28.10.1986
Sameinað þing: 8. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í B-deild Alþingistíðinda. (275)

44. mál, húsnæðismál

Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. svör hans svo langt sem þau náðu.

Það voru vissulega tíðindi sem hæstv. ráðh. upplýsti. Ef ég hef skilið mál hans rétt er ekki von á því að staðið verði við það samkomulag sem gert var 21. apríl í félmn. og sem var forsenda fyrir afstöðu margra hér á Alþingi, þori ég að fullyrða, til hinna nýju breytinga á húsnæðislögunum sem samþykktar voru.

Ég er ekki að ásaka hæstv. ráðh. sérstaklega fyrir hvernig mál standa. Það skýrðist kannske svolítið fyrir mönnum við umræðu um þessa fsp., t.d. þegar hv. 2. þm. Norðurl. e. kom upp á eftir formanni milliþinganefndarinnar og greindi frá þeirri skoðun sinni, ef ég hef skilið hann rétt, að það hefði aldrei staðið til að taka á þessum þáttum sem hann setti þó nafn sitt undir sem frsm. meiri hl. félmn. í apríl s.l. að yrðu verkefni til að skila tillögum og frv. inn á haustþingið. Þetta virðist vera staðan. Ég bið formann milliþinganefndarinnar að leiðrétta ef ég ræð rangt í mál manna að þessu leyti. Og að það eigi að bíða eftir reynslu af þessu nýja húsnæðislánakerfi með að farið sé ofan í þá mikilsverðu þætti, tíu talsins, sem stjórnarliðar skrifuðu bindandi undir í félmn., þar á meðal endurskoðun á félagslegum íbúðabyggingum, verkamannabústaðakerfi og húsnæðissamvinnufélögum og fleiru sem lýtur að félagslega íbúðakerfinu.

Ég hef lagt inn aðra fsp. til hæstv. félmrh., sem væntanlega verður svarað innan tíðar, um hvernig lán flokkist sem borist hafa til Húsnæðisstofnunar á grundvelli nýja kerfisins. Það verður fróðlegt að heyra hvað þar kemur upp úr pokanum, en ég fullyrði að fyrir landsbyggðina, þar sem hrun hefur orðið á byggingarmarkaði og í nýbyggingum vegna stefnu ríkisstjórnarinnar, er það aldeilis lífsnauðsynlegt að mótaðar verði nýjar reglur varðandi félagslegar íbúðabyggingar og marga fleiri þætti sem varða byggingamál m.a. á landsbyggðinni.

Herra forseti. Það er kannske ekki von að mikið gerist þegar ekki er fastar staðið í ístaðinu en af hæstv. félmrh. varðandi fjárveitingar til húsnæðismálanna. Ég lýk máli mínu, herra forseti, með því að vitna í eina setningu eftir hæstv. ráðh. úr Tímanum 15. okt. 1986 þar sem ráðherrann er að bregðast við niðurskurði til húsnæðismála upp á 300 millj.: „Ég vildi halda óbreyttu framlagi til þessara mála, en fjmrh. taldi að þetta yrði fullnægjandi á þennan hátt og það samþykkti ríkisstjórnin.“ Og það kemur fram í framhaldinu að ráðherrann telji þetta svo sem engin tíðindi, þetta skipti svo sem engu máli og undir það tekur framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, Sigurður E. Guðmundsson, í sama viðtali. Þetta er svo sem allt í lagi. 300 millj. út af fjármagni til húsnæðismálanna.