05.02.1987
Sameinað þing: 46. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2810 í B-deild Alþingistíðinda. (2626)
215. mál, staða og þróun jafnréttismála
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Hæstv. félmrh. hefur mælt fyrir skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála og er hún lögð hér fram í samræmi við ákvæði laga um jafnrétti kynja sem samþykkt voru 1985, og er það gott nýmæli, svo og þær framkvæmdaáætlanir og skýrslur aðrar sem snerta stöðu kvenna sérstaklega og koma hér á dagskrá, þótt síðar verði. Hér er það skýrslan um stöðu og þróun jafnréttismála sem er til umræðu og ég mun gera hana að umtalsefni í nokkrum atriðum án þess að fara út í allt hið marga sem ástæða væri til að ræða um þetta efni. Það gefst tækifæri til þess að taka frekar á því þegar hæstv. ráðh. mælir fyrir framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynja og skýrslu um mat á heimilis- og umönnunarstörfum til starfsreynslu.
Ég tel að það sé mjög gagnlegt að ræða þessi mál hér á þingi og fá fram grg. af því tagi sem hér er gert og það sé þakkarvert að hæstv. ráðh. hefur staðið við ákvæði þar að lútandi. Er ég ekki með því að leggja neitt mat á innihald þeirra verka sem hann hefur hér lagt fyrir þingið, þessara skýrslna, því að ég er langt frá því að vera sammála öllu því sem þar kemur fram þó að undir margt af því megi hins vegar taka.
Það sem er augljósast í sambandi við skýrsluna um stöðu og þróun jafnréttismála er hinn mikli munur á orðum og efndum sem þar blasir við, hið mikla djúp sem er staðfest á milli ákvæða í löggjöf varðandi jafnrétti kynja og hins vegar aðgerða stjórnvalda til að ná fram og stuðla að því að þessi ákvæði verði að veruleika. Þegar litið er til verka núverandi ríkisstjórnar, og þar vil ég ekki vera að taka hæstv. félmrh. sérstaklega fyrir eða út úr, blasir vissulega við að í stað þess að þróun hafi verið í rétta átt í þessum efnum hefur þarna verið umöfugþróun að ræða á mjög mörgum sviðum. Þetta minnir okkur á að ákvæði í lögum ein sér nægja skammt ef sú stefna sem fylgt er í undirstöðuþáttum þjóðfélagsins gengur á svig við anda og efni viðkomandi löggjafar.
Við höfum búið við það undanfarin ár í tíð núverandi ríkisstjórnar að það hefur verið vaxandi mismunun í þjóðfélaginu almennt. Það er nánast sama á hvaða svið er litið, mismununin fer alls staðar vaxandi, og hún hittir fyrir þó alveg sérstaklega þá hópa í samfélaginu sem höllustum fæti standa fyrir. Í þeim hópi má telja konur nokkurn veginn upp til hópa, þó að vissulega sé aðstaða hjá konum ekki alls staðar hin sama, misjafnlega slæm þó einstaka geti kannske talið sína stöðu viðunandi. Það er þetta sem er fyrst og fremst umræðu vert í sambandi við þessa skýrslu og minnir okkur á það að ef menn ætla í reynd að ná fram leiðréttingu á þeirri miklu mismunun sem ríkir á allri aðstöðu kynjanna í landinu, karla og kvenna, kallar það á alveg nýja stefnu í undirstöðuþáttum samfélagins. Það varðar bæði opinber málefni og opinberar fjárveitingar, en það varðar auðvitað einnig hinn þáttinn sem ríkisstjórn og Alþingi ræður ekki yfir með sama hætti, þ.e. markaðsþjóðfélagið fyrir utan hinn opinbera þátt, markaðsþjóðfélag sem hefur þróast í ranga stefnu í tíð núverandi ríkisstjórnar þar sem opnað hefur verið fyrir flóðgáttir samkeppni undir hugtakinu frelsi á mjög mörgum sviðum sem orðið hefur einmitt til þess að ýta undir vaxandi mismunun.
Ég vil með þessu ekki gera lítið úr þeirri sérstöðu sem snertir vandamál kvenna og mismunun á stöðu kvenna. Þar er vissulega við að glíma gamlar hefðir í mjög mörgum tilvikum, gamlar og býsna rótfastar hefðir sem við mörg hver vildum gjarnan sjá á bak og ber að sjálfsögðu að leggja ríka áherslu á að vinna gegn á öllum sviðum því að þar er að finna mjög veigamikla undirrót fyrir þeirri mismunun sem við erum hér að ræða.
Grundvallaratriðið til að ná fram leiðréttingu á stöðu kvenna og jafna stöðu kynjanna í samfélaginu er að samfélagið viðurkenni í reynd kynbundið hlutverk kvenna, að samfélagið viðurkenni móðurhlutverkið og uppeldishlutverk kvenna umfram karla og taki á málum í ljósi þessa. Ef menn ekki viðurkenna þetta sem grundvallarþátt í þessu máli komast menn skammt að ég hygg að jafna metin milli kynjanna því að einmitt þarna, í því að samfélagið ekki tekur á þessum atriðum, er að finna undirrót undir hinni miklu mismunun og jafnvel vaxandi mismunun á mörgum sviðum.
Ég bendi á sem dæmi hvernig ríkisstjórnin í raun gengur gegn þeim lögum um jafnrétti kynjanna sem samþykkt voru á Alþingi 1985 með stefnu sinni í efnahagsmálum, með stefnu sinni t.d. í ríkisfjármálum varðandi afgreiðslu fjárlaga ár eftir ár, þar sem framlög til undirstöðuþátta sem snerta einmitt möguleika á leiðréttingu á mismunun milli kynjanna, eins og framlög til dagvistarmála, framlög til skólamála, kjör uppeldisstéttanna og aðrir slíkir þættir, færast til verri vegar, færast í ranga átt í staðinn fyrir að leitast sé við með markvissum hætti að bæta þar úr.
Ég held að það sé til lítils í rauninni að eyða mjög mörgum orðum að þeirri þróun sem við blasir á vinnumarkaði og þeim aðstöðumun sem er hjá konum og sérstaklega láglaunahópunum meðal kvenna, sem fylla láglaunahópana í landinu, ef menn ekki taka um leið á þeirri efnahagsstefnu, þeirri stjórnarstefnu sem fylgt er í landinu.
Það er vissulega mjög þýðingarmikið að unnið sé gegn rótgrónum fordómum og þar skipta fjölmiðlar mjög miklu máli og sú afstaða sem þar er tekin. Hin frjálsa fjölmiðlun sem svo er kölluð er nú ekki öll í þá áttina að bæta þar úr, en þó vil ég út af fyrir sig ekki lasta viðleitni sem gætir hjá góðu fólki á fjölmiðlunum til að vekja athygli á hinni miklu mismunun sem hér um ræðir.
Sama gildir að sjálfsögðu um skólana og fræðslu innan skólakerfisins um stöðu kynjanna og mismunun á stöðu kvenna sérstaklega. Vissulega er þýðingarmikið að á því sé tekið og það hlutverk sé rækt sem lög kveða á um. En þetta kemur fyrir lítið ef framlög til skólamála og þeirra sem starfa í skólum landsins eru með þeim hætti sem raun ber vitni, bæði í sambandi við möguleikana á að koma á samfelldum skóladegi og að búa skólana þannig, bæði hvað snertir starfslið og starfsaðstöðu, að þeir geti með þeim hætti komið í stað heimilanna sem uppeldisstofnanir sem nútímaþjóðfélag raunverulega krefst. Er ég þó ekki þar með að segja að það eigi að færa uppeldishlutverkið alfarið frá fjölskyldunni til skóla eða uppeldisstofnana, síður en svo. Með lengingu fæðingarorlofs og með því að meta með eðlilegum hætti störf heimavinnandi fólks, og þá fyrst og fremst heimavinnandi húsmæðra, er vissulega hægt að ráða bót í þessum efnum og sjálfsagt að taka undir aðgerðir sem að þessu lúta.
Í þessari skýrslu hæstv. ráðh. er vikið að ýmsum atriðum. Ég vil í því sambandi minna sérstaklega á till. sem ég hef flutt ásamt hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur varðandi úttekt á mismunun gagnvart konum hérlendis, sem er 7. mál þingsins og sem varðar úttekt sem tengist fullgildingu samnings um afnám allrar mismununar gagnvart konum sem Alþingi staðfesti samhljóða 1985 og hefur að geyma að mínu mati mjög þýðingarmikil ákvæði og að sama skapi er það mikilvægt að þeim samningsákvæðum sé fylgt eftir.
Það gerðist á vorfundi efnahags- og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland á nú fulltrúa í, s.l. vor að samþykkt var sérstaklega áherðandi tillaga varðandi þennan alþjóðasamning um afnám hvers kyns misréttis gegn konum. Ísland gerðist þar meðflutningsaðili að tillögu innan ECOSOC, efnahags- og félagsmálaráðsins, þar sem ráðið hvetur aðildarríkin sérstaklega til að gera allar mögulegar tilraunir til að leggja fram fyrstu skýrslur sínar um framkvæmdir samkvæmt 18. gr. samningsins og leiðbeiningum nefndarinnar sem fjallar um afnám misréttis gegn konum og að standa stranglega við skuldbindingar sínar samkvæmt samningnum að öðru leyti.
Þegar Ísland skilaði lögboðinni skýrslu um stöðu þessara mála s.l. sumar var það því miður ekki sú úttekt sem þörf hefði verið á. Þar var í rauninni fyrir komið nokkrum formlegum upplýsingum á einni blaðsíðu eða svo sem sent var til Sameinuðu þjóðanna varðandi úttekt af íslands hálfu, íslenskra stjórnvalda, á stöðu kvenna hérlendis og það var mjög miður að ekki skyldi betur staðið að þessu máli sem Alþingi samþykkti hér um árið. Það minnir sérstaklega á nauðsyn þeirrar úttektar sem ég nefndi hér og till. liggur fyrir um til þál. um að gerð verði. Ég tel það skjóta nokkuð skökku við að þeir sem eru að minna stjórnvöld á þörfina á að fá upplýsingar um öll þau meginatriði sem varða mismunun milli kynjanna skuli, eins og hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir gerði á sínum tíma á Alþingi og minnir enn á í Morgunblaðinu í dag, ekki taka undir þessa till. um að úttekt sé gerð á stöðu Íslands gagnvart þessum alþjóðasamningi sem við höfum gerst aðilar að. Ég hef aldrei skilið rök hv. þm., sem ég hef talið góðan talsmann jafnréttis kynjanna, aldrei skilið afstöðu hennar að þessu leyti, og sé ekki eftir mál hennar hér áðan heldur að það sé neitt samræmi í þeim málflutningi, þar sem hún m.a. var að minna á loforð hæstv. forsrh. um upplýsingar, sem gefið var hér fyrir einum tveimur árum, um að framkvæma heildarúttekt varðandi launamun kynjanna í landinu.
Ég held að það sé þörf á því að nota öll tækifæri í rauninni til þess að draga fram stöðu þessara mála, en hitt er auðvitað jafnljóst að slíkar úttektir einar sér nægja ekki frekar en lagafyrirmæli á Alþingi, ef efndir ganga ekki eftir.
Í einum kafla þessarar skýrslu er vikið að stöðu jafnréttismála á sviði stjórnmálanna, þ.e. stöðu kvenna í sambandi við fulltrúakjör í sveitarstjórnum og á Alþingi, og hæstv. félmrh. vék einmitt að því í sínu máli, ef ég hef tekið rétt eftir, að þar hafi ekki þróunin verið eins og æskilegt væri og meðal annars samkvæmt þeim reglum sem margir stjórnmálaflokkanna hafa tekið upp í sambandi við val fulltrúa til setu í sveitarstjórnum og á Alþingi. Þetta er alveg rétt. Á hitt hlýt ég að benda að það er býsna misjafnlega háttað hvað þetta snertir innan stjórnmálaflokkanna. Það hefur t.d. á vettvangi míns flokks, og vil ég þó ekki vera að gera hlut hans neitt betri en hann er í þessum efnum, því að þar þarf verulega um að bæta til viðbótar við það sem áunnist hefur, en ég vek athygli á því að í sveitarstjórnum eru rösklega 40% fulltrúa Alþýðubandalagsfólks konur, og sker Alþb. sig þar verulega úr hvað snertir aðra stjórnmálaflokka. Ég vek jafnframt athygli á því að við undirbúning komandi alþingiskosninga á vegum Alþb. hefur í mörgum tilvikum tekist að laða konur til þátttöku og fá stuðning við framboð kvenna, sem ég tel afar þýðingarmikinn þátt í sambandi við jafnréttissókn kvenna, að hlutur þeirra á stjórnmálavettvangi verði til jafns við karla, sem næst til jafns við karla og gjarnan mega þær vera fleiri en karlarnir færri út af fyrir sig. Það er kannske ekki spurningin að það sé alltaf alveg hnífjafnt á metaskálunum og getur verið erfitt að koma slíku við, en aðalatriðið er að konur hafi eðlilegan hlut í stjórnmálastarfi í landinu, jafnt í sveitarstjórnum sem á Alþingi og annars staðar þar sem ráðum er ráðið.
Á hitt vil ég einnig minna að aðstaða kvenna til að helga sig þessum störfum og taka þátt í þeim til jafns við karla við sömu aðstæður og karlar, möguleikar kvenna í þessum efnum eru sannarlega ójafnir og ólíkir. Þar hallar einnig mjög verulega á. Hindranirnar eru ekki síður þær að konurnar eru undir tvöföldu vinnuálagi í mjög mörgum tilvikum og ef þær eiga svo að bæta við lítt eða ekki launuðum félagsmálastörfum að auki sér hver maður að það er ekki auðvelt hlutverk sem konum er ætlað með þeim hætti.
Launamunur kynjanna í landinu er vissulega mikill, eins og kemur fram í þessari skýrslu og eins og allar tölulegar upplýsingar bera vott um. Þar hefur þróunin gengið í öfuga átt á undanförnum árum, því miður, láglaunahópunum í heild fjölgað og samkvæmt tölulegri úttekt Byggðastofnunar í skýrslunni Vinnumarkaðurinn kemur einmitt fram að þessi mismunun í launum hefur farið vaxandi undanfarin ár. Það er sannarlega hörmuleg þróun á sama tíma og menn í orði margir hverjir reyna að taka undir með annarri stefnu, svo sem eðlilegt er og nauðsynlegt.
Ég bendi svo að lokum, herra forseti, á að það er þjóðfélagsgerðin, hið óhefta markaðsþjóðfélag með vaxandi mismunun sem hittir konur ásamt öðrum hópum, sem minna mega sín í þjóðfélaginu og eiga undir högg að sækja, alveg sérstaklega fyrir. Og það þýðir ekki að ætla sér að ráða bót á þessari mismunun nema menn reynist menn til þess í reynd í stjórnmálum í landinu að taka á þessu ójafnaðarþjóðfélagi og breyta því í þjóðfélag jafnaðar, þar sem þess sé gætt að konur hafi jafna möguleika á við karla og þar sem menn taki á fjölskyldumálum og kynhlutverki kvenna sem sjálfsögðum og eðlilegum þætti. Sé það ekki gert mun okkur seint miða áfram, hvað sem öllum lagafyrirmælum líður.