14.10.1986
Sameinað þing: 3. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

20. mál, samningur milli Íslands og Bandaríkjanna

Iðnaðarráðherra (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt með því að segja að sjálfsögðu er þessi samningur til bóta. Við höfðum góða flutninga og þjóðin hafði góðar tekjur sem voru teknar frá henni með því að ekki urðu neinir samningar til og aðrir sáu um þessa flutninga. Nú eru komnir á samningar sem hefur ekki verið auðvelt að ná. Þess vegna segi ég að samningurinn er til bóta. Hann er betri en enginn samningur. Allir samningar eru betri en engir samningar. Ég tel að árangur mikillar vinnu tveggja utanríkisráðherra, fyrrv. utanrrh. og núv. utanrrh., hafi borið góðan ávöxt, mjög góðan, því að þó að okkur sé líkt við litla mús sem öskrar vorum við að öskra á stærra dýr, við skulum segja ljón, sem ekki tístir eða mjálmar. Þetta eru menn sem eru vanir að standa í samningum um miklu erfiðari og stærri mál en hér um ræðir þegar litið er yfir veröldina alla.

En það er annað sem ég hef áhyggjur af, miklar áhyggjur, og það er sú staðreynd að á Íslandi vorum við að semja okkur frá bandarískum lögum. Við erum að semja okkur frá bandarískum lögum um herstöð sem ekki er bandarísk sem slík heldur NATO-herstöð. Og það finnst mér alvarlegt mál. Í framhaldi af þessu hef ég verið þeirrar skoðunar að það þurfi að endurskoða samskipti þessarar NATO-stöðvar og íslenskra yfirvalda.

Ég mun ekki taka undir það að segja upp varnarsamningnum. Ég held að hann sé vel gerður. En ég mun, eftir því sem ég get haft áhrif á og áður hefur komið fram hjá mér, taka þátt í ákvörðun um að endurskoða framkvæmdina á samningnum. Ég held að það sé nokkuð rétt sem ég hef haldið fram að ég tilheyri, senn hvað líður allavega, annaðhvort síðustu eða næstsíðustu kynslóð Íslendinga sem hefur þekkt Ísland án varnarliðs. Þessi langa dvöl varnarliðs hvar sem er skapar ákveðna hefð og hefðir geta, ef menn ekki halda vöku sinni, orðið lögum landsins yfirsterkari. Ég vara við þessu. Hingað til hef ég gert það fyrir daufum eyrum. Við skulum, sem viljum vestræna samvinnu, sem viljum ekki á þessu stigi að herinn fari, þó halda vöku okkar gagnvart þessum atriðum.

Ég gat ekki sætt mig við sem fjmrh. að hingað sigldu erlend skip, í staðinn fyrir íslensk skip skulum við segja, með vörur sem voru fluttar beint frá borði í herstöðina og fá svo farmskrá á dulmáli viku eða lengri tíma eftir að varan var komin af hafnarbakkanum án skoðunar á því hvað var í þeim gámum sem fluttir voru til landsins. Ég tel að við þurfum að hafa eftirlit eins og alþjóðalög gera ráð fyrir með að vörur komi hingað til landsins á farmskrám og að vörur komi hingað á farmbréfum og hljóti eðlilega tollafgreiðslu.

Það eru önnur mál, sem urðu ágreiningsmál á meðan ég var fjmrh., sem ég ætla ekki að gera hér að umræðuefni en er jafnáríðandi að könnuð séu. Ég tel ekki að við höfum unnið neinn stórsigur. Ég tel að báðir aðilar hafi unnið sigur með þessum samningum. Það fannst lausn sem við verðum að sætta okkur við. Ég hef ýmislegt að athuga við þessa lausn þó að ég meti þann árangur sem fyrrv. og núv. utanrrh. hafa náð og tel meira vit í að samþykkja þennan samning en hafna honum. Ég vil því segja: Vinnum sem samherjar í NATO með þeim sem við höfum samið við. Verum þeim ekki undirgefnir. Viðurkennum þá ekki sem herra heldur sem jafningja. Og vörumst það í framtíðinni að þurfa að semja okkur undan bandarískum lögum vegna hersetu sem er okkur og vestrænni menningu í hag að hafa hér.