09.02.1987
Neðri deild: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2848 í B-deild Alþingistíðinda. (2651)

Húsgagnakaup Alþingis

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ég tek undir þakkir fyrir að hafa fengið þessi svör við þeim spurningum sem fram voru bornar í umræðum um frv. til l. um opinber innkaup. Þar bar ég einmitt fram nákvæmar spurningar um það hvernig að þessum kaupum hefði verið staðið og hverjir hefðu verið með í ráðum. Ég vil jafnframt lýsa því yfir að það hefur komið fram í máli margra þm. innbyrðis að þeir eru óánægðir með að hér skuli hafa verið keyptur erlendur húsbúnaður. Þess vegna vona ég að svörin komi sem fyrst.