12.02.1987
Sameinað þing: 49. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3025 í B-deild Alþingistíðinda. (2756)
331. mál, markaðsaðstæður erlendis
Flm. (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. á þskj. 576 um upplýsingaöflun um markaðsaðstæður erlendis. Meðflutningsmenn mínir eru aðrar þingkonur Kvennalista, Kristín Halldórsdóttir og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, hv. þingkonur. Tillögugreinin er svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela utanrrh. að leita samninga við einhverja Norðurlandaþjóð, eina eða fleiri, um aðgang íslenskra fyrirtækja að þeim fjölbreyttu og markvissu upplýsingum sem þær bjóða fyrirtækjum landa sinna um markaði og markaðsaðstæður í einstökum þjóðlöndum.“
Þessi till. er flutt hér í annað sinn. Hún var flutt á síðasta þingi en fékk þá ekki útgönguleyfi úr nefnd. Tilefni flutningsins kemur frá Kvennalistakonu sem sjálf stundar viðskipti og hafði reynslu af því að hjá öðrum Norðurlandaþjóðum hefðu utanrrn. forgang um að afla ýmissa upplýsinga varðandi markaði erlendis. Þær væru bæði fjölbreyttar, markvissar og vandaðar og á þeim væri mikið að græða fyrir þá sem vildu koma vörum sínum á markað víða um Evrópu og annars staðar í heiminum.
Það kostar talsvert að framleiða slík gögn og safna þeim og þess vegna hugkvæmdist okkur að það gæti verið góð samnýting á þessum ágætu upplýsingum, ef hægt væri að fá aðgang að þeim hjá hinum Norðurlandaþjóðunum.
Það er flestum ljóst hve mikilvægt það er fyrir þjóðarhag Íslendinga að við eflum útflutning okkar. Markaðsöflun erlendis hefur reynst okkur erfið viðfangs og kemur þar margt til, m.a. að hún er mjög kostnaðarsöm. Það er því mikilsvert að það fé sem til markaðsöflunar er varið nýtist sem best en sé ekki eytt til markaðssvæða sem reynast síðan mjög óhentug fyrir íslenskar afurðir. á Norðurlöndum og víða meðal annarra þjóða hafa utanríkis- eða viðskiptaráðuneyti mikið safn upplýsinga um staðhætti og sérkenni ýmissa markaðssvæða. Þar koma m.a. fram mikilsverðar upplýsingar um lög og reglur er varða innflutning, skatta og tolla ásamt neysluvenjum. Upplýsingar þessar eru gjarnan gefnar út í handhægum bókum og bæklingum til hjálpar þeim fyrirtækjum sem eru að velja sér líkleg markaðssvæði.
Það þarf ekki að taka fram að slíkar upplýsingar yrðu óheyrilega dýrar ef hvert fyrirtæki fyrir sig þyrfti að afla þeirra. Eins koma þær oft í veg fyrir alvarleg og dýrkeypt mistök. Þar sem íslensk utanríkis- og viðskiptaþjónusta hefur ekki haft bolmagn til að safna og dreifa slíkum upplýsingum hérlendis enn þá þykir flm. þessarar till. skynsamlegt að leita stuðnings hjá frændþjóðum okkar þar til betur horfir í þessum efnum hérlendis.
Þessi till. kemur í raun inn á annað mál sem er mun stærra og það er mál sem komið hefur ítrekað til umræðu í hv. utanrmn. á undanförnum árum. Það er endurskipulagning utanríkisþjónustunnar að því leyti til að hún verði mun virkari í viðskiptalegu tilliti og þá sérstaklega mun virkari í markaðsöflun víða erlendis og markaðskönnun fyrir íslenskar afurðir. Þessi mál hafa verið til umræðu bæði í þjóðfélaginu og eins hér á þinginu og vil ég benda mönnum á að hér kynni að vera skref í átt til þess að kanna hvernig þeirri þróun yrði best fyrir komið.
Að lokinni umræðu um till. vil ég leggja til að henni verði vísað til hv. utanrmn.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.