28.10.1986
Sameinað þing: 8. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í B-deild Alþingistíðinda. (270)

44. mál, húsnæðismál

Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Sem svar við þessari fsp. tek ég strax fram að milliþinganefnd hefur starfað milli þinga. Hún hefur haldið samtals 24 fundi frá því hún var skipuð 11. júní 1985, þar af fjóra fundi frá því tilmæli félmn. Nd. komu fram.

Það er rétt að rifja upp að hlutverk hennar var að gera tillögur um nýtt húsnæðislánakerfi. Milliþinganefndin hefur haft til umfjöllunar drög að nál. frá því í október 1985. Margt hefur orðið til að tefja starf nefndarinnar, t.d. tók hún til sérstakrar umfjöllunar greiðsluerfiðleika íbúðareigenda og skilaði áliti um það efni 7. des. s.l.

Kjarasamningar aðila vinnumarkaðarins í febrúar 1986 röskuðu einnig starfsáætlun hennar. Á 21. fundi nefndarinnar, sem haldinn var 9. maí s.l., var samþykkt að kjósa undirnefnd þriggja manna sem fjallaði um félagslega hluta íbúðalánakerfisins. Í sumar og haust hefur undirnefndin haldið samtals átta bókaða fundi og kallað á sinn fund fjölmarga aðila sem með einum eða öðrum hætti tengjast þessum hluta opinbera íbúðalánakerfisins. Bæði er um að ræða fulltrúa aðila vinnumarkaðarins, samtaka atvinnurekenda og launafólks og margra annarra samtaka.

Í haust hefur milliþinganefndin haldið áfram að fjalla um drög að nefndaráliti. Ég vænti þess að hv. þm. skilji að það er erfitt fyrir mig að fjalla um niðurstöðu mála í einstökum atriðum fyrr en nefndin hefur skilað áliti. Mér er kunnugt um að hún hefur tekið til umræðu allflest þau atriði sem félmn. fól henni að fjalla um og formaður nefndarinnar hefur tjáð mér að stefnt sé að því að nefndin láti innan tíðar fara frá sér álit sem framhaldið yrði svo byggt á.

Hitt er annað mál að nokkur af þeim atriðum sem félmn. Nd. beindi til milliþinganefndarinnar er vart tímabært að fjalla um. Þetta gildir t.d. um áhrif nýja húsnæðislánakerfisins á félagslegar íbúðabyggingar og verkamannabústaði sem tók gildi 1. sept. s.l. Það er augljóst mál að um þetta efni er ekki hægt að segja fyrr en reynsla hefur fengist af gerbreyttum útlánareglum Byggingarsjóðs ríkisins.

Önnur atriði eru að mínu mati leyst og má í því sambandi benda á fjármögnun húsnæðislánakerfisins til frambúðar. Húsnæðislánakerfið verður í framtíðinni fjármagnað með skuldabréfakaupum lífeyrissjóðanna og framlagi úr ríkissjóði. Raunar gildir það sama um stöðu og hlutverk ráðgjafarstöðvar Húsnæðisstofnunarinnar. Við stofnun var aðalhlutverk hennar að veita aðstoð þeim íbúðaeigendum sem áttu í greiðsluerfiðleikum og frá því að Húsnæðisstofnun byrjaði að taka á móti umsóknum vegna greiðsluerfiðleika í janúar s.l. hafa ráðgjafarstöðinni borist 2206 umsóknir. Um miðjan október s.l. höfðu 2083 umsóknir verið afgreiddar og veitt hafa verið lán út á 1818 íbúðir, samtals að fjárhæð 514 millj. kr., til allt að 31 árs. Auk þessa hefur verið veitt umfangsmikil ráðgjöf vegna greiðsluerfiðleika umsækjenda og margvíslegar ráðstafanir gerðar í þeirra þágu til að forða frekari erfiðleikum, svo sem uppboðum og öðrum vandræðum, og hlutast til um viðamiklar skuldbreytingar í bönkum og sparisjóðum. Ráðgjafarstöð Húsnæðisstofnunar fær nú nýtt hlutverk. Ákveðið er að verkefni hennar verði að kanna til hlítar allar fjárfestingar- og greiðsluáætlanir sem berast til Húsnæðisstofnunarinnar með umsóknum um lán til bygginga eða kaupa á íbúðarhúsnæði.

Reglur um veð og veðhæfni íbúða er eitt þeirra atriða á verkefnaskrá félmn. Nd. sem hún óskaði eftir að milliþinganefndin fjallaði um. Í þessu sambandi vil ég aðeins benda á að hér er um afmarkað og flókið tæknilegt atriði að ræða. Það er því álitaefni hvort rétt hafi verið að fela nefnd, sem á sínum tíma var falið það umfangsmikla verkefni að setja fram tillögur um nýtt húsnæðislánakerfi, að fara í saumana á slíku viðfangsefni. En að þessu er unnið í Húsnæðisstofnuninni sjálfri.

Ég vil að lokum endurtaka að ég tel rétt að bíða eftir áliti milliþinganefndarinnar áður en ég tjái mig frekar um þetta mál. Hitt er það að ég er þeirrar skoðunar að það hafi verið rétt ákvörðun á sínum tíma að skipa sérstaka nefnd með fulltrúum allra þingflokka til að fjalla um þennan mikilvæga málaflokk. Á það má benda að samkvæmt hagskýrslum voru í árslok 1984 tæplega 30% þjóðarauðs Íslendinga bundin í íbúðarhúsnæði eða um 76,4 milljarðar kr. og síðan 1984 hefur orðið mikil aukning á þessu hlutfalli. Milliþinganefndin hefur aflað mikilvægra upplýsinga um húsnæðis- og byggingamál og hún hefur verið vettvangur skoðanaskipta milli fulltrúa þingflokkanna um þennan málaflokk. Nefndin hefur haft margvísleg óbein áhrif á þróun húsnæðismála og stuðlað að málefnalegri umræðu um þetta efni á Alþingi og í fjölmiðlum og ég vænti þess að nál. milliþinganefndarinnar muni berast mjög fljótlega.