16.02.1987
Efri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3033 í B-deild Alþingistíðinda. (2768)

326. mál, lögskráning sjómanna

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Ég fagna því að frv. til l. um lögskráningu sjómanna er komið hér til umræðu og verður væntanlega afgreitt héðan frá þinginu áður en við förum í kosningaslaginn.

Eins og bæði kom fram í ræðu hæstv. samgrh. og hv. 3. þm. Vesturl. hafa verið þó nokkuð miklar umræður um lögskráningu sjómanna og við vitum öll, sem höfum fylgst með þeim málum, að þar hafa verið ýmsar brotalamir á á undanförnum árum og menn hafa fundið fyrir því að þarna þyrfti að gera ýmislegt til lagfæringar, enda eru þau lög sem núna eru gildandi sem grundvallarlög fyrir lögskráningu frá því 1961 og ýmislegt hefur breyst síðan þannig að það er ósköp eðlilegt að það þurfi að taka þessi lög til gagngerðrar endurskoðunar og breytinga.

Þeir ágætu menn sem ráðherra skipaði í nefnd til að undirbúa þetta frv. eru frá stéttarsamtökum sjómanna og ég geri ráð fyrir því og ég veit það reyndar að þetta frv. er vel unnið. Það kemur til umfjöllunar í þeirri nefnd sem ég á sæti í og ég veit að þar verður það vel yfirfarið undir forustu okkar ágæta formanns og við munum flýta störfum svo sem kostur er þannig að þetta frv. fái góða umfjöllun og fljóta hér í hv. deild.