12.02.1987
Sameinað þing: 49. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2999 í B-deild Alþingistíðinda. (2737)

302. mál, umhverfismál

Flm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt þeim Þórarni Sigurjónssyni, Stefáni Valgeirssyni, Guðmundi Bjarnasyni, Haraldi Ólafssyni, Jóni Kristjánssyni, Stefáni Guðmundssyni og Davíð Aðalsteinssyni að flytja till. til þál. um samræmda heildarstjórn umhverfismála. Hún liggur fyrir á þskj. 534. Tillgr. hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að yfirstjórn helstu þátta umhverfismála skuli sameinuð innan eins ráðuneytis. Til umhverfismála teljist mengunarmál, friðunarmál og skipulagsmál. Yfirstjórn þessa málaflokks verði í höndum sérstakrar skrifstofu innan félagsmálaráðuneytis sem eftir það nefnist umhverfis- og félagsmálaráðuneyti. Umhverfismálaskrifstofan taki við tveimur málaflokkum frá öðrum ráðuneytum: mengunarmálum, þar til heyra lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit (að hluta), lög og alþjóðasamningar um mengun sjávar, lög um eiturefni og hættuleg efni og lög um geislavarnir; friðunarmálum, þar undir heyra lög um náttúruvernd, lög um veiðar og verndun dýra, lög um eyðingu meindýra og lög um landgræðslu.

Óbein stjórn umhverfismála verði styrkt með því að koma á föstu samráði umhverfis- og félagsmálaráðuneytis og annarra ráðuneyta er fara með málefni sem snerta umhverfismál.“

Þannig hljóðar tillögugreinin, herra forseti: „Fyrir rúmum áratug var hafist handa um könnun á yfirstjórn umhverfismála í Stjórnarráði Íslands. Þann 4. mars 1975 skipaði Geir Hallgrímsson forsætisráðherra nefnd níu manna til að vinna að heildarlöggjöf um stjórn umhverfismála. Nefndin samdi frumvarp til laga um umhverfismál sem þáverandi félagsmálaráðherra lagði fyrir Alþingi vorið 1978. Á fundi ríkisstjórnarinnar hinn 18. apríl 1978 hafði verið ákveðið að félagsmálaráðuneytið skyldi fara með umhverfismál innan Stjórnarráðs Íslands. Var þessi ákvörðun tilkynnt félagsmálaráðuneytinu bréflega þann sama dag og félagsmálaráðherra þar með falið að leggja fram frumvarpið sem samið hafði verið. Frumvarpið hlaut ekki afgreiðslu á því þingi.

Það var endurflutt á Alþingi veturinn 1980-1981 og aftur á þingi 1983-1984, lítið eitt breytt. Frumvarpið hlaut þó ekki afgreiðslu fremur en í fyrstu. á árunum 1981-1982 voru samin tvö frumvörp um þetta efni en hvorugt þeirra lagt fyrir Alþingi af hlutaðeigandi ráðherra. á þessu þingi hafa Gunnar G. Schram og fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins lagt fram tillögu til þingsályktunar um stefnumótun í umhverfismálum.“

Gengur sú till. í svipaða átt eins og till. sem ég er hér að mæla fyrir þó að okkar till. gangi talsvert lengra.

Núverandi ríkisstjórn ákvað snemma á starfsferli sínum að komið skyldi á samræmdri heildarstjórn umhverfismála undir forustu félagsmálaráðherra. Var það í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnar hinn 18. apríl 1978 þess efnis að félagsmálaráðuneytið skyldi fara með umhverfismál innan Stjórnarráðs Íslands.

Hins vegar hefur ekki legið fyrir skilgreining á því hvaða málaflokkar teljist til umhverfismála. Eins og nú háttar skiptist yfirstjórn málaflokka, sem eðli málsins samkvæmt ættu að teljast til umhverfismála, milli margra ráðuneyta. Í starfi, sem fram hefur farið undir forustu félagsmálaráðherra á undanförnum missirum, hefur glögglega komið í ljós að mikillar tregðu gætir hjá einstökum ráðuneytum og stofnunum varðandi endurskipulagningu. Þrátt fyrir fyrrgreinda ákvörðun ríkisstjórnar árið 1978 um að félagsmálaráðuneytið skuli fara með umhverfismál hefur niðurstaðan orðið sú að einstakir ráðherrar hafa verið ófúsir til þess að láta nokkra málaflokka úr eigin ráðuneytum og því snúist gegn öllum tillögum félagsmálaráðherra.

Forsætisráðherra hefur því gert ítrekaðar tillögur innan ríkisstjórnar til þess að skera á hnútinn en án árangurs þar sem einstakir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa lagst eindregið gegn öllum hugmyndum til breytinga í þessu efni.

Flutningsmenn sjá sig því til þess knúna að leggja fram þessa tillögu til þingsályktunar þannig að leiða megi í ljós afstöðu þingsins til þess hvaða málaflokka telja beri til umhverfismála og hvort rétt sé talið að skipa yfirstjórn þeirra með þeim hætti sem hér er gerð tillaga um.“

Ég tel algjörlega óhjákvæmilegt að Alþingi höggvi á þennan hnút og ákveði hvernig skipun umhverfismála verði í framtíðinni. Þetta er reyndar heppilegur tími til þess að taka slíka ákvörðun nú í lok kjörtímabils þannig að hún liggi fyrir við stjórnarmyndun að kosningum loknum og þurfi þá ekki að verða tilefni til reipdráttar. Ég legg mjög ríka áherslu á það að við verðum að taka umhverfismál fastari tökum. Skipulagsleysi og sinnuleysi er orðið okkur til hins mesta vansa. Við erum svo lánsöm að umhverfi okkar er tiltölulega ómengað miðað við það sem gerist víða í heiminum en svo ört sígur á ógæfuhlið víða að við verðum að sýna stóraukna árvekni.

Ómengað og óspillt umhverfi er að verða sífellt torfundnara í veröldinni og þau lífsgæði sem í því felast að geta notið þess eru orðin mikil forréttindi. Hætturnar hrannast upp og tjónið vex. Sumt af því er sjálfskaparvíti við rányrkju um sjó og land og stundum göngum við illa um. Við höfum uppi áætlanir um að sökkva mörgum tugum ferkílómetra gróins lands undir jökulvatn og svona mætti lengi telja. Þá er hættan sem okkur stafar af umheiminum einnig geigvænleg.

Ég átti þátt í því á sínum tíma sem forseti Norðurlandaráðs að boða til fjölþjóðaráðstefnu þingmanna um loftmengun sem berst á milli landa. Þessi ráðstefna var haldin í Stokkhólmi s.l. haust og tóku þátt í henni þingmenn frá Belgíu, Frakklandi, Hollandi, Póllandi, Sviss, Sovétríkjunum, Bretlandi, Vestur-Þýskalandi, Austur-Þýskalandi, Tékkóslóvakíu, Austurríki, Danmörku, Noregi, Íslandi og Svíþjóð. Þar komu færustu vísindamenn og fluttu fyrirlestra um ástand og horfur. Þingmennirnir komust allir að sameiginlegri niðurstöðu og samþykktu ítarlega áætlun um það hvernig bæri að bregðast við vandanum. Þarna urðu að mínum dómi kaflaskil því að aldrei hafa þingmenn sumra þessara landa fyrr fengist til þess að leggja til að brugðist verði sameiginlega við slíkri vá.

Þá er mér ánægja að því að geta sagt frá því að á þingi Norðurlandaráðs sem haldið verður í Helsingfors í lok þessa mánaðar verður afgreidd tillaga sem ég hef ásamt Karen Söder, formanni Miðflokksins sænska, flutt þar sem lagt er til að Norðurlandaráð feli ráðherranefndinni að láta gera samstarfsáætlun gegn mengun hafsins og feli ríkisstjórnum Norðurlanda að vinna skipulega að því á alþjóðavettvangi að ná samkomulagi um að hrint verði af stað raunhæfum aðgerðum til verndar lífríki hafsins.

Herra forseti. Ég hef þessi orð ekki fleiri. Með vísan til mikilvægis málsins vænti ég þess að hv. félmn., en þangað geri ég tillögu um að málinu verði vísað, sjái sér fært að afgreiða till. fyrir þinglok þannig að Alþingi gefist kostur á að úrskurða í þessu máli.