10.02.1987
Sameinað þing: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2875 í B-deild Alþingistíðinda. (2662)
312. mál, verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli
Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp. til hæstv. utanrrh.:
„1. Er ráðherra að beita sér fyrir verulegum breytingum á starfsháttum Íslenskra aðalverktaka á Keflavíkurflugvelli?
2. Ef svo er, hvaða breytingar eru fyrirhugaðar?
3. Mun ráðherra tryggja starfsöryggi verkafólks sem starfað hefur hjá Íslenskum aðalverktökum eða má þar búast við uppsögnum og atvinnuleysi í framhaldi af hugsanlegum breytingum?
4. Mun ráðherra tryggja forgang Suðurnesjamanna til verktöku á heimaslóð eða verður stórfyrirtækjum í Reykjavík falið að annast þau mál?
5. Er það Verktakasamband Íslands sem er að undirbúa hugsanlegar breytingar í samráði við utanrrh.?"
Ástæðan fyrir því að þessar fsp. eru fram komnar er almennur ótti verkafólks hjá Íslenskum aðalverktökum um að verið sé að gera breytingar sem varðað geti atvinnuöryggi þess. Það liggur ljóst fyrir að breytinga er þörf á verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli. Sú skipan sem varð til upp úr 1950 er ekki endilega það sem eðlilegt er að verði um næstu framtíð. Hvernig staðið er að þeim breytingum varðar ekki aðeins örfáa verktaka heldur fyrst og fremst sveitarfélögin í grennd flugvallarins, atvinnurekendur á svæðinu og þá allra fremst það starfsfólk sem um áraraðir hefur starfað við þessar framkvæmdir.
Mikil gagnrýni hefur komið fram á þá skipan verktöku á Keflavíkurflugvelli sem nú er. Einkum hefur sú gagnrýni beinst að því að það fjármagn sem er afrakstur þessarar verktakastarfsemi fer beint til Reykjavíkur. Á Suðurnesjum verður sama og ekkert eftir til uppbyggingar eða útlána á þessu svæði sem best sést á því að í svari við fsp. Alþýðuflokksmanna fyrir þremur árum kom fram hér á Alþingi að aðeins 2% af inneignum Íslenskra aðalverktaka voru þá geymd í peningastofnunum á Suðurnesjum.
Ég sá það í einu dagblaðanna að hæstv. utanrrh. var að finna að því að ég hefði séð fundargerð frá stjórn Verktakasambands Íslands. Í tilefni af því vil ég taka fram að slíka fundargerð hef ég ekki undir höndum og hef ekki haft. Hins vegar mun þessi fundargerð vera til í ljósriti mjög víða um Keflavíkurflugvöll og var hún lesin upp fyrir mér á fundi í einu byggðarlaganna þar syðra í síðustu viku. Efni hennar gefur til kynna að verulegar breytingar á verktakastarfsemi séu í augsýn. M.a. kemur fram að BM Vallá, Steypustöðin Ós og Ármannsfell hf., sem reyndar er utan Verktakasambandsins, ætli sér stóra hluti í framkvæmdum þar syðra. Rétt er að geta þess að einmitt á þessum slóðum eru starfrækt fyrirtæki sem gætu tekið þau verkefni öll að sér.