12.02.1987
Sameinað þing: 49. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3017 í B-deild Alþingistíðinda. (2751)

306. mál, veiting sterkra drykkja á vegum ríkisins

Flm. (Kristín Halldórsdóttir):

Herra forseti. Ég vildi mælast til þess ef hæstv. heilbrmrh. er í húsinu að henni yrði gert viðvart að þessi till. er á dagskrá.

Á þskj. 542 hef ég leyft mér að bera fram till. til þál. um afnám veitinga sterkra drykkja á vegum ríkisins. Meðflm. mínir eru hv. þm. Haraldur Ólafsson, Helgi Seljan og Karvel Pálmason. Ég vil taka það strax fram að hv. þm. Helgi Seljan mun áður hafa átt hlut að tillöguflutningi hér á Alþingi um sama efni en um það var mér reyndar ekki kunnugt þegar ég samdi till. Ég skal líka fúslega viðurkenna að hér er ekki um mjög frumlega till. að ræða því henni svipar vitanlega mjög til till. hv. 2. þm. Norðurl. v. sem ég hafði vissulega til hliðsjónar. Sú till. er á þskj. 177 og fjallar um afnám tóbaksveitinga á vegum ríkisins og opinberra stofnana og gætir þar svipaðra sjónarmiða. En till. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að sjá til þess að ekki séu veittir sterkir drykkir í veislum á vegum hins opinbera.“

Í grg. segir:

„Ávana- og fíkniefni í ýmsum myndum hafa fylgt manninum frá alda öðli og valdið margvíslegu böli. Nú síðari árin hafa áhyggjur manna og umræður einkum snúist um lyfjanotkun og neyslu ólöglegra fíkniefna og hvernig verjast megi þeim vágesti sem lagt hefur líf margra í rúst, bæði neytendanna sjálfra og aðstandenda þeirra. Víst er að miklu meira þarf að gera til hjálpar þeim sem í slíka ógæfu rata og ekki síður í fyrirbyggjandi aðgerðum því betra er heilt en vel gróið.

Hinu má svo ekki gleyma að neysla áfengis, þótt lögleg teljist, er einn mesti skaðvaldur sem við er að etja í þjóðfélaginu. Erfitt er að mæla það tjón í krónum og enn erfiðara í þjáningum. En víst er að það tjón er mikið og síst við hæfi að opinberir aðilar eigi þar hlut að máli.

Eins og fram kemur í fylgiskjali hefur ríkisstjórn Íslands samþykkt stefnuskrá Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um heilbrigði fyrir alla árið 2000. Meðal markmiða í þeirri stefnuskrá er að heildaráfengisneysla verði minnkuð um a.m.k. fjórðung fyrir þann tíma. Það er skoðun flutningsmanna þessarar tillögu að framkvæmd hennar falli vel að því markmiði.“

Í fskj. með þessari till. er bréf, opið bréf til ríkisstjórnar og alþingismanna, um heilsuvernd og nauðsyn á að draga úr heildarneyslu áfengis, sem ég ætla að leyfa mér að lesa, með leyfi hæstv. forseta. Það hljóðar svo:

„Heilsuvernd, sem byggir á hollum lífsvenjum, er grundvöllur heilbrigðis og langlífs. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lagt fram stefnuskrá þar sem bent er á markmið og leiðir til þess að stuðla að heilbrigði fyrir alla árið 2000. Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt þessa stefnuskrá. Meðal þeirra markmiða, sem stofnunin telur nauðsynlegt að ná, er að fyrir þann tíma hafi allar þjóðir minnkað heildaráfengisneyslu sína um a.m.k. fjórðung.

Ástæða þessa er sú að öll vandamál, sem tengjast áfengi, vaxa margfalt með aukinni heildarneyslu. Áfengissýkin er aðeins einn þáttur þessara vandamála. Aðrir sjúkdómar fólks á starfsaldri eiga að verulegu leyti rót sína að rekja til ofnotkunar áfengis. Sama er að segja um slys. Hvort tveggja veldur þjáningu og örorku, auknum kostnaði við heilbrigðisþjónustu og meiri dánarlíkum. Lítill vafi er á að aukin áfengisneysla á sinn þátt í vaxandi kostnaði við heilbrigðisþjónustu á undanförnum aldarfjórðungi.

Í umræðum um ólögleg vímuefni gleymist allt of oft að leggja áherslu á að áfengisnotkun er jafnan samfara notkun þeirra. Áfengisneysla er og í flestum tilvikum undanfari annarrar vímuefnanotkunar.

Félagslegar afleiðingar ofnotkunar áfengis eru ekki síður uggvænlegar og aukast einnig margfalt með vaxandi heildarneyslu. Hér má minna á vinnutap og heimilisböl ýmiss konar, s.s. hjónaskilnaði, ofbeldi á heimilum, andlegar og líkamlegar misþyrmingar á maka og börnum. Enn fremur ber að minna á hættuna sem stafar af ölvunarakstri og ýmissi annarri óábyrgri hegðun sem leiðir af því að áfengi slævir dómgreind manna. Annað og oft óviðkomandi fólk getur þannig verið í verulegri hættu.

Sérstök ástæða er til þess að minna á að samfara ölvun er tíðni tilviljunarkenndra eða óráðgerðra kynmaka mun meiri en ella. Af þessu kunna að hljótast alvarlegir sjúkdómar sem geta verið banvænir.

Með hliðsjón af framansögðu viljum við undirritaðir hér með skora á ráðherra og aðra alþingismenn að gera það sem í þeirra valdi stendur til að draga úr framboði áfengis og eftirspurn eftir því þannig að heildarnotkun þess minnki hér á landi í samræmi við markmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.“

Með mikilli virðingu skrifa hér undir: Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri, Ólafur Ólafsson landlæknir, Ásmundur Brekkan, forseti læknadeildar Háskóla Íslands, Haukur Þórðarson, formaður Læknafélags Íslands, Björn Önundarson tryggingayfirlæknir, Gunnar Þór Jónsson, prófessor í slysalækningum, Gunnlaugur Geirsson, prófessor í réttarlæknisfræði, Hjalti Þórarinsson, prófessor í handlæknisfræði, Hrafn Tulinius, prófessor í heilbrigðisfræði, Tómas Helgason, prófessor í geðlæknisfræði, Þórður Harðarson, prófessor í lyflæknisfræði og Þorkell Jóhannesson, prófessor í lyfjafræði.

Hér er um að ræða menn sem njóta trausts stjórnvalda og þjóðarinnar allrar til forustu og hinna fremstu embætta innan heilbrigðiskerfisins og Háskóla Íslands. Þetta bréf barst okkur alþm. skömmu fyrir þinghlé í desember og fór e.t.v. fram hjá sumum vegna þess annríkis sem mótar öll þingstörf á þeim tíma. Mér fannst strax sjálfsagt að bregðast við tilmælum læknanna 12 og þau viðbrögð birtast nú hér í þessari till. sem ég hef borið fram ásamt öðrum.

Þessa till. sýndi ég í öðrum þingflokkum og fékk strax jákvæðar undirtektir þeirra sem með mér eru hér á þessu þskj. Hins vegar beið ég nokkuð lengi með að leggja þessa till. fram þar sem hugmyndin var sú að allir þingflokkar ættu þar hlut að máli og það kom mér óneitanlega á óvart og olli vonbrigðum að enginn fulltrúi Sjálfstfl. skyldi treysta sér til að styðja þessa sakleysislegu till. með nafni sínu á prentuðu þskj. Ég segi sakleysislegu till. vegna þess að hér getur vart talist um byltingarkennda aðgerð að ræða, a.m.k. ekki að mínu mati. Það er ekki einu sinni lagt til að afnema allar veitingar áfengis í veislum á vegum hins opinbera, eins og einhverjum þætti sjálfsagt eðlilegt, heldur aðeins veitingar sterkra drykkja. Með því viðurkennum við gildi léttra vína þegar gera á vel við gesti í mat og drykk og sé ég reyndar ekki ástæðu til að fjölyrða um það atriði.

Hjá flestum þjóðum er neysla léttra vína eðlilegur þáttur máltíðar, sums staðar daglega, annars staðar til hátíðabrigða. Hérlendis er hið síðarnefnda frekar reglan, þ.e. að létt vín séu notuð með mat til hátíðabrigða, og mér fyndist það sjálfri jaðra við ofstæki að leggja til afnám þess í veislum á vegum hins opinbera, enda þykir mér ólíklegt að margir styddu slíkt í rauninni. Hins vegar er það mín skoðun að hver einasti gestgjafi sé fullsæmdur af sínu framlagi þótt hann láti vera að halda sterkum drykkjum að gestum sínum. E.t.v. má segja að þetta sé spurning um gott fordæmi og kannske spurning um virðingu, en ég veit að ýmsum hér á hinu háa Alþingi er annt um virðingu æðstu stofnana ríkisins og þeirra sem þar starfa.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þessa till. af minni hálfu. Ég velti svolítið vöngum yfir því í hvaða nefnd væri eðlilegast að vísa till. Það kom vissulega til álita að vísa henni til fjvn., ekki vegna þess að hér sé um fjárútlát að ræða, eins og oftast er í þeim till. sem fjvn. fjallar um, heldur vegna þess að hér er að mínum dómi tvímælalaust um sparnað að ræða og það væri óneitanlega nokkur tilbreyting að því fyrir hv. fjvn. að fjalla um slíka till. En vitanlega eru það fyrst og fremst félagsleg og heilsufarsleg sjónarmið sem hér liggja að baki og því legg ég til að till. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. félmn.