10.02.1987
Sameinað þing: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2886 í B-deild Alþingistíðinda. (2675)

324. mál, jafnréttisfræðsla

Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Með tilvísan til tilvitnunar fyrirspyrjanda í lög nr. 78/1976 og lög nr. 65/1985 og í framhaldi af því að í 10. gr. gildandi laga segir að menntmrn. beri ábyrgð á framkvæmd þessa ákvæðis í samráði við Jafnréttisráð, þ.e. hvernig þessu er háttað í skólakerfinu, á grundvelli framangreinds hefur félmrn. leitað upplýsinga hjá Jafnréttisráði um framkvæmd jafnréttisfræðslu í skólum og öðrum mennta- og uppeldisstofnunum og efnislega kemur eftirfarandi fram í svari ráðsins:

Þegar á árinu 1977 var hafist handa um að koma á jafnréttisfræðslu og umræðu um jafnrétti í skólum. Var fyrst og fremst horft til grunnskóla í því sambandi. Á árinu 1978 var haldinn fundur með námsstjórum, ráðgjafarnefnd Jafnréttisráðs og Jafnréttisráði og í framhaldi af fundinum var settur á stofn starfshópur sem skyldi hafa samvinnu við skólarannsóknadeild menntmrn. um útgáfu námsbóka. Þessi hópur tók þó aldrei til starfa því að svar frá menntmrn. barst aldrei.

Málið var tekið upp að nýju 1981. Ráðgjafarnefnd Jafnréttisráðs lagði áherslu á að jafnréttisfræðsla yrði tekin upp í grunnskólum. Farið var yfir námsskrár ýmissa greina og í framhaldi af þeirri vinnu var haldinn fundur með námsstjórum ýmissa námsgreina, m.a. í heimilisfræðum, íþróttum, kristinfræðum, mynd- og handmennt og í samfélagsfræðum. Ráðgjafarnefndin hélt einnig sérstaka fundi með námsstjórum.

Gott samstarf tókst á milli Jafnréttisráðs og námsstjóra í samfélagsfræðum og Jafnréttisráð fékk til yfirlestrar allt námsefni sem hafði komið út í varanlegri útgáfu í þeirri námsgrein. Einnig tókst samstarf við Námsgagnastofnun sem lét ráðgjafarnefnd Jafnréttisráðs í té allt nýútgefið námsefni til yfirlestrar. Á árinu 1982 var haldið áfram með kynningu á jafnréttisfræðslu í skólum auk yfirlestrar námsefnis á vegum ráðgjafarnefndarinnar.

Á fyrri hluta ársins var gert átak í samvinnu við námsstjóra í handmennt og heimilisfræðum um að bæta kennsluna í þessum greinum. Haustið 1983 var hafinn undirbúningur að ráðstefnu um skólajafnrétti sem haldinn var í mars 1984. Í framhaldi af henni framkvæmdi Jafnréttisráð könnun á fyrirkomulagi í handmenntakennslu í grunnskólum landsins. Skýrsla um niðurstöður þessarar könnunar liggur frammi hjá ráðinu. Í henni kemur fram að á þessu sviði er verk að vinna.

Dagana 21. og 27. sept. 1985 var stofnað til kynningar í Námsgagnastofnun um jafnréttisfræðslu. Jafnréttisráð átti frumkvæði að kynningunni sem haldin var í samvinnu við Námsgagnastofnun, skólaþróunardeild menntmrn., Bandalag kennarafélaga, fræðsluskrifstofu Reykjavíkurumdæmis, Kennaraháskóla Íslands og Kvenréttindafélag Íslands. Á kynningunni voru sýnd kennslugögn og haldnir fyrirlestrar, einkum fyrir kennara.

Dagana 3.-6. júní 1986 var haldið námskeið á vegum endurmenntunardeildar Kennaraháskóla Íslands á Akureyri um jafna stöðu kynjanna. Á námskeiðinu var fjallað um það atriði hvort skólinn stuðli að jafnri stöðu kynjanna eða hvort hann viðhaldi kynjamismun.

Um þessar mundir eiga sér stað viðræður á milli Jafnréttisráðs og endurmenntunarstjóra Kennaraháskólans um framhald námskeiða þar sem fyrst og fremst verður unnið að viðhorfsbreytingu meðal kennara til jafnréttismála. Þess má geta að frá setningu laga nr. 65/1985 hefur Jafnréttisráð farið árangurslaust fram á stöðuheimild til að geta ráðið fræðslufulltrúa. Fyrrv. og núv. framkvæmdastjórar ráðsins hafa eftir því sem kostur er reynt að sinna allri fræðslu sem beðið er um.

Við þetta má bæta því að á Akureyri er um þessar mundir unnið að framkvæmd norræns samstarfsverkefnis á sviði jafnréttismála. Þetta verkefni, sem kallast Bryd-verkefnið eða Brjótum múrana, hefur verið kynnt hér á Alþingi, m.a. í skýrslu félmrh. um stöðu og þróun jafnréttismála. Nokkrir aðilar standa sameiginlega að framkvæmd þess, m.a. félmrn., norræna ráðherranefndin, Jafnréttisráð og Akureyrarbær. Í tengslum við framkvæmd verkefnisins hafa verið haldnir nokkrir fundir með fræðsluyfirvöldum bæjarins um jafnréttismál og jafnréttisfræðslu.

Herra forseti. Ég vil að endingu geta þess að ríkisstjórnin vill taka þessi mál föstum tökum. Ég vil í því sambandi minna á grein 3.1 í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem liggur frammi á Alþingi til umræðu. Þar segir, með leyfi herra forseta:

„Hrundið verði í framkvæmd ákvæði 10. gr. laga nr. 65/1985, um jafnan rétt og jafna stöðu karla og kvenna, um að veitt verði fræðsla um jafnrétti kynjanna í skólum landsins. Samþykkt verði tillaga menntmrn. um stöðuheimild vegna umsjónarkennara í jafnréttisfræðslu. Áhersla verði lögð á að kennslugögn mismuni ekki kynjunum. Félmrn., Jafnréttisráð og menntmrn. reyni í sameiningu að breyta hinu hefðbundna náms- og starfsvali með aukinni náms- og starfsfræðslu.“

Ég mun að sjálfsögðu beita mér fyrir viðræðum ofangreindra aðila um frekari framgang þessa máls.