16.02.1987
Efri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3033 í B-deild Alþingistíðinda. (2767)

326. mál, lögskráning sjómanna

Valdimar Indriðason:

Virðulegi forseti. Ég lýsi ánægju minni yfir því að þetta frv. skuli vera komið fram. Þetta mál var mjög rætt í öryggismálanefnd sjómanna meðan hún starfaði og var lögð rík áhersla á að þetta kæmist til framkvæmda því að þar rákum við okkur á ýmsa liði sem máttu betur fara. Mér sýnist það koma fram í þessu frv., sem er mjög ítarlega unnið, og mér virðist það taka af þau mörgu vafaatriði sem voru í þessum efnum og var orðið erfitt að búa við. Á ýmsa vegu var farið fram hjá skráningarlögunum og var nauðsynlegt að taka það fyrir. Það er svo margt, eins og hæstv. ráðh. gat um, sem þetta grípur inn á, öryggi þeirra manna sem eiga að vera skráðir í skiprúm og að allt sé eðlilega og vel frá gengið. Þess vegna vil ég með þessum fáu orðum þakka fyrir að þetta frv. er komið fram.

Frv. mun hins vegar rætt í þeirri nefnd sem ég á sæti í og ég vona að við getum hraðað afgreiðslu þess sem mest.