar sem á megi byggja og að þær upplýsingar geti þá legið fyrir þegar umræðan um skýrslu milliþinganefndar fer fram í næstu viku.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað