10.02.1987
Sameinað þing: 48. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2893 í B-deild Alþingistíðinda. (2683)

Síldarsamningar Norðmanna og Sovétmanna

Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Það er samningur í gildi milli Noregs og Íslands um samvinnu á þessu sviði og Íslendingar hafa hreyft þessu máli á hverjum einasta fundi nefndarinnar frá upphafi. Það hefur einnig fyrir okkar forgöngu verið hafið samstarf á sviði sjávarútvegsmála innan Norðurlandaráðs. Fyrsti formlegi fundur sjútvrh. Norðurlandanna var haldinn hér á s.l. sumri og verður héðan í frá haldinn reglulega.

Aðalatriði þessa máls er að við þurfum að ná samningum milli þeirra þjóða sem eiga rétt í þessum síldarstofni. Við höfum lagt á það áherslu, við viðurkennum að Sovétmenn eiga hér rétt og það er að sjálfsögðu mikilvægt að koma í veg fyrir að smásíld sé drepin með þeim hætti sem gerðist í Barentshafi í fyrra. Því miður hafa Norðmenn verið mjög ófúsir til að hefja slíkar samningaviðræður sem ég vænti að muni breytast, sérstaklega eftir að þeir hafa viðurkennt rétt Sovétmanna til þessara veiða og yrðu að sjálfsögðu að viðurkenna okkar rétt um leið og stofninn fer út úr norsku landhelginni. Við hefðum talið nauðsynlegt að þessi réttur væri formlega viðurkenndur strax þannig að vitað væri hvernig veiðum mætti haga í framtíðinni.

Hrygningarstofninn var um 500 þús. lestir, en eftir að sterkur árgangur frá 1983 kemur inn er hrygningarstofninn orðinn á aðra milljón tonna. Það er þessi stóri hrygningarstofn sem væntanlega mun verða til þess að síldarstofninn geti náð fyrri stærð aftur, en hér var um að ræða stærsta fiskistofn á Norður-Atlantshafi eða um 10 millj. tonn. Ég vildi aðeins vekja á því athygli, herra forseti, af tilefni þessarar umræðu að það er aðalatriðið að þessar þjóðir geti sem allra fyrst náð samkomulagi um skiptingu þessara veiða í framtíðinni og við höfum lagt á það megináherslu að slíkar viðræður hæfust hið fyrsta.