10.02.1987
Sameinað þing: 48. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2924 í B-deild Alþingistíðinda. (2691)

214. mál, framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég vil fyrst lýsa ánægju yfir þeirri miklu umræðu sem hefur orðið um þessi mál og þó ég geti tekið undir með hv. 10. landsk. þm. að áhuginn almennt meðal þm. virðist ekki hafa verið mjög mikill þá hefur komið upp hér sú staða að mikil og fjörug umræða hefur orðið um þessi mál og er það vel.

Ég vil fyrst segja það að ég ætla ekki að taka hér langan tíma en ég vil aðeins undirstrika það að félmrh. er með þessum skýrslum, bæði um ástand og horfur, hvernig þessi mál hafa verið að þróast undanfarið og eins með þessari framkvæmdaáætlun, aðeins að framkvæma ákvæði laga um jafnan rétt kvenna og karla og þar af leiðandi er nauðsynlegt að menn átti sig á því. Hér er verið að leggja fram fjögurra ára framkvæmdaáætlun í fyrsta sinn eftir setningu laganna frá 1985 og ég vil taka það fram að það er að sjálfsögðu gert í fullu samráði og samstarfi við Jafnréttisráð.

Vegna ummæla hv. 11. þm. Reykv., þar sem hún dró í efa það sem er tilvitnun í Jafnréttisráð, þá vil ég benda henni á V. kafla laganna en þar stendur í 13. gr.: Jafnréttisráð skal annast framkvæmd laga þessara.

Og í 15. gr.: Verkefni Jafnréttisráðs eru m.a. að vera stefnumótandi aðili í jafnréttismálum hér á landi. Skal ráðið vinna framkvæmdaáætlun til fjögurra ára í senn og leggja fyrir félmrh. Þar skal kveðið á um aðgerðir til að koma á jafnrétti kynjanna.

Hv. þm. gagnrýndi það að þetta hefði tekið alllangan tíma þar sem tekið er fram að félmrh. hefði kallað eftir fjögurra ára framkvæmdaáætlun ráðsins á s.l. ári. Ég ætla ekki að deila á Jafnréttisráð, síður en svo, ég tel að það vinni vel, enda er það samansett af þeim aðilum í þjóðfélaginu sem besta aðstöðu hafa til þess að móta stefnu sem þeir vilja láta vinna að. Og eins og fram kemur í skýrslunni þá flýtti Jafnréttisráð sinni umfjöllun um málið og ráðuneytið fékk skýrsluna í hendur á það rúmum tíma að það var hægt að leggja þessa áætlun fram fyrir jól eftir að hún var búin að vera til umræðu í ríkisstjórn. Það er sem sagt undirstrikun á því að hér er unnið nákvæmlega að mótun þessa máls eins og lögin gera ráð fyrir. Ég vil bara benda hv. þm. á í sambandi við þessi mál að lögin eru ákaflega skýr og ákveðin í þessu máli og þeir aðilar sem þarna skipa framkvæmdaráð um þessi mál eru aðilar sem er hægt að taka mark á og allir viðurkenna. Og formaður ráðsins er skipaður af Hæstarétti Íslands.

Til þess að tefja ekki tímann ætla ég ekki að fara mikið í þessi mál. Þetta er búin að vera ítarleg umræða og ég sé ekki ástæðu til þess. Það má deila um þessi mál endalaust en ég vil aðeins segja það að hér er ríkisstjórnin að leggja fram áhersluatriði í þessari stefnumörkun til fjögurra ára og ég vil undirstrika að það er ákaflega mikilvægt að á bak við þessa áætlun er einróma samþykkt ríkisstjórnar um að leggja þetta til og úrvinnslan að sjálfsögðu skiptir máli. En það var aldrei meiningin í þessari fyrstu fjögurra ára áætlun að það væri hægt að ætlast til þess að í henni væru dagsetningar um hvert atriði eins og hv. 5. þm. Austurl. vildi gjarnan að kæmi fram.

Í sambandi við þessa 14 aðila sem skiluðu áliti um framkvæmdaáætlunina, sem kemur fram í áætluninni, þá er að sjálfsögðu hægt að fá þau álit, þau eru hjá Jafnréttisráði og það er ekkert leyndarmál að sjálfsögðu.

Mér finnst það hafa komið fram hjá hv. 11. þm. Reykv. að Kvennalistakonur óttist kannanir og ýmsa leit að upplýsingum, að það sé neikvætt fyrir framgang mála. Ég held að þetta sé mjög mikill misskilningur því að hv. þm. verða náttúrlega að átta sig á því og þeir mega ekki gleyma því að aðalvettvangur ákvarðana um laun og launaréttindi í landinu er á samningsborðinu, á samningsborði aðila vinnumarkaðarins og náttúrlega opinberra aðila einnig í sambandi við opinbera starfsmenn, þannig að það er vettvangurinn sem fyrst og fremst þarf að hafa áhrif á í sambandi við þessi mikilvægu mál.

Ég tek alveg undir það að starfsmat miðað við nútímaþjóðfélag er gífurlega þýðingarmikið. Ég tek undir það og ég hef lagt hér aðra skýrslu fram, sem á eftir að ræða og koma með fleiri ákvörðunarpunkta í, í sambandi við starfsmat á heimilisstörfum og öðru slíku. Ég kem að því síðar. Ég get alveg sagt hv. 11. þm. Reykv. það að ég hef jákvæð viðhorf til þeirrar till. sem hv. þm. vitnaði í og mun að sjálfsögðu láta það koma fram.

Það sem hv. 11. þm. Reykv. gagnrýndi í skýrslunni var orðaval um það að konur gegni einhæfum störfum sem muni breytast eða jafnvel leggjast af. Þetta er tekið upp úr skýrslu nefndar, niðurstöðu nefndar sem kannaði áhrif nýrrar tækni á vinnumarkaðinum. En þar er talið að konur gegni einhæfari störfum en karlar, og að sjálfsögðu er þetta rétt, sem líklegt er að muni breytast vegna aukinnar tækni. Hvetja þeir þess vegna konur í þessari skýrslu til að leita meira í fjölhæfari störf, ekki síst í sambandi við tækniþróun sem bæði er í nútímanum og líkleg er í næstu framtíð þannig er þetta tilkomið.

Ég sé ekki ástæðu til, hv. forseti, að fara nánar ofan í þessi mál. Ég vil aðeins segja það í sambandi við fæðingarorlofið, sem hér hefur borið á góma, að áhersla hefur verið lögð á endurskoðun þeirra mála í ríkisstjórninni. Nefnd, sem hæstv. trmrh. skipaði, hefur lokið störfum og samið frv. og raðherra hefur tilkynnt að hún muni leggja það fram núna í ríkisstjórninni. Ég skal ekki segja hvert framhaldið verður en þar er stefnt að því að lengja fæðingarorlof í sex mánuði.

Af því að hv. 5. þm. Austurl. nefndi sérstaklega dagvistarstofnanir og leikskóla, þá er það mál sem hægt er að tala um að hafi kannske ekki gengið nógu langt fram miðað við ákvörðun um ríkisfjármál á undanförnum árum, en ég loka ekki fyrir það að unnið sé að því í sambandi við þær tillögur sem eru núna að verða tilbúnar í sambandi við verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, að það verkefni verði fært yfir til sveitarfélaga. Alls ekki. Mér finnst það eðlilegur vettvangur. Og það mun koma í ljós þó síðar verði.

Ég vil svo að lokum þakka fyrir umræðuna um þessar skýrslur tvær sem búið er að fjalla um, í fyrsta lagi um ástand þessara mála, sem var rædd hér áður, og svo nú um þessa fyrstu fjögurra ára framkvæmdaáætlun, en ég vænti þess að í henni sé nægilegt efni til að vinna að hér á hv. Alþingi til að ná fram þessari stöðu sem allir keppa að.