16.02.1987
Efri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3034 í B-deild Alþingistíðinda. (2770)

347. mál, Útflutningslánasjóður

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Þetta frv. til l. er um breytingu á lögum nr. 47/1970, um Útflutningslánasjóð, og er nauðsynlegt að leggja það fram vegna nýrra ákvæða viðskiptabankalaga er tóku gildi á s.l. ári. Í 28. gr. viðskiptabankalaganna er sett fram það skilyrði fyrir þátttöku viðskiptabanka í félögum eða stofnunum sem þar um ræðir að eingöngu sé um aðild að ræða er takmarki ábyrgð viðskiptabankanna við framlag þeirra. Sú lagabreyting er hér lögð til varðandi Útflutningslánasjóð og takmörkun ábyrgðar stofnaðila sjóðsins er í samræmi við þetta og í raun óhjákvæmileg.

Í þessu frv. er enn fremur lagt til að gerð verði krafa um að sú ríkisstarfsemi er fer fram á vegum Útflutningslánasjóðs með takmarkaðri ábyrgð verði auðkennd á sérstakan hátt til að ljóst megi vera gagnvart þriðja aðila að hér sé um að ræða starfsemi með takmarkaða ábyrgð. Sú framsetning er ákvæði þetta byggir á er svipuð framsetningu 2. gr. laga nr. 24 frá 20. maí 1972, um heimild sveitarfélaga til stofnunar og starfrækslu atvinnu- og þjónustufyrirtækja með takmarkaðri ábyrgð, en greinin byggir á sama hátt á tilliti til þriðja manns.

Ég tel ekki þörf á að fylgja þessu frv. frekar úr hlaði með fleiri orðum og legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.