05.02.1987
Sameinað þing: 46. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2808 í B-deild Alþingistíðinda. (2622)
Tilraunasprenging með kjarnavopnum
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég tel að þessar umræður hafi leitt í ljós afar þýðingarmikla staðreynd. Ef marka má talsmenn flokkanna, sem hafa talað í þessari umræðu, er alveg ljóst að hæstv. utanrrh. hefur ekki meiri hluta á Alþingi fyrir þeirri afstöðu sem hann hefur túlkað í þessu máli. Það hlýtur að reyna á það hér í þinginu frekar hvort hann hefur stuðning við þá afstöðu sem hann lýsti.