10.02.1987
Sameinað þing: 48. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2898 í B-deild Alþingistíðinda. (2686)
214. mál, framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Hér er komin til umræðu skýrsla félmrh. um svokallaða framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna. Ég vil segja það í upphafi míns máls um þetta dagskrárefni að sjaldan hefur maður séð einkennilegri fyrirsögn á máli en hér kemur fram miðað við innihaldið, sem er að finna á þessum fjórum blaðsíðum.
Í orðinu „framkvæmdaáætlun“ skyldi maður ætla að væri að finna einhverja markvissa stefnumótun til að ná tilteknum markmiðum. En skýrsla félmrh. um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar inniheldur lítið annað en frómar óskir og upprifjun á löngu gefnum loforðum og ákvæðum sem hafa verið lögfest, sum fyrir alllöngu. Ég tel að þetta framlag af hálfu hæstv. félmrh. sé ekki aðeins veigalítið heldur í rauninni nánast móðgun við þá aðila sem hafa verið að gera ráð fyrir því að eitthvað kæmi út úr ákvæðum laga um að slík framkvæmdaáætlun yrði lögð fram og hvernig framkvæmdarvaldið hygðist ná þeim markmiðum sem lög bjóða í þessum efnum. En hvað er að finna á þessum síðum? Hæstv. ráðh. hefur lesið það upp og við heyrum það. Við könnumst við flest ef ekki allt það sem þar er að finna því að nýmæli getur það ekki talist og allt er það með óljósum hætti þannig að réttnefni væri kannske að kalla þetta frómar óskir félmrh. um það hvernig ná megi fram jafnrétti kynja. Þetta er ekki marktæk framkvæmdaáætlun, því miður.
Hæstv. ráðh. greinir frá því í skýrslu sinni á fyrstu síðu að Jafnréttisráði hafi verið falið að gera sérstaka áætlun, svo sem lög standa til, og ráðuneytið hafi fengið framkvæmdaáætlun ráðsins með bréfi 31. júní 1986. Ráðherra greindi frá því að í þessari svokölluðu framkvæmdaáætlun væri hins vegar fyrst og fremst um að ræða atriði sem snerta opinbera aðila, og það má vera að það geti talist eðlilegt að leggja mesta áherslu á það, en hitt hefði ég talið ekki aðeins æskilegt heldur sjálfsagt, að láta fylgja þingmáli sem þessu yfirlit yfir framkvæmdaáætlun ráðsins eða framkvæmdaáætlun Jafnréttisráðs í heild sinni ásamt þeim svörum sem borist hafa frá öðrum aðilum, þeim 14 aðilum sem tilgreindir eru, þannig að þessi svör væru aðgengileg Alþingi þegar verið er að líta til þessara mála. Það hefði þó gert þetta þingmál aðeins veigameira, a.m.k. veitt upplýsingar um það hvað Jafnréttisráð hefur fjallað um og þeir aðilar sem séð hafa ástæðu til að tjá sig um framkvæmdaáætlun þess.
2. kafli þessa þingmáls er um atvinnu- og launamál og þar er vikið í 1. lið að könnun á launamun kynjanna og tekið fram í þessari framkvæmdaáætlun að Þjóðhagsstofnun skuli hraða þeirri könnun. Hér er um að ræða atriði sem snerta vanefndir á gefnum loforðum sjálfs hæstv. forsrh. um slíka könnun, loforð sem gefið var á árinu 1985 en ekki hefur enn verið staðið við. Það er kannske dæmigert að forustan í ríkisstjórninni hefur ekki haft fyrir því að láta vinna þessa könnun sem hátíðlegt loforð var gefið um hér á Alþingi fyrir tveimur árum. Og það er dæmigert fyrir þessa framkvæmdaáætlun einmitt að slíkt atriði er talið þarna upp í 1. lið hennar. Og 2. liður, tölusettur, um þetta þýðingarmikla svið, atvinnu- og launamuninn, er að Byggðastofnun sjái um úrvinnslu upplýsinga, sbr. ritið Vinnumarkaðurinn, rit sem alþm. fá í hendur þegar það kemur út hverju sinni. Það er komið fyrir árið 1985 og við vorum að fá í hendur í byrjun vikunnar, líklega í gær, rit frá Byggðastofnun frá desember 1986, að vísu ekki undir heitinu Vinnumarkaðurinn heldur Byggð og atvinnulíf 1985. Þar er að finna upplýsingar sem segja okkur hvert stefnir í þessum málum, hver þróunin hefur verið og ég leyfi mér, virðulegur forseti, að vitna hér til þessarar skýrslu Byggðastofnunar á bls. 18 þar sem segir um meðallaun eftir kyni og aldri á árinu 1985, það er sýnt þarna myndrænt, en í texta segir:
„Árið 1985 voru meðallaun karla nærri 18% hærri en landsmeðaltal allra atvinnugreina. Meðallaun kvenna árið 1985 voru tæplega 26% lægri en landsmeðaltal. Þannig höfðu karlar 59% hærri meðallaun á ársverk en konur. Árið 1984 voru laun karla um 57% hærri en meðallaun kvenna. Árið 1983 54% hærri og árið 1980-1982 52-53% hærri. Vaxandi launamunur milli karla og kvenna eftir þessum mælikvarða á m.a. rætur að rekja til ört hækkandi tekna í fiskveiðum en þar eru ársverk kvenna fá.“
Tölurnar tala sínu máli. Það er öfugþróun á þessu sviði ár eftir ár og við höfum enn nýrri upplýsingar, tölulegar, úr sérstakri könnun á rauntekjum starfsstétta, könnun sem gerð var í apríl á síðasta ári í framhaldi af kjarasamningum í febrúar s.l., og sú könnun leiddi í ljós að enn hefði sigið á ógæfuhlið frá árinu 1985 samkvæmt þeim tölum sem framreiddar eru hér í skýrslu Byggðastofnunar.
Ekki vil ég vera að andmæla frómum óskum sem fram koma, eins og t.d. í 3. lið, um sveigjanlegan vinnutíma. Vissulega getur það verið jákvætt skref til þess að auðvelda konum þátttöku á vinnumarkaði að vinnutími sé sveigjanlegur og hér er hvatt til þess að það sé gert og ekki annað út af fyrir sig hægt en að taka undir það að slík athugun sé gerð og því sé þá hrundið í framkvæmd.
Fjórði liðurinn varðandi atvinnulífið og launamálin er um nýtt starfsmat, að hið opinbera og aðilar vinnumarkaðarins sjái um að fram fari nýtt starfsmat þar sem endurskoðað verði sérstaklega mat á hefðbundnum kvennastörfum annars vegar og störfum sem karlar vinna almennt hins vegar. Þetta er auðvitað eitt allra brýnasta verkefnið á þessu sviði, og ef eitthvað væri að baki þessari framkvæmdaáætlun ætti það auðvitað að liggja fyrir, hvernig ríkisstjórnin fyrir sitt leyti ætlaði að hlutast til um að slíkt starfsmat færi fram, ekki aðeins varðandi hið opinbera heldur einnig að því er snertir aðila á hinum almenna vinnumarkaði. Það hefur sýnt sig að ríkisvaldið getur haft áhrif yfir á það svið, ef vilji er fyrir hendi, og ég tel að það sé t.d. sjálfsagt að slíkt starfsmat fari fram með þátttöku viðsemjenda við opinbera starfsmenn, hin einstöku samtök innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, svo að dæmi sé tekið. Það er framkvæmd á slíkum atriðum og áætlun um það hvernig að því sé staðið sem við hefðum viljað sjá hér.
Vikið er að stofnun fyrirtækja í þessu sambandi og námskeiða fyrir konur sem vilja stofna fyrirtæki. Ég vil ekki leggja sérstaklega mat á hvernig til hefur tekist í þessu efni og menn getur greint á um hversu gildur þáttur slíkt sé í sambandi við jafnréttismálin sérstaklega, en hitt tel ég þó mjög góðra gjalda vert að slík hvatning fari fram og aðgerðir sem auðveldi konum þátttöku sem víðast samkvæmt eigin vali á vinnumarkaðinum. Þarna sé að því leyti til um jákvætt átak að ræða með sama hætti og það sem rætt er undir tölulið 3.4. um náms- og starfsfræðslu og starfsráðgjöf. Ég held út af fyrir sig að breikkun í atvinnuþátttöku kvenna leysi ekki ein sér mikinn vanda í sambandi við jafnrétti, t.d. á sviði launamála. Ég hef ekki mikla trú á því að það séu gildir lyklar að því verkefni að leiðrétta þennan mun. En hitt er jafnljóst að það er af hinu góða að auðvelda konum sem víðtækast val í sambandi við störf og því er sjálfsagt að mínu mati að taka undir viðleitni í þessa átt. Samnorræna verkefnið sem Valgerður Bjarnadóttir er vinnandi fyrir varðandi Akureyrarsvæðið sérstaklega er dæmi um þetta. En það eitt er ekki nóg. Það þarf að gera átak miklu víðar og helst sem víðast á landinu í þessum efnum og taka þarf mið af reynslu, m.a. á norrænum vettvangi, til þess að ná árangri í þessu, hvaða álit sem menn hafa á þessu sem tæki til þess að leiðrétta launamun eða annað misrétti gagnvart konum.
Þá kem ég að 3. kaflanum að öðru leyti varðandi menntun og fræðslu. Þar er vikið að könnunum og ákvæðum um jafnréttisfræðslu, menntun kennara, endurskoðun námsefnis o.fl., svo og fræðslu um fjölskyldumál. Ég vil ekki fara mörgum orðum um þetta efni. Sumt var rætt af tilefni fsp. á síðasta fundi Sþ. að því er varðar jafnréttisfræðslu í skólum. Hér er í rauninni um að ræða sjálfsagða hluti þar sem átaks er þörf til þess að ná leiðréttingu fram, en síðan þurfa þeir að sjálfsögðu stöðugt að vera í vinnslu. Slík atriði sem snerta fræðslumál og menntun, allt það sem lýtur að jafnrétti, þurfa að vera í stöðugri vinnslu og ekki annað hægt en að hvetja til þess að það sé gert, og það er í rauninni ítarlegri áætlun um það, hvernig að því skuli staðið sem eðlilegt hefði verið að hér kæmi fram. Það er t.d. dæmigert fyrir stöðu þessara mála sem kemur fram í tölulið 3.5., varðandi fræðslu um fjölskyldumál, þar sem segir, með leyfi forseta: „Í samvinnu við landlækni verði hrint í framkvæmd I. kafla laga nr. 25/1975 sem fjallar um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir.“ - Að hrinda í framkvæmd ákvæðum laga frá árinu 1975. Ja, það er stórmannleg framkvæmdaáætlun þetta, en vissulega betra seint en aldrei, má segja. Hvað skyldi hafa vakið hæstv. félmrh. til að taka til hendi að þessu leyti og setja þetta hér niður? Það er kannske sú umræða sem fram hefur farið í sambandi við eyðni og það sem að henni lýtur. En þetta er nokkuð dæmigert um þá framkvæmdaáætlun sem hér liggur fyrir og það seinlæti sem er megineinkenni alls þess sem snertir leiðréttingu og framkvæmd á ákvæðum laga og reglugerða um jafnrétti kynja.
Í 4. kafla er vikið að trúnaðarstöðum og ábyrgð og vissulega er það, að mínu mati, réttmætt að leitast við af opinberri hálfu að hafa sem jafnasta tölu fulltrúa kynja í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum ríkis og opinberra aðila. Það er auðvitað erfitt að lögbjóða þetta að öðru leyti. Um þetta mætti setja bindandi ákvæði. Sum félagasamtök hafa gert það. T.d. hefur sá flokkur sem ég tilheyri, Alþb., sett ákveðnar reglur í sambandi við sínar stofnanir innan flokks um hlut kvenna og ég tel að það hafi verið mjög góðra gjalda vert, það lýtur að starfi innan flokksins og hefur flýtt fyrir þróun sem hefði vissulega þurft að gerast miklu fyrr en hefur verið jákvæð. Hér verða í rauninni hver samtök, hver flokkur og félagasamtök að taka sig á hver fyrir sig, hver á sínum vettvangi, og sýna það í verki að einhver hugur fylgi orðum um þessi efni, jafnframt því sem opinberir aðilar gangi á undan. Í því sambandi hljótum við að minna á ákvæði sem tekin voru upp í jafnréttislögin við endurskoðun þeirra síðast 1985 um heimild til jákvæðrar mismununar, ákvæði sem einnig er að finna í þeim alþjóðasamningi um afnám mismununar gagnvart konum sem samþykktur var á Alþingi vorið 1985 og reynt hefur verið að ýta á eftir framkvæmd á með flutningi sérstakrar till. til þál. hér á Alþingi sem er 7. mál Sþ. Þar er einnig kveðið á um slíka jákvæða mismunun.
Af því að ég kem að því máli nefni ég það hér, sem ég raunar gerði þegar rædd var skýrsla hæstv. félmrh. um þróun jafnréttismálanna um daginn, að mér finnst það mjög sérkennilegt að sá flokkur eða þau samtök sem sérstaklega mæla fyrir hlut kvenna og telja sig standa vörð um hagsmuni kvenna, og þar á ég við fulltrúa Kvennalistans, skuli taka það upp sem sérstakt mál af sinni hálfu og eitt af því sem sýnir sérstöðu þeirra, að leggjast gegn þeirri úttekt á þessum alþjóðasamningi og stöðu Íslands að því er varðar mismunun gagnvart konum, eins og hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir hefur ítrekað séð ástæðu til þess að gera. Ég átta mig ekki á rökunum og ég átta mig ekki á því hvernig á því stendur að á sama tíma og með réttu er ýtt á eftir að staðið sé við loforð hæstv. forsrh. frá 1985 varðandi könnun á launamun kynjanna skuli vera lagst gegn því að opinberir aðilar geri úttekt á stöðu Íslands gagnvart þessum alþjóðasamningi um mismunun gagnvart konum hérlendis samkvæmt þessum alþjóðasamningi sem staðfestur var í júní 1985 að mig minnir.
Ég vil leyfa mér í sambandi við þetta, herra forseti, að lesa umsögn Jafnréttisráðs um þessa tillögu eins og hún liggur fyrir, hún er ekki löng:
„Jafnréttisráði hefur borist til umsagnar till. til þál. um úttekt á mismunun gagnvart konum hérlendis, sbr. bréf yðar dags. 24. nóv. 1986. Með fullgildingu Íslands á samningi Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum var að mati Jafnréttisráðs stigið mikilvægt skref í átt til jafnréttis kvenna og karla.
Í till. þeirri til þál. sem hér er til umfjöllunar er lagt til að gerð verði úttekt á ýmsum þáttum þjóðfélagsins, hvernig þeir þættir horfa við ákvæðum samningsins. Samkvæmt lögum nr. 65/1985 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er það hlutverk Jafnréttisráðs m.a. að fylgjast með þjóðfélagsþróuninni hvað varðar stöðu kynjanna og koma með tillögur til breytinga til samræmis við tilgang laganna. Sú úttekt sem hér um ræðir er að umfangi langt umfram það sem Jafnréttisráð hefur af fjárhagsástæðum getað staðið fyrir. Ráðið telur að umrædd úttekt geti verið gagnleg til að framfylgja ákvæðum laga nr. 65/1985, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Af þeirri ástæðu er Jafnréttisráð hlynnt þáltill. enda verði ráðinu tryggðir nauðsynlegir fjármunir til verkefnisins.“ Undir bréfið ritar f.h. Jafnréttisráðs Elsa S. Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri. Þetta er bréf dags. 22. des. 1986 til félmn. sameinaðs Alþingis sem hefur þessa þáltill. til meðferðar.
Í 5. tölulið þessarar skýrslu um svokallaða framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar er vikið að félagslegum atriðum í sambandi við jafnréttismálin, aukinni menntun og atvinnuþátttöku kvenna samfara tæknivæðingu og ýmiss konar sérhæfingu, og m.a. sagt: „Þess vegna þarf að tryggja heimavinnandi maka sömu réttindi á við þá sem eru úti á vinnumarkaðinum.“ Hér er vissulega um geysilega stórt mál að ræða og eitt hið stærsta í þessu samhengi, jafnréttismálanna. Ég vil hins vegar leggja á það áherslu af minni hálfu að hér þarf að auka allar aðgerðir í þessum málum, þær þurfa að lúta að því að auka valfrelsi kvenna varðandi það efni, og raunar mega karlar vera þar líka sem fjölskyldufeður, varðandi valfrelsi um það hvort viðkomandi leitar starfa úti á vinnumarkaðinum eða er heimavinnandi. Allar aðgerðir þurfa að ganga út frá þessu að mínu mati. Það er varhugavert að grípa til aðgerða í þessu samhengi sem hægt væri að nota af stjórnvöldum og þröngsýnum aðilum vinnumarkaðar til þess að ýta konum út af vinnumarkaðinum inn á heimilin. Það yrði að vera þeirra mál. Það þurfa því að vera til staðar uppeldisstofnanir, barnaheimili og önnur nauðsynleg gæsla og aðstaða í skólum landsins til þess að konur geti tekið þátt í atvinnulífinu með eðlilegum hætti en geti einnig valið um að vera heimavinnandi og sinna þeim þýðingarmiklu störfum sem á heimilunum eru unnin, hvort sem það eru uppeldisstörf eða önnur heimilisstörf. Í sambandi við heimilisstörfin sem verða nú sérstaklega til umræðu í sambandi við annað þingmál vil ég nefna það, að einmitt það hversu fjölþætt heimilisstörf eru á að vera hvetjandi í þessu sambandi, einnig í sambandi við starfsmat og tillit sem tekið sé til heimilisstarfa varðandi starfsmat, einnig stjórnunarþáttur heimilisstarfanna. Því að hvert heimili er, má segja, fyrirtæki, það er líkt og fyrirtæki þar sem þeir sem helga sig því og fá þar reynslu safna mjög þýðingarmikilli reynslu sem getur gagnað vissulega í öðrum störfum.
Varðandi fæðingarorlof, sem hér er nefnt í sambandi við félagsleg atriði, vil ég leggja á það áherslu, og það hefði ég viljað sjá í svonefndri framkvæmdaáætlun ríkisstjórnar, að lengd fæðingarorlofs væri tvöfölduð nú þegar, lengd úr þremur mánuðum í sex mánuði strax. Það væri eitthvað sem bragð væri að, hæstv. félmrh., ef slík ákvörðun lægi fyrir í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnar, að ríkisstjórnin ætlaði að beita sér fyrir slíku, og þá sem áfangi að því marki að lengja fæðingarorlof upp í a.m.k. eitt ár sem væri ekki óeðlilegur tími, að mínu mati. Það er svo mál sem menn geta rætt út af fyrir sig hvernig að þeim málum er staðið varðandi upphæð og varðandi það hvernig slíkum greiðslum er komið til aðila í sambandi við fæðingarorlofið. En ég held að það sé a.m.k. lágmarkskrafa að grunngreiðslurnar þar séu hækkaðar. Svo er það auðvitað eðlilegt að um það sé samið sem víðast að konur haldi óskertu kaupi eða að fjölskylduaðili sem tekur fæðingarorlof haldi óskertu kaupi þann tíma sem hann nýtur fæðingarorlofs.
Það er ekki falleg aðstaða sem konum er búin sem ætla sér hlut á vinnumarkaðinum með það skamma fæðingarorlof sem hér er í gildi og þær félagslegu aðstæður sem þeim eru búnar til eðlilegrar þátttöku. Það er umhugsunarefni, hvort menn reyna að nýta sér það samviskubit sem því fylgir áreiðanlega hjá fjölda kvenna að þurfa að leita út á vinnumarkaðinn til þess að afla nauðsynlegra tekna fyrir heimilið, börn sín og heimili, en hafa í rauninni ekki til þess boðlegar aðstæður. Það hefði verið æskilegt að sjá í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar tekið á þessum málum þannig að þessi félagslegu atriði væru mörkuð í framkvæmdaáætlun en ekki bara einhverjar frómar óskir og orð á blaði þar sem innihaldið er nánast ekkert af hálfu framkvæmdavaldsins.
Ég held að líka sé mikilvægt í þessu samhengi að tryggt sé í samningum sem víðast að foreldrar geti tekið sér lengra leyfi frá störfum og gengið inn í störf eftir ákveðinn tíma, t.d. að tveimur árum liðnum, og að réttindi heimavinnandi maka séu tryggð með öllum tiltækum ráðum. Samfelldur skóladagur, sem er 3. töluliður í 5. kafla þessarar áætlunar, er eitt af þeim atriðum sem Alþb. hafði forgöngu um hér á Alþingi fyrir nokkrum árum, að ýta við framkvæmdavaldinu að taka á því máli. Það var sett niður nefnd, eftir að samþykkt hafði verið þáltill. þar sem fyrsti flm. var hygg ég hv. þm. Guðrún Helgadóttir, af menntmrn. til þess að gera úttekt á þessum málum um samfelldan skóladag, skólamáltíðir o.fl. og nál. liggur fyrir. Maður hefði viljað sjá eitthvað í framkvæmdaáætlun félmrh. sem byggði á þessari úttekt, eitthvað marktækt. En hvað lesum við hér? „Komið verði á samfelldum skóladegi fyrir öll börn í grunnskóla og máltíðir verði hægt að fá í skólum.“ Hvernig? Með hvaða hætti? Hvaða tryggingar? Í hvaða áföngum? Ekkert.
Við getum í þessu samhengi vísað til OECD-skýrslunnar um menntamálin, stöðu skólamálanna í landinu, þar sem einmitt er vikið að stöðunni að þessu leyti og því sem er sérstakt fyrir Ísland varðandi þennan rofna skóladag og langt sumarleyfi í sambandi við skólann. Það hefur svo sem lengi verið sagt og heyrst oft hér á Alþingi að markmiðið ætti að vera að hafa langt sumarleyfi og leyfa börnum þátttöku í atvinnulífinu og kynni af atvinnulífinu. En ætli möguleikarnir til þess hér á höfuðborgarsvæðinu séu t.d. miklir að veita börnum á mótunarárum þann aðgang og það uppeldi sem ástæða væri til? Ég hygg nefnilega að það þurfi að líta til þess, og ekki síst varðandi forskólann og fyrstu skólaárin, einmitt að lengja skóladaginn, ekki endilega til formlegrar kennslu heldur, eins og sagði að mig minnir í skýrslu hæstv. félmrh. sem rædd var hér í síðustu viku, til þess að skólarnir geti verið starfs- og leikvettvangur barnanna með nauðsynlegri gæslu. Hvernig ætli ástandið sé hér í henni Reykjavíkurborg að þessu leyti? Ætli séu ekki eitthvað milli 100 og 200 pláss á svokölluðum skóladagheimilum? Og hvað ætli þau séu mörg börnin sem ganga með lykil um hálsinn og hafa í rauninni enga gæslu eftir að stuttum skóladegi lýkur á meðan foreldrarnir eru úti að afla tekna fyrir heimilið? Það hefði verið bragð að því, hæstv. félmrh., að það hefðu sést hér í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar hugmyndir um það hvernig markmiðinu um samfelldan skóladag, og það sem lesa mátti í skýrslu ráðherrans um að skólarnir eigi að vera starfs- og leikvettvangur barnanna með nauðsynlegri gæslu, hvernig því ætti að ná fram, hvernig framkvæmdarvaldið ætlaði að standa að slíku. En um það er ekkert, frekar en varðandi önnur atriði, orð á blaði án nokkurrar áætlunar um það hvað þá ákvarðana hvernig að þeim skuli staðið.
Fjórði og síðasti liðurinn varðandi þessi félagslegu atriði er svo kannske kórónan á sköpunarverkinu í þessari svokölluðu framkvæmdaáætlun hæstv. ráðh., það er um dagvistun barna. Hvað skyldi standa þar?
„Ítarleg könnun fari fram á þörf fyrir dagvistarstofnanir, sbr. fyrri kannanir um sama efni. Því verði beint til sveitarfélaga og þau miði áætlanir sínar við þá könnun og þeim fjölskyldum fjölgi sem fái aðgang að dagvistarstofnunum og skóladagheimilum.“
Kannast menn nokkuð við 10 ára áætlun um uppbyggingu dagvistarstofnana sem gerð var, ekki í tíð núverandi ríkisstjórnar, fyrir allmörgum árum síðan, sem var verkefni þessarar ríkisstjórnar að standa að að framfylgja en hefur verið svikin í reynd og framlög til dagvistarmála af hálfu ríkisins skorin niður ár eftir ár og rýrnað að raungildi? Það eru efndirnar í þessum málum og síðan á að fara fram ítarleg könnun. Það er hið eina sem sagt er hér og síðan það hugsjónamál að ýta þessum málum yfir á sveitarfélögin eins og m.a. hefur heyrst frá hæstv. menntmrh., sem er sérstakur hugsjónamaður hygg ég í þeim efnum, og má vera að hæstv. félmrh. taki undir með honum að því leyti að þau miði áætlanir sínar við þetta og hitt. Ekki skal ég hafa á móti því að sveitarfélögum sé gert kleift að standa að dagvistarmálum, leggja þeim lið með öðrum og meiri hætti en nú er, en hvar eru tillögur ríkisstjórnarinnar um tekjustofna sveitarfélaga og annað sem lýtur að því að gera þeim kleift að taka á þessum málum? Það hefði verið æskilegt að sjá eitthvað af því, að vera búinn að fá eitthvað í hendurnar hér á Alþingi af marglofuðum till. og frv. í sambandi við verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og tekjustofna sveitarfélaga.
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja mikið mál mitt úr þessu þó af mörgu sé að taka þegar litið er á þennan feril núverandi stjórnar sem ég gerði að umræðuefni reyndar nokkuð þegar til umræðu var þróun jafnréttismálanna eins og hæstv. ráðh. gaf skýrslu um hér um daginn. Þessi þróun endurspeglar vaxandi misrétti í samfélaginu í heild sinni þar sem ríkisstjórnin hefur haft forgöngu um að ýta undir óheft markaðslögmál í samfélaginu sem leiða til vaxandi mismununar á einu sviðinu af öðru og sem hittir fyrir þá aðila og þá hópa í samfélaginu sem höllustum fæti standa fyrir, konur þar alveg sérstaklega sem fjölmennan hóp, en auðvitað marga aðra hópa sem þurfa á öðru samfélagi að halda en því samfélagi vaxandi auðhyggju sem þessi ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir og staðið fyrir.
Jafnrétti kynja og leiðrétting á hlut kvenna er stórt mál út af fyrir sig, en það er ekki einangrað málefni þó að eðlilegt sé að ræða það og fjalla um það í einstökum atriðum sér á parti, vegna þess að það er njörvað niður meira og minna af gömlum fordómum í samfélaginu, hefðum og fordómum sem þarf að brjóta niður og fá breytingar á fyrr en seinna. Annars eru margir þættir þessara mála samslungnir samfélagsgerðinni að öðru leyti. Hvaða áhrif skyldi það t.d. hafa í þessum málum að Íslendingar búa við eina lengstu vinnuviku sem þekkist í veröldinni, a.m.k. hinum iðnvædda heimi? Hvaða áhrif skyldi það hafa að menn þurfa að leggja á sig hér tvöfaldan vinnudag til að afla tekna og konum er sumpartinn nauðugum ýtt út á vinnumarkaðinn af þeim sökum? Og hvaða áhrif skyldi það hafa á fjölskyldulíf í landinu og félagslega aðstöðu kvenna í landinu og aðstöðu þeirra til að taka gildan þátt í þjóðlífinu, hvort sem það er inni á heimilunum, á vinnumarkaðnum eða í félagsstörfum þar sem vinnuálagið og aðrar félagslegar aðstæður kvenna eru ein grófasta hindrunin fyrir því að konur geti rétt hlut sinn og sótt fram með eðlilegum hætti og þjóðfélagið fái að njóta hæfileika þeirra svo sem eðlilegt væri?
Herra forseti. Ég hefði kosið að sjá hér ríkisstjórn og félmrh. mæla fyrir marktækri áætlun lögum samkvæmt um aðgerðir til þess að ná fram jafnrétti kynja, til að standa við lög og samþykktir í þessum efnum í stað þess plaggs sem hér hefur verið kynnt og hæstv. ráðh. hefur mælt fyrir og ég hef gert hér að umtalsefni.
Það er alveg ljóst að eins og á fleiri sviðum verða þau verk ekki unnin af núverandi ríkisstjórn og það kannske kemur engum á óvart ef litið er á feril hennar að öðru leyti í sambandi við þjóðmálin. Það verður verkefni annarra að taka á því ef þessi markmið eiga að nást fram, annarra afla í þjóðfélaginu en þeirra sem hafa staðið hér fyrir vaxandi auðhyggju í landinu og vaxandi mismunun sem ekki síst bitnar á konum þessa lands.