10.02.1987
Sameinað þing: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2885 í B-deild Alþingistíðinda. (2671)

314. mál, veiði kúfisks

Fyrirspyrjandi (Sturla Böðvarsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir skýr og greinileg svör við fsp. Af svari hæstv. ráðh. má sjá að kúfisknefnd hefur unnið ágætt starf og lagt mikið í að afla þekkingar og sambanda við erlenda aðila sem reynslu hafa af kúfiskveiðum og vinnslu. Er óhætt að segja að vinnubrögð nefndarinnar séu fagleg og til fyrirmyndar þó hægt hafi gengið. Er þess að vænta að á vegum sjútvrn. verði stuðlað að framgangi málsins.

Rækjunes hf. í Stykkishólmi hefur lagt verulega fjármuni í breytingar á skipi fyrirtækisins, Önnu SH, vegna kúfiskveiðibúnaðar og í raun takmarkað mjög nýtingu skipsins til annarra veiða. Því er nauðsynlegt að útgerðin njóti stuðnings ráðuneytisins og fái metið það framlag og frumkvæði sem forsvarsmenn fyrirtækisins hafa haft. Takist að nýta kúfiskinn er ekki ólíklegt að draga mætti tímabundið úr sókn í aðra stofna, svo sem rækju og hörpudisk sem nú er fullnýttur, án þess að valda atvinnuleysi eða samdrætti.

En meginatriði þessa máls er að samstarf ráðuneytis og hagsmunaaðila leiði til þeirrar niðurstöðu að nýta megi kúfiskstofninn og auka með því afrakstur sjávarútvegsfyrirtækja og starfsmanna í þeim byggðum sem geta með bestum og hagkvæmustum hætti nýtt þessa auðlind.