05.02.1987
Sameinað þing: 46. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2814 í B-deild Alþingistíðinda. (2627)

215. mál, staða og þróun jafnréttismála

Kolbrún Jónsdóttir:

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðh. fyrir að leggja hér fram skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála.

Það er ekki margt í þessari skýrslu sem ætti að koma hv. alþm. á óvart. Hér er mikið fjallað um atvinnu og menntamál kvenna. En ég ætla að byrja á því að velta fyrir mér hvernig er hægt að eyða því launamisrétti sem er nú við lýði. Þrátt fyrir langar ræður og mörg orð um jafnréttismál hefur ekkert gengið í þeim efnum að jafna það launabil sem til staðar er á milli karla og kvenna. Það er mun frekar að það fari í þá átt að launabilið breikki og nægir að benda á skýrslu sem nýlega var gefin út þar sem launaskrið hafði breikkað þennan mun mjög á undanförnu ári. En hvernig er hægt að eyða þessu launamisrétti? Í fyrsta lagi er það hlutverk ríkisstjórnarinnar að huga að launum þeirra stétta sem vinna í þágu ríkisins og þá vil ég fyrst nefna á sjúkrahúsum, í skólum og þar sem konur eru í meiri hluta, en þar er óánægjan hvað mest í dag. Það þýðir ekki að halda hér fallegar ræður og segja: Það má til með að taka á þessum málum, án þess að taka á því sem brýnast er í dag og er í verkahring hæstv. ríkisstjórnar að framkvæma.

Ef við veltum líka fyrir okkur af hverju málum er svona komið varðandi konur held ég að eitt atriði í því máli sé að konur eru undir tvöföldu vinnuálagi, eins og fram hefur komið í þessari umræðu, og þær hafa ekki jafnmikinn tíma og karlmenn til að vinna að félagsmálum, en félagsmál eru m.a. samningar um kaup og kjör. Þær hafa ekki tekið þátt í þeim samninganefndum sem semja um laun. Það kom fram hjá hæstv. ráðh. að í stjórnum hjá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja er aðeins 32% konur, en í félagsskapnum í heild eru 60% konur. Þær eru helmingi færri í stjórnum og nefndum í hlutfalli við fjölda þeirra í þessum samtökum. Þetta segir okkur einfaldlega að meðan konur hafa ekki tækifæri né tíma til að semja sjálfar um sín laun eða kaup og kjör er ekki von til þess að þessir hlutir batni mjög. Við getum ekki, konur, ætlast til þess að karlmenn sjái um okkar hag. Reynslan hefur sýnt okkur að það gengur ekki upp. Þau mál sem snúa að ríkisstjórninni eru í fyrsta lagi félagslegs eðlis og í öðru lagi er í verkahring ríkisstjórnar að gera betur við þær launastéttir sem hjá ríkinu vinna.

En það er líka hægt að gera margt annað. Við konur getum staðið meira saman. Við getum reynt að brýna hvor aðra og beita okkar ráðum í baráttunni. En það er líka brotalöm þar á. Hér í umræðunni var sérstaklega tekið til niðurlagsorða í þessari skýrslu þar sem segir: „Konur þurfa einnig að láta meira til sín taka á sviði stjórnmála, bæði með því að gefa kost á sér til setu á Alþingi og í sveitarstjórnum.“ Þetta er að sumu leyti rétt, en konur eru líka helmingur kjósenda og þær geta líka haft áhrif beiti þær sér fyrir því að koma fleiri konum í örugg sæti. Ég held að við megum ekki alltaf líta á það sem hlutverk karlmanna að tryggja okkur rétt. Mér finnst allt of oft í umræðunni að þetta brenni við. Ég hef undanfarin ár setið í nefndum sem ekki hafa setið aðrar konur í, eins og sjútvn., samgn. og fleiri nefndum. Ég held að í okkar verkahring hljóti líka að vera að skipta okkur af atvinnumálum. Við megum ekki lokast í þeirri umræðu að ræða aðeins um félagsleg atriði.

En ég var að tala um þátttöku í stjórnmálum. Þá langar mig aðeins að nefna dæmi sem er þessi vinnustaður, Alþingi. Hvernig skiptast konur eftir kjördæmum á Alþingi? Ég held að það einmitt endurspegli vel hvað konur eiga yfir höfuð erfitt með eða erfiðara með að sækja vinnu sem er langt frá vinnustað og kostar mjög mikla fjarveru frá heimilum. Það eru sex konur á Alþingi héðan úr Reykjavík, það eru tvær af Reykjanesi, það er ein af landsbyggðinni, en af landsbyggðinni eru 35 þm. Af 25 þm. hér í þéttbýliskjördæmunum eru átta konur en ein af 35 af landsbyggðinni. Þetta er einfaldlega spegilmynd af því, sem komið hefur fram í þessari umræðu, að konur hafa ekki sama félagslega grundvöll og karlmenn hafa til að verja sínum tíma til starfa sem krefjast mikillar fjarveru frá heimilum.

Það er gott í sjálfu sér að í sveitarstjórnum hefur konum fjölgað. Þar eigum við meiri möguleika, að fjölga konum enn meira í sveitarstjórnum, þar sem vinnustaður er í námunda við heimilið. En ég held að það þurfi margt að breytast áður en við getum átt þess von að fleiri konur komi af landsbyggðinni. Þrátt fyrir að ég voni að svo verði held ég að sú félagslega aðstaða sem við búum við þurfi að breytast töluvert mikið.

Í umræðunum hefur einnig komið fram að mikið hefur verið rætt um jafnréttismál í alþjóðlegum samskiptum. Á þeim fundum sem ég hef átt sæti á, bæði í Mexíkó og í Argentínu, þar sem hafa komið saman þingmenn alls staðar að úr heiminum, hafa konur fundað daginn áður en fundir alþjóðaþingmannaráðsins hafa hafist. Þar hefur verið rætt um þessi mál án þess að þar komi inn í pólitík og þar hafa konur brýnt mjög hver aðra til að standa saman til að fleiri konur geti orðið fulltrúar í sendinefndum þjóðlanda sem senda fulltrúa á þessa fundi og til að konur komist einnig í trúnaðarstöður innan Alþjóðaþingmannasambandsins.

Það hefur verið mjög fróðlegt að hlusta á viðhorf kvenna alls staðar að úr heiminum til þessara mála og þar hefur einnig borið á góma umræðu um lög sem gilda í löndum varðandi, svo ég taki dæmi, barnaheimili eða dagvistarstofnanir. Í tveimur löndum sem ég man til gilda þau ákvæði að ef vinnustaður hefur yfir 100 konur í starfi er þeim vinnustað skylt að reka dagvistarstofnun. Þetta er gott mál út af fyrir sig, en það kom líka fram hjá þessum konum að þetta ákvæði leiddi til meira atvinnuleysis meðal kvenna vegna þess að það voru bara ráðnar 99 konur og hitt karlmenn. Við megum því stundum passa okkur á því að það sem við erum að fara fram á vinni ekki gegn konum. Sem betur fer höfum við ekki mikið atvinnuleysi á Íslandi og dagvistarheimili eru yfirleitt rekin af opinberum aðilum þannig að við þurfum ekki að óttast þessa hættu hér. En ég bendi á þetta atriði sem eitt af því sem er viðfangsefni annars staðar í heiminum.

Einnig var þar minnst á ámóta lög og það frv. sem liggur í Ed. Alþingis um rétt foreldra til að taka sér tveggja ára frí frá störfum. Þegar við erum að tala um foreldra í þessu tilfelli erum við auðvitað að tala um konur. Ég held að það sé mjög skynsamlegt að velta þessu máli fyrir sér, en við verðum líka að velta því fyrir okkur hverjum kemur þetta til góða. Mér hefur dottið í hug: Ef kona sem fer í tveggja ára frí og önnur kona kemur í hennar stað, hver er þá bættur? Konan sem kemur í hennar stað hefur ekki þessa vinnu nema í tvö ár vegna þess að önnur kona er farin í frí. Ég held að þetta komi ekki til góða láglaunafólki, t.d. í fiskvinnslu, á sjúkrahúsum, í skólum, því það er alltaf skortur á fólki. Þetta kemur kannske til góða einstaka konu sem er í hárri stöðu. Ég er með þessu ekki að segja að þetta eigi alls ekki rétt á sér, en ég held að við verðum að velta því virkilega fyrir okkur til hvers slík lög leiða og hver ávinningurinn er því við megum ekki setja lög sem bæta rétt einnar konu á kostnað annarrar.

Það er líka í þessari skýrslu fjallað um atvinnumálin. Þar kemur fram að konur eigi að hasla sér meira völl í hinum hefðbundnu karlastörfum. Ég tel þetta ekki áhersluatriði. Ég tel að það verði að geta verið val kvenna hvar þær hasla sér völl. Það sé ekki eingöngu val um hvar konan fær hæst laun. Þá minni ég aftur á það, sem ég sagði áðan, að ríkisstjórnin ætti að beita sér fyrir því að laun hefðbundinna kvennastarfa verði hækkuð. Það er einnig talað um að oft komi til mismununar vegna ólíkra líkamsburða kvenna og karla, en ég bendi á að ég held að t.d. sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar þurfi að nota sína líkamsburði mun meira en læknar. Hvers vegna eru þá læknar þessi hefðbundna karlastétt, en aftur sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar hefðbundin kvennastétt? Þannig á þetta ekki alltaf saman. Þar koma til menntunarmálin. Það tekur mjög langan tíma að öðlast læknamenntun. En nú er hjúkrunarfræðimenntunin og ljósmóðurmenntunin að verða svo erfið að það eru mun færri konur sem sækja í þessi störf í dag, enda er skorturinn verulegur.

Þegar talað er um menntunarmál kvenna held ég að við megum ekki heldur gleyma því að við verðum að hafa það menntakerfi sem við búum við svo opið að konur eigi þess kost að mennta sig þegar þær eru búnar að ala upp sín börn. Það eru margar konur sem fara í öldungadeildir og mun fleiri mundu fara í starfsmenntun ef þær ættu kost á því. Það eru inni á sjúkrahúsunum t.d. konur sem hafa sinnt þeim störfum og sinna störfum sem heyra undir sjúkraliðastörf, það er víða, en þær eiga þess ekki kost að verða sjúkraliðar nema með mjög löngu námi. Þar er starfsreynslan ekki metin. Ég held að í þessum efnum verðum við að líta til margra átta og staldra aðeins við, vera ekki alltaf að prenta nýjar og nýjar skýrslur heldur staldra við þau vandamál sem við höfum fyrir framan okkur í dag og reyna að leysa eitthvað af þeim áður en við förum að kalla á nýjar og nýjar skýrslur og nýjar og nýjar upplýsingar og tíminn fer allur í að lesa þær upplýsingar sem fyrir liggja.