05.02.1987
Sameinað þing: 46. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2808 í B-deild Alþingistíðinda. (2621)
Tilraunasprenging með kjarnavopnum
Utanríkisráðherra (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Vegna fsp. hv. 3. landsk. þm. Mundi ég ekki upplýsa ef ég vissi í sambandi við þá fsp.? Ég bendi á að það sem um er deilt í þessum málum er eftirlit með afvopnunun og það var eitt af höfuðágreiningsmálunum á Reykjavíkurfundinum. Það liggur ljóst fyrir að um leið og hægt verður að fá aðila til þess að setjast að samningaborðinu og koma sér saman um eftirlit mun takast að ná fram því markmiði, sem við öll stefnum að, að hafa kjarnorkuvopnalausan heim.