16.02.1987
Efri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3074 í B-deild Alþingistíðinda. (2785)
340. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Frú forseti. Ég fagna því hvað hér hefur komið fram í umræðunum í dag og kvöld eindreginn vilji til þess að greiða fyrir framgangi þessara mála og eindreginn stuðningur við þau meginatriði sem frv. byggja á, um breytingar á tekju- og eignarskattslöggjöfinni og um staðgreiðslu skatta, sem hér hafa verið til umræðu. Auðvitað er ekki óeðlilegt að um einstök atriði geri menn athugasemdir eða fyrirvara og jafnvel ágreining. Hitt er þó aðalatriðið að um þá meginstefnu sem hér er lögð virðist vera allvíðtæk samstaða og ég fagna yfirlýsingu formanns hv. fjh.- og viðskn. um að greiða fyrir framgangi málsins svo sem kostur er. Fjmrn. mun fyrir sitt leyti vera reiðubúið til þess að miðla þeim upplýsingum sem óskað er eftir af þess hálfu við meðferð málsins í nefnd.
Ég vil víkja að örfáum atriðum sem fram hafa komið hjá hv. þm. í umræðunum í dag og kvöld. Hv. 3. þm. Norðurl. v. gat þess að til álita kæmi að hafa tvö skatthlutföll. Hann boðaði ekki tillöguflutning þar að lútandi en taldi að sú spurning kæmi til álita. Ég er ekki þeirrar skoðunar að það eigi að hafa tvö skatthlutföll í þessu kerfi. Mikilvægt er að þær tillögur sem hér liggja fyrir mæla fyrir um mikla einföldun og eins verða menn að hafa í huga að fastur krónutölufrádráttur, persónufrádráttur, kemur hlutfallslega þeim að mestum notum sem lægstar hafa tekjurnar og býr þannig í raun og veru til stighækkandi skattþrep í þessu kerfi. Ég er þeirrar skoðunar að með þeim tillögum sem hér liggja fyrir sé að þessu leyti stuðlað að eðlilegri dreifingu og sem jafnastri dreifingu skattbyrði.
Hv. þm. taldi einnig að það væri meginágalli í frv. sem ekki væri tekið fram í þeim, þ.e. skattlagning á fyrirtækjum og breytingar á skattlagningu varðandi eignatekjur. Að þessu viku einnig nokkrir aðrir ræðumenn. Því er til að svara að sú nefnd sem unnið hefur að þessum tillögum á vegum fjmrn. hafði það verkefni einnig samkvæmt erindisbréfi að gera tillögur um breytt fyrirkomulag tekjuskattsálagningar hjá atvinnufyrirtækjum. Hún hafði það verkefni og hefur það verkefni samkvæmt erindisbréfi sínu að kanna möguleika á afnámi eða lækkun frádráttarliða á móti lækkun skatthlutfalls, þ.e. að framkvæma svipaða kerfisbreytingu gagnvart atvinnufyrirtækjum eins og hér er verið að gera gagnvart einstaklingum. Ljóst þótti hins vegar að slík kerfisbreyting tæki lengri tíma í undirbúningi. Það sama á einnig við um hugsanlega skattlagningu á fjármagnstekjur því að slík skattlagning hlýtur að haldast í hendur við áform manna um álagningu eignarskatta. Frá mínum bæjardyrum séð er ekki óeðlilegt að menn leggi meiri áherslu á skattlagningu tekna af eignum fremur en á eignirnar sjálfar. En verði slík breyting gerð hlýtur það að hafa áhrif til lækkunar á álagningu eignarskattanna. Þetta eru atriði sem áfram verður unnið að, en mín skoðun var sú að óverjandi væri að fresta þeirri réttarbót sem í þessum frv. felst fyrir launþega þó að lengri tíma tæki að fullvinna þessar tillögur að öðru leyti. Það er ástæðan fyrir því að þessi frv. eru lögð fram hér og verkinu að öðru leyti skotið á frest. Ég hygg að það hefði kostað verulega gagnrýni ef ljóst hefði verið að unnt var að koma þessum breytingum fram en þeim hefði verið skotið á frest einungis vegna þess að menn vildu fyrst ljúka tillögugerð um skattlagningu atvinnufyrirtækja áður en launþegar fengju þessa réttarbót og því eru frv. nú lögð fram.
Hv. 3. þm. Norðurl. v. vék einnig að yfirlýsingum og fyrirheitum um afnám tekjuskatts á almennum launatekjum og það kom einnig fram í ræðum nokkurra annarra talsmanna stjórnarandstöðunnar hér í kvöld að þeir teldu að á skorti að fyrirheit um þetta efni hefðu verið efnd. Nú skulu menn gæta að því hvað gert hefur verið á þessu kjörtímabili nú þegar varðandi lækkun tekjuskatta og hverjar breytingar til viðbótar eru gerðar með þeim frv. sem hér liggja fyrir til umræðu.
Einhleypingur er eftir þá kerfisbreytingu sem þessi frv. mæla fyrir um laus við tekjuskattsgreiðslur við 40 000 kr. tekjur á mánuði. Barnlaus hjón eru skattlaus að því er varðar greiðslur á tekjuskatti til ríkisins við tekjur frá 73 000 upp í 80 000 kr. á mánuði. Og hjón með tvö börn eru skattlaus við 90 000 kr. mánaðartekjur. Hjón með tvö börn, þessi venjulega fjölskylda í þjóðfélaginu er laus undan tekjuskattsgreiðslum við 90 000 kr. tekjumark. Ég fullyrði að þegar Alþingi hefur samþykkt skattalög sem kveða á um skattálagningu af þessu tagi, þá er ekki verið að leggja tekjuskatt á almennar launatekjur. Þegar fjögurra manna fjölskylda þarf ekki að greiða tekjuskatt af 90 000 kr. tekjum, þá hefur það skref verið stigið að ekki er lagður tekjuskattur á almennar launatekjur.
Hv. 3. þm. Norðurl. v. gat um hugmyndir þess efnis að leggja mætti um 1200 millj. kr. tekjuskatt, nýjan tekjuskatt, á atvinnufyrirtæki og nota þær upphæðir til þess að lækka enn frekar skattálagningu eða hækka skattleysismörk gagnvart einstaklingum. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um tillögu af þessu tagi. Að undanförnu hefur verið unnið að því fremur að lækka skatta á atvinnurekstur, m.a. hefur það verið gert í samráði við aðila vinnumarkaðarins, bæði atvinnurekendur og launþega, í því skyni að ná almennri þjóðarsátt um lausn kjarasamninga. Það hefur verið veigamikill þáttur í því að ná þeirri lausn að létta skattbyrði á atvinnufyrirtæki og ég tel að það mundi ekki stuðla að aukinni farsæld í þjóðfélaginu að auka nú um rúman milljarð skattlagningu á atvinnufyrirtæki. Raunar hygg ég að kannske ætlist hv. þm. ekki fyllilega til að þessar hugmyndir séu teknar alvarlega. Sjálfur gegndi hann um nokkurra ára skeið embætti fjmrh. og engar slíkar tillögur voru þá fluttar um breytingar af þessu tagi. Í ljósi þess geri ég ekki ráð fyrir því að þessar hugmyndir séu meintar í fullri alvöru. Ég geri ráð fyrir því að þá hefði hv. þm. notað þau ár sem hann sat í fjmrn. til þess að koma þeim hugmyndum fram ef hann hefði talið þær í raun og veru raunhæfar.
Hv. þm. vék einnig að samráði við sveitarfélög og fullyrti að ekkert samráð hefði verið haft við sveitarfélögin. Þetta er alrangt. Talsmönnum Sambands ísl. sveitarfélaga var á fundi gerð grein fyrir öllum meginhugmyndum þegar í upphafi vinnu við samningu á þessum frv. Drög að staðgreiðslufrv. voru kynnt félmrn. og rædd þar á fundi með fulltrúum Sambands ísl. sveitarfélaga og eftir þann fund bárust skriflegar athugasemdir frá formanni sambandsins. Á öðrum fundi með sömu aðilum var farið yfir athugasemdir og frv. breytt með tilliti til athugasemda í ýmsum atriðum sem þær tóku til. Ég nefni hér ákvörðun um innheimtuhlutfall og endanlegt útsvarshlutfall. Ég nefni hér að sveitarfélögin gerðu athugasemdir við innborgun inn á reikning sveitarfélaga, sameiginlegan reikning, í stað þess að nú gerir frv. ráð fyrir því að greitt sé inn á reikninga sveitarfélaga í bankastofnunum eða á póststofum. Tekið var tillit til þessara athugasemda. Innheimtuþóknun var lækkuð úr 3% í 1%. Farið var yfir allar áætlanir um útreikninga útsvars með þessum aðilum og þeim afhent yfirlit yfir skattstofna og útsvör eftir einstökum sveitarfélögum, þannig að í einu og öllu var haft hið fyllsta samráð og tekið verulegt tillit til þeirra athugasemda sem frá Sambandi ísl. sveitarfélaga komu.
Það er heldur ekki rétt að sjálfstæði sveitarfélaga sé skert með þessum frv. Ákvörðunarvald þeirra um útsvar er hið sama og í dag. Þau ákveða endanlegt útsvarshlutfall, allt að tilteknu hámarki, svo sem lög mæla fyrir um nú þegar. Þetta hlutfall, sem gert er ráð fyrir í þeirri nýju löggjöf sem hér um ræðir og fram kemur í breytingum á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, er nú lítið eitt hærra en það hefur verið. Þá er líka á það að líta að þegar tekin er upp staðgreiðsla útsvars þá er aðstaða sveitarfélaga bætt til muna því að þau fá nú verðtryggðan tekjustofn og það skiptir gífurlega miklu máli fyrir sveitarfélögin og er vafalaust mjög mikils um vert fyrir þau að fá nú útsvarið sem verðtryggðan tekjustofn sem greiddur er samtímis. Það er einnig rétt að taka fram að ríkissjóður stendur undir útsvari þar sem skattleysismörk sleppa skattgreiðendum við greiðslu til síns sveitarfélags í samræmi við ákvæði í 10. gr. frv. Þannig að í þessu efni er ekki verið að vega að minnstu sveitarfélögunum þar sem oft er um að ræða einstaklinga sem eru undir skattleysismörkum.
Hv. þm. vék að því að frv. raskaði stöðu ýmissa aðila eins og til að mynda námsmanna. Á það er að benda að námsmenn koma gjarnan til starfa á miðju ári en þeir njóta fulls persónufrádráttar í þessu nýja skattkerfi þannig að persónuafsláttur fyrir árið í heild nýtist þeim þó að þeir komi til starfa á miðju ári. Í því er fólgið verulegt hagræði, þannig að fullyrðingar af þessu tagi eru mjög vafasamar þó að ekki verði fram hjá því litið að með staðgreiðslu byrja menn almennt að greiða skatt á fyrsta starfsári í stað þess að áður byrjuðu menn að greiða skatta árið eftir. Að sama skapi koma þessar breytingar auðvitað fram við starfslok. En í engum aðalatriðum er þar um að ræða aukið óhagræði fyrir skattgreiðendur.
Frumvörpin gera ráð fyrir því að hér sé um að ræða heldur minni skattheimtu í formi tekjuskatts en áður var þó ekki sé um stórfellda lækkun að ræða og því er almennt ekki um aukna skattbyrði að ræða, heldur þvert á móti er miklu fremur að frv. leiði til minni skattbyrði þó að auðvitað geti það komi misjafnlega út, ekki síst vegna þess að verið er að taka inn ný atriði sem ekki hafa komið til skattlagningar áður.
Að því er varðar það sjónarmið hv. 3. þm. Norðurl. v. að eðlilegra hefði verið að miða við skattvísitölu að hefðbundnum hætti fremur en lánskjaravísitölu er ég ekki sammála í því efni. Það hefur reynst mjög erfitt að segja til um hver skattvísitala eigi að vera. Margra ára reynsla sýnir að tillögur um skattvísitölu í desembermánuði hafa aldrei staðist dóm reynslunnar og er langur listi aftur í tímann um tilraunir manna í þessu efni glöggt vitni þar um og því eðlilegt að miða við lánskjaravísitölu. Auðvitað hlýtur það svo að verða sjálfsagt atriði ef mikið misgengi verður á milli lánskjaravísitölu og launaþróunar að ákveða breytingar á skattfjárhæðum eða skatthlutföllum í tengslum við almenna þróun efnahagsmála, en að öðru jöfnu á lánskjaravísitalan að vera eðlilegri mælikvarði í þessu efni.
Hv. 5. landsk. þm. vék að því í upphafi ræðu sinnar að ég hefði að því er mér skildist komið heldur ómaklega fram við Alþfl. og sakað hann um að ætla að tefja framgang þessa máls. Ég vil af þessu tilefni taka sérstaklega fram að ég fagna yfirlýsingu hv. þm. og enn fremur yfirlýsingu hv. 8. þm. Reykv. þess efnis að Alþfl. vilji greiða fyrir framgangi málsins og sjá það verða að veruleika á þessu þingi. Ég fagna þessari afstöðu. En hitt er satt og rétt að ég gat ekki annað en túlkað fyrstu viðbrögð formanns Alþfl. á þann veg að ætlunin væri að koma í veg fyrir framgang málsins. Eins og menn rekur minni til kom formaður Alþfl. fram í útvarpsviðtölum og lýsti því yfir að það væri ekki hægt að koma þessum frumvörpum fram. Vinna við þau væri of skammt á veg komin. Það væru öll vandamál óleyst sem taka þyrfti afstöðu til. Þar að auki bætti formaður Alþfl. því við að hann hefði samkvæmt upplýsingum úr skattkerfinu sjálfu frá embættismanni fullgild rök fyrir því að þetta væri tæknilega ekki framkvæmanlegt. Þessi ummæli túlkaði ég á þann veg að formaður Alþfl. vildi koma í veg fyrir framgang málsins og þar að auki túlkaði ég þau á þann veg að hann væri kominn í andstöðu við ýmsa af eigin flokksmönnum, ekki síst þá sem lengi hafa staðið í fylkingarbrjósti í verkalýðshreyfingunni. Og lái mér hver sem vill þó að ég hafi túlkað þessi furðulegu ummæli á þennan veg, enda kom síðar á daginn, þegar málið var athugað, að flokksformaðurinn hafði aldrei haft samband við embættismenn í skattkerfinu, aldrei haft samband við þá sérfræðinga sem unnu að gerð frv. til að fá upplýsingar um gang verksins né heldur til þess að fá faglegt mat skattyfirvalda og embættismanna skattkerfisins á því hvort þetta var mögulegt. Það kom sem sagt í ljós að þessi fullyrðing um að hann hefði upplýsingar frá embættismanni í kerfinu hafði ekki við rök að styðjast. Var þá nema eðlilegt að mín viðbrögð væru þau að líta svo á að ætlunin væri með einhverjum sérstökum upphlaupum af þessu tagi að koma í veg fyrir að frv. næði fram að ganga? Ég hef hins vegar fundið það mjög víða að gegn þessu komu sterk viðbrögð. Ég vissi að meginþorri Alþýðuflokksmanna var annarrar skoðunar. Ég vissi það af eigin reynslu að ýmsir af helstu forustumönnum Alþfl. í verkalýðsforustunni vildu annað. Ég fagna því að það hefur verið tekið af skarið í þessu efni og Alþfl. ætlar að standa að framgangi þessara mála og ég vona að formaður Alþfl. sjái að sér eftir þetta kynlega upphlaup.
Hv. 5. landsk. þm. vék að því að hér væri ekki um heildarendurskoðun á skattkerfinu að ræða og það er satt og rétt. Ég þarf ekki að fara um það mörgum orðum. Fyrir hv. Alþingi liggur frv. um virðisaukaskatt sem er grundvallarbreyting á óbeinni skattheimtu. Sú nefnd sem unnið hefur þetta verk sem hér er til umræðu vinnur áfram að tillögum bæði að því er varðar skattlagningu á atvinnurekstur almennt og enn fremur skoðun á skattlagningu á eignatekjur og samspil slíkrar skattlagningar og eignarskatts. Hér er því mjög góður gangur á því verki að koma fram heildarendurskoðun og nýrri uppbyggingu á skattkerfinu, en svo viðamikil breyting sem hér um ræðir næst ekki fram samhliða annarri breytingu svo sem eins og á virðisaukaskattinum og því var ákveðið að þessi grundvallarbreyting, þ.e. staðgreiðslan, hefði forgang fram fyrir virðisaukaskattinn sem hlýtur að koma í beinu framhaldi af því að þetta verður að veruleika.
Að því er varðar sjálfstæða atvinnurekendur er gert ráð fyrir því að þeir staðgreiði tekjuskatt af tekjum sínum og að lágmarki miðað við þær viðmiðunarreglur sem út verða gefnar af skattstjórum.
Eðlilega hafa komið hér til umræðu þær breytingar sem ráð er fyrir gert varðandi fríðindagreiðslur. Ég tel að það hafi verið útilokað annað en að taka á því máli. Það hefur eðlilega leitt til óánægju með skattinn að sumir skattgreiðendur hafa getað tekið hluta launa sinna með þessum hætti en aðrir ekki og það hefur leitt til óréttlætis. Auðvitað verður að huga að því að í sumum tilvikum er um beinan kostnað að ræða og það er ekki ætlunin að skattleggja hann, en eigi að síður verður að takast á við þetta. Það liggja fyrir tölulegar upplýsingar um að fríðindi af þessu tagi vaxa í réttu hlutfalli við hæð launa og því liggur í augum uppi að þær breytingar hafa hér orðið á á undanförnum árum að laun hafa beinlínis verið greidd með þessum hætti í þeim tilgangi að skjóta þeim undan skatti þó að í mörgum tilvikum sé um beinan útlagðan kostnað að ræða og þá er ekki ætlunin að skattleggja launþega fyrir honum.
Hv. 11. þm. Reykv. vék að ýmsum atriðum, m.a. því að að mati hv. þm. væri um að ræða of mikla einföldun á skattkerfinu. Varhugavert væri að fækka frádráttarliðum um of. Ég er ekki sammála þessari skoðun. Ég tel það vera megingildi þeirrar breytingar sem hér fer fram að kerfið hefur verið einfaldað verulega og enn fremur að niðurstaðan skuli vera sú að hlutföllum einstakra hópa skattgreiðenda skuli eigi að síður ekki vera raskað þó að þessi mikla einföldun hafi átt sér stað.
Varðandi húsnæðisbæturnar og regluna um fyrstu íbúð sem forsendu fyrir húsnæðisbótum er það auðvitað matsatriði. Hér er verið að útdeila sömu upphæð og ríkið ver nú til þessara þarfa. Frv. gerir ráð fyrir því að þessir fjármunir verði fyrst og fremst nýttir í þágu þeirra sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Fyrri reglan nýttist augljóslega best þeim sem höfðu hæstar tekjur, höfðu efni og aðstöðu til að taka mest lán og því felst að mínu mati í þessu nýja fyrirkomulagi veruleg aðstöðujöfnun.
Ég hygg að ég hafi þá vikið að flestum þeim atriðum sem ástæða þykir til á þessu stigi máls. Eðlilega fer frv. til meðferðar í nefnd og ég veit og met það af yfirlýsingum hér að þar verða frv. tekin til rækilegrar skoðunar og ég ítreka það að fjmrn. er reiðubúið fyrir sitt leyti að aðstoða við þá vinnu með útvegun þeirra upplýsinga sem unnt er og menn óska eftir við meðferð málsins.