27.10.1986
Neðri deild: 6. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í B-deild Alþingistíðinda. (261)

77. mál, Bankaeftirlit ríkisins

Flm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Mikið á ríkisstjórnin mér að þakka í dag. Hér væri ekki lengur haldinn fundur ef þm. Alþb. sæi ekki fyrir því að hér sé eitthvað til umræðu.

En ég, herra forseti, mæli fyrir frv. til laga um Bankaeftirlit ríkisins sem liggur hér fyrir á þskj. 77 og er 77. mál þingsins.

Frv. til laga um sjálfstætt bankaeftirlit var flutt á 108. löggjafarþingi, en varð ekki útrætt. Frv. það sem hér liggur fyrir er flutt í nokkuð breyttri mynd og ber nú nafnið frv. til laga um Bankaeftirlit ríkisins. Flm. eru ásamt ræðumanni hv. þm. Geir Gunnarsson, Steingrímur J. Sigfússon og Svavar Gestsson.

Meginefni frv. er hið sama og hins fyrra frv., en taka varð tillit til laga um Seðlabanka Íslands nr. 36/1986 auk þess sem nokkrar aðrar breytingar, sem síðar verður gerð grein fyrir, hafa komið til.

Bankaeftirlitið hefur starfað skv. lögum um Seðlabanka Íslands frá stofnun hans og undir yfirstjórn hans. Hin nýju lög um Seðlabanka Íslands nr. 36/1986 breyttu engu þar um. Flm. þessa frv. telja það hins vegar höfuðnauðsyn að bankaeftirlitið verði algerlega aðskilið frá Seðlabanka Íslands og verði sjálfstæð stofnun og sá hefur verið vilji Alþb. um langt árabil.

Hlutverk Seðlabankans og bankaeftirlits eru mismunandi og aðskilnaður þessara tveggja mikilvægu stofnana því tvímælalaust til styrktar stjórnun peningamála. Meginhlutverk Seðlabankans yrði að hafa stjórn á peningamagni í umferð og að framboð lánsfjár sé hæfilegt miðað við að verðlag haldist stöðugt og framleiðslugeta atvinnuveganna sé hagnýtt á sem fyllstan og hagkvæmastan hátt, eins og segir í 3. gr. laga nr. 36/1986. Hann á jafnframt að varðveita og efla gjaldeyrisvarasjóð er nægi til að tryggja frjáls viðskipti við útlönd og fjárhagslegt öryggi þjóðarinnar út á við, eins og þar segir. Hann á að fara með gengismál, annast gjaldeyriskaup og sölu og vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um gjaldeyris- og peningamál. Loks er hann banki innlánsstofnana, en jafnframt skal hann samkvæmt núgildandi lögum hafa eftirlit með viðskiptum þeirra. Sá þáttur í starfsemi Seðlabankans hlýtur þó að víkja fyrir annarri starfsemi þar sem honum ber að framfylgja peningamálastefnu hverrar þeirrar ríkisstjórnar sem við völd er hverju sinni og óvíst er að ákvarðanir hennar og Seðlabanka séu ævinlega hagstæðar viðskiptabönkunum. Skarist þeir hagsmunir er ljóst að bankaeftirlitið fær lítt við ráðið eins og hlutverki þess er nú háttað og það hlýtur að hefta meginverkefni þess sem er að tryggja fjárhagsöryggi sparifjáreigenda í bönkum, sparisjóðum og öðrum innlánsstofnunum því að sá er megintilgangurinn með stofnun bankaeftirlita í öllum vestrænum iðnríkjum okkar daga.

Helstu iðnríki Vestur-Evrópu hafa þróast í nánum peningalegum tengslum og samhengi, ekki síst Efnahagsbandalagsríkin, enda eru lagaákvæði um bankaeftirlit í þessum löndum um margt sambærileg. Sífellt flóknari peningaviðskipti kölluðu á styrkari stjórn og skipulagt eftirlit með peningamálum og eðlilegar viðskiptareglur um ábyrgðir, hagkvæmni og samkeppnisverðlagningu. Í fyrstu tóku lög um bankaeftirlit nær eingöngu til innlánsstofnana, en eftir því sem fyrirtæki á almennum markaði tóku í æ meira mæli að bjóða önnur viðskipti en hin hefðbundnu hafa bankaeftirlit fengið æ víðtækari verkefni. Öll miðast þau við að tryggja sem best sparifé almennings. Og eftir því sem stórfyrirtækjum hefur vaxið fiskur um hrygg og samkeppni minnkað, ekki síst í peningaviðskiptum, hefur verið knúið í æ meira mæli á um eftirlit með viðskiptaháttum, gjaldskrám og verðskrám banka og annarra aðila peningamarkaðarins. Þá er ekki síður ástæða fyrir hin fámennari ríki að halda uppi ströngu eftirliti með öflun erlends lánsfjár til innanlandsnota, svo og starfsemi erlendra fjármálastofnana á innlendum vettvangi.

Hér á eftir verður gerð nokkur grein fyrir verkefnum og stjórn bankaeftirlits í nálægum löndum.

Í Danmörku eru verkefni bankaeftirlitsins að fylgjast reglulega með málum banka og sparisjóða og ber þeim að leggja því til öll umbeðin gögn. Einnig skal bankaeftirlitið fylgjast með hringamyndunum í viðskiptalífinu og hafa eftirlit með gjaldskrám og vaxtaákvörðunum banka og sparisjóða. Bankaeftirlitið er starfrækt á ábyrgð iðnrh. skv. lögum um banka og sparisjóði frá 1974. Drottning skipar forstöðumenn, en stofnunin heyrir að öðru leyti undir ráðuneytið. Yfirmaður má ekki taka lán í þeim stofnunum sem hann skal hafa eftirlit með nema með sérstöku leyfi ráðherra. Kostnaður er greiddur af þeim stofnunum sem eftirlitið nær til.

Í Finnlandi er verkefni bankaeftirlitsins að hafa eftirlit með starfsemi banka og sparisjóða og annarra innlánsstofnana svo og endurtryggingakerfi bankanna. Þar heyrir bankaeftirlitið undir fjmrh. skv. lögum. Forseti landsins skipar forstöðumann, aðstoðarforstöðumaður er skipaður af ríkisráði, en aðrir starfsmenn af ráðuneytinu. Skýr ákvæði eru um menntun bankaeftirlitsmanna. Starfsmenn mega ekki starfa við stofnanir sem bankaeftirlitið tekur til né taka þar lán nema með sérstöku leyfi ráðherra. Stofnanir þær sem bankaeftirlitið hefur eftirlit með bera kostnað af starfsemi þess.

Í Noregi hefur bankaeftirlitið með höndum eftirlit með starfsemi banka og sparisjóða, öðrum innlánsstofnunun og fjármögnunarfyrirtækjum og það skal sjá svo til að þessar stofnanir séu reknar á hagkvæman hátt með tilliti til öryggis sparifjáreigenda og í samræmi við yfirlýstan tilgang. Bankaeftirlitið er sjálfstæð stofnun sem styðst við sérstök lög. Konungur skipar forstöðumann og staðgengil hans, en fjmrh. skipar aðra starfsmenn. Starfsmenn mega hvorki eiga né reka fyrirtæki sem undir eftirlitið heyra. Ekki mega þeir heldur taka lán í fyrirtækjum þessum nema með leyfi ráðherra. Þær stofnanir sem bankaeftirlitið hefur eftirlit með bera kostnaðinn af starfseminni eins og annars staðar.

Í Svíþjóð hefur bankaeftirlitið með höndum eftirlit með bönkum, sparisjóðum, öðrum innlánsstofnunum, lánastofnunum atvinnuveganna, húsnæðislánakerfi og verðbréfasölu. Ber eftirlitinu að fylgjast með rekstri þessara stofnana, bæði varðandi hagkvæmni og að þær starfi í samræmi við lög og reglur. Bankaeftirlitinu ber að hafa auga með hringamyndunum og fylgjast með samkeppnisaðstæðum og einnig skal það hafa eftirlit með gjaldskrám og vaxtakjörum þessara aðila. Bankaeftirlitið í Svíþjóð starfar á grundvelli konungstilskipunar skv. lögum um bankastarfsemi o.fl. og er sjálfstæð stofnun. Konungur skipar yfirmenn og sitja fjórir æðstu yfirmenn í stjórn þess ásamt þremur þingkjörnum fulltrúum, en forstöðumaður bankaeftirlitsins er formaður stjórnarinnar. Starfsmenn mega hvorki eiga né reka fyrirtæki sem háð eru ákvæðum um eftirlit né heldur taka lán í stofnunum sem eins er ástatt um nema með leyfi yfirmanna. Yfirmenn þurfa konungsleyfi til lántöku. Bankaeftirlitið starfar í þremur deildum, lögfræðideild, almennri eftirlitsdeild með innlánsstofnunum og endurskoðunardeild. Stofnanir sem bankaeftirlitið hefur eftirlit með bera kostnað starfseminnar.

Í Bretlandi er verkefni bankaeftirlitsins að fylgjast náið með starfsemi banka og sparisjóða varðandi tryggingar á innstæðum auk almenns eftirlits.

Herra forseti. Ég skal nú ekki þreyta hv. þm. með meiri upptalningu á hvernig ástand þessara mála er í nágrannalöndum, en vil þó geta þess að í Frakklandi og á Ítalíu er bankaeftirlit háð meiri miðstýringu en t.d. í Þýskalandi og Hollandi. En ljóst er að í öllum þessum löndum er mikil áhersla lögð á mikilvægi bankaeftirlitsins og Efnahagsbandalagsþjóðirnar gera kröfu um sterkt bankaeftirlit er starfað getur óháð seðlabönkum og stjórnvöldum sem nauðsynlegur eftirlits- og upplýsingaaðili og verið mikilvægur ráðgjafi við stjórnvaldsaðgerðir.

Atburðir síðasta árs hafa hér á landi óhjákvæmilega vakið þá spurningu hvort eftirlit með eiginfjárstöðu lántakenda sé nægilegt. Og þegar einn ríkisbankanna kemst í þá stöðu að gjaldþrot blasir við án þess að bankaráð eða bankastjórar virðist hafa uggað að sér hljóta menn að hafa efasemdir um samvirkni peningastofnana í landinu og upplýsingastreymi milli þeirra. Þá virðist talsvert vanta á að fjármagni sé veitt til fyrirtækja sem líkleg eru til að reynast arðbær fremur en annarra sem næsta ólíkleg eru til að skila arði í þjóðarbúið. Virðist mikið skorta á um hagkvæmnisrannsóknir m.a.

Eins og bankaeftirlitið er nú í stakk búið til að sinna þeim mikilvægu verkefnum sem því eru falin, en þar starfa nú alls níu manns, er óhugsandi að það geti fullnægt þeim kröfum sem aðrar þjóðir gera til bankaeftirlitsstofnana sinna. Linnulausar ófarir okkar í peningamálum, óviturleg dreifing fjármagns til gagnslausrar atvinnustarfsemi og óreiða í vaxtamálum kalla á styrkara bankaeftirlit sem ekki lýtur stjórn Seðlabankans, heldur er nauðsynlegur ráðgjafaraðili fyrir hann og stjórnvöld. Í því skyni að svo megi verða er þetta frv. flutt.

Ef menn líta á athugasemdir við einstakar greinar skýra þessar greinar sig að mestu leyti sjálfar. Þó skal vakin athygli á að í 1. gr. frv. er tekin inn ný þjónusta sem háð skal eftirliti bankaeftirlits, en það er greiðslukortaþjónusta. Skýrir greinin sig að öðru leyti sjálf. En flm. telja nauðsynlegt að greiðslumiðlanir, sem nú fjölgar í sífellu, komi undir eftirlit bankaeftirlits.

Þá vil ég vekja athygli á athugasemd við 5. gr., en í henni er gert ráð fyrir að þegar banki eða innlánsstofnun óskar eftir að stofna útibú eða umboðsskrifstofu skuli sótt um til bankaeftirlits sem síðan rannsakar hvort opnun útibús sé skynsamleg ráðstöfun og sendir viðskrh. umsögn sína þar að lútandi. Skal þá viðskrh. taka ákvörðun um leyfisveitingu með tilliti til álits bankaeftirlits ríkisins.

Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta frv. Ég held að flestum Íslendingum sé ljóst að það er orðin knýjandi nauðsyn að aðskilja bankaeftirlit ríkisins frá Seðlabanka Íslands. Ég vænti þess að hv. þm. treysti sér til að skoða þetta mál vandlega og veita því brautargengi. En að umræðu lokinni óska ég eftir að málið verði sent til hv. fjh.- og viðskn.