16.02.1987
Efri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3086 í B-deild Alþingistíðinda. (2793)

346. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 73/1980 um tekjustofna sveitarfélaga með síðari breytingum á þskj. 603.

Frv. þetta er flutt í tengslum við frv. til l. um staðgreiðslu opinberra gjalda. Við gerð kjarasamninga Alþýðusambands Íslands, Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna í desember s.l. voru skattamál til umræðu. Ríkisstjórnin gaf þá fyrirheit um að frv. um staðgreiðslu beinna skatta yrði lagt fram á því þingi sem nú situr þannig að unnt verði að taka upp staðgreiðslu beinna skatta í ársbyrjun 1988.

Frv. til l. um staðgreiðslu opinberra gjalda hefur nú verið lagt fram. Í tengslum við það er nauðsynlegt að gera nokkrar breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Meginbreytingarnar, sem lagðar eru til í þessu frv., felast í breyttu fyrirkomulagi við álagningu útsvara og við innheimtu þeirra.

Einnig þótti rétt að gera nokkrar breytingar á ákvörðunum um innheimtu aðstöðugjalda.

Í 1. gr. frv. er lögð til sú meginbreyting að stofn til álagningar útsvars verði hinn sami og tekjuskattsstofn samkvæmt lögum um tekju- og eignarskatt nr. 75/1981 með þeim breytingum sem nú hafa verið lagðar til í frv. til l. um breytingu á þeim lögum. Þessi nýi stofn samsvarar núverandi útsvarsstofni að viðbættum núverandi frádráttarliðum, skyldusparnaði, kostnaði á móti ökutækjastyrk og dagpeningum, hlunnindum, verkfæra- og hljóðfærapeningum, helmingi greiddra meðlaga og námsfrádrætti. Enn fremur hækkar stofninn um elli- og örorkulífeyri almannatrygginga. Varðandi ökutækjastyrk og dagpeninga er þó gert ráð fyrir sérstökum ákvæðum til að koma í veg fyrir að menn greiði skatt af raunverulegum kostnaði sem þeir hafa t.d. vegna notkunar bíla í þágu vinnuveitenda eða á ferðalögum vegna starfs síns.

Á árinu 1986 var útsvarsstofninn 57 milljarðar 953 millj. kr. Með þeim breytingum sem nú eru lagðar til er talið að hann hefði orðið 64 milljarðar og 737 millj. kr. Álagt útsvar 1986 var 5 milljarðar 373 millj. kr. Ef miðað er við 33,5% hækkun launa milli áranna 1985 og 1986 hefði útsvarsstofn samkvæmt hinu nýja fyrirkomulagi orðið 86 milljarðar 424 millj. kr. Útsvarið sem álagt var 1986 hefði verið um 6,22% af útsvarsstofninum í staðgreiðslunni.

Í 2. gr. frv. er gert ráð fyrir að hundraðshluti útsvara sé annars vegar lækkaður úr 11% í 7% og hins vegar úr 3% í 2% vegna barna. Þessar hlutfallstölur eru miðaðar við að þær gefi sveitarfélögunum svipaða möguleika á útsvarstekjum og þau hafa haft. Leggja ber áherslu á að útsvar verður nú verðtryggt.

Lækkun hundraðshluta útsvars stafar af tvennu. Í fyrsta lagi hækkar útsvarsstofn við að felldir eru niður ýmsir frádráttarliðir eins og ég hef áður gert grein fyrir. Í öðru lagi leiðir staðgreiðslukerfið til þess að útsvarið fylgir launabreytingum. Þrátt fyrir ákvæði um hámarksálagningu útsvara er gert ráð fyrir að sveitarfélögin hafi sömu möguleika til viðbótarálags og lækkunar og áður. Sjálfstæði sveitarfélaga og möguleikar þeirra til að ráða eigin tekjustofnum er því á engan hátt takmarkað frá því sem verið hefur.

Lagt er til í 3. gr. að félmrh. ákveði með reglugerð árlega nýtingu álagningarhlutfalls skv. 2. gr. Gert er ráð fyrir að félmrh. leiti umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga áður en reglugerð er gefin út og taki jafnframt tillit til áforma sveitarstjórna um útsvarsálagningu á komandi ári. Miðað er við að reglugerð verði gefin út fyrir 15. nóv. ár hvert vegna ákvörðunar um álagningu og innheimtu í staðgreiðslukerfi árið eftir.

Í 2. mgr. 3. gr. er lagt til að sveitarstjórn ákveði árlega við afgreiðslu fjárhagsáætlunar hvaða hundraðshluti skuli lagður á tekjur á því ári. Sú ákvörðun verður hverju sinni að vera innan hámarksákvæða skv. 2. gr. Ákvörðun skal tilkynna ríkisskattstjóra.

Efni 4. mgr. er í samræmi við 90. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 sem fjallar um fjárþröng sveitarfélaga.

4. gr. felur í sér sama efni og gildandi 24. gr. að öðru leyti en því að lagt er til að tilkynningar um lækkun útsvara berist einnig ríkisskattstjóra.

Í 5. gr. eru lagðar til breytingar til samræmis við frv. til l. um staðgreiðslu opinberra gjalda.

Í 6. gr. er lögð til sú meginbreyting að greiðsla útsvars á tekjuári verði til bráðabirgða. Endanleg álagning fer hins vegar ekki fram fyrr en eftir á. Getur því komið til endurgreiðslu síðar eða viðbótarkröfu frá sveitarsjóði þegar endanleg álagning liggur fyrir.

Í 7. gr. er lagt til að gildandi 34. gr. og 35. gr. verði felldar niður, en meginefni þessara greina kemur fram í 3. mgr. 3. gr. og í 6. gr.

Í 8. gr. er gert ráð fyrir almennum gjalddaga aðstöðugjalda. Slíkt ákvæði er ekki í núgildandi tekjustofnalögum. Ekki er heldur í lögum sérstakt ákvæði um fyrirframgreiðslu aðstöðugjalda, en sum sveitarfélög hafa þó í því sambandi beitt ákvæðum 45. gr. tekjustofnalaganna. Hér er tekið upp ákvæði um tíu gjalddaga aðstöðugjalda á ári. Heimilt er þó sveitarstjórn að ákveða einn eða tvo gjalddaga, 15. júlí og 15. október.

Í 9. gr. er kveðið á um að ákvæði 3. gr. frv. um ákvörðun innheimtuhlutfalls taki gildi 1. okt. á þessu ári, en önnur ákvæði frv. 1. jan. 1988 er staðgreiðsla opinberra gjalda hefst.

Í ákvæði til bráðabirgða eru tekin af öll tvímæli um að um ógreidd sveitarsjóðsgjöld, sem á hafa verið lögð fyrir 1. jan. 1988, skuli gilda innheimtuákvæði núgildandi laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 73 frá 27. nóv. 1980, með síðari breytingum. Sama á við um innheimtu útsvars sem á verður lagt á árinu 1988 vegna tekna á árinu 1987. Er þetta til samræmis við ákvæði frv. til l. um gildistöku laga um staðgreiðslu opinberra gjalda.

Virðulegi forseti. Ég hef þá rakið í aðalatriðum efni þess frv. sem hér er flutt.

Mér þykir rétt að nota þetta tækifæri til að gera nokkra grein fyrir þeirri endurskoðun sem undanfarið hefur staðið yfir á lögum um tekjustofna sveitarfélaga.

Gildandi lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 73/1980 eru að meginefni frá 1972, en með lögum nr. 8/1972 voru gerðar róttækar breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga. Á samráðsfundi ríkis og sveitarfélaga í desember 1984 urðu fulltrúar þessara aðila sammála um að skipuð yrði nefnd til að gera breytingar á tekjustofnalögunum. Nefnd þessi var skipuð í febrúar 1985. Í henni voru Björn Friðfinnsson, formaður stjórnar sambandsins, Elsa Kristjánsdóttir oddviti, Jón Gauti Jónsson bæjarstjóri, Jón Kristjánsson alþm., Magnús K. Guðjónsson framkvæmdastjóri, Ævar Ísberg vararíkisskattstjóri og Húnbogi Þorsteinsson skrifstofustjóri sem var formaður nefndarinnar. Nefndin lauk störfum í mars 1986 og skilaði tillögum sínum í formi draga að frv. til l. um breytingar á núgildandi tekjustofnalögum. Tillögur nefndarinnar voru kynntar á fulltrúaráðsfundi Sambands ísl. sveitarfélaga. Fundarmenn lýstu samhljóða stuðningi við meginatriði tillagnanna. Meginbreytingarnar sem lagðar voru til í tillögum nefndarinar voru: að aðstaða sveitarfélaga til álagningar fasteignaskatts verði jöfnuð, að undanþágum frá álagningu fasteignaskatta og aðstöðugjalda verði fækkað, að tekjur Jöfnunarsjóðs verði að meginhluta til ákveðið hlutfall af skatttekjum ríkissjóðs af beinum og óbeinum sköttum í stað þess að aðaltekjurnar eru nú ákveðið hlutfall af söluskatti og verðtollstekjum, að auknum hluta af tekjum Jöfnunarsjóðs verði varið til jöfnunar á tekjum sveitarfélaga, að sveitarstjórnir ákveði sjálfar álagningarprósentu útsvara, að ákvæði um mismunandi gjaldflokka aðstöðugjalda verði afnumin og hámarksálagning verði 1,3% en hver sveitarstjórn geti síðan ákveðið mismunandi gjaldflokka eftir tegund atvinnurekstrar, að tekið verði upp að nýju ákvæði um framtalsnefndir.

Frumvarpsdrögin voru send sveitarfélögum til umsagnar. Umsagnir þeirra voru yfirleitt jákvæðar, en nú í desember var unnið að því að breyta frv. litillega í samræmi við óskir sveitarfélaganna.

Eins og búið er að gera hér grein fyrir gaf ríkisstjórnin í desember s.l. fyrirheit um að frv. um staðgreiðslu beinna skatta yrði lagt fram á því þingi sem nú situr þannig að unnt verði að taka upp staðgreiðslu beinna skatta í ársbyrjun 1988. Þetta breytti að sjálfsögðu heilmiklu í sambandi við fyrirhugaðar breytingar á tekjustofnalögunum. Tekjur af útsvörum eru meira en helmingur skatttekna sveitarfélaga og staðgreiðslukerfið kallaði á verulegar breytingar varðandi álagningu og innheimtu útsvara eins og fram kemur í því frv. sem ég mæli fyrir.

Eftir að þetta kom til var um tvo kosti að velja. Annars vegar að flytja eitt frv. sem fjallaði um þær breytingar sem gera þurfti vegna staðgreiðslukerfisins og fella inn í það aðrar breytingar sem vilji væri fyrir að gera á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Hinn kosturinn var sá að breytingarnar vegna staðgreiðslufrv. væru afgreiddar sér en um aðrar breytingar á tekjustofnalögunum yrði fjallað sérstaklega. Þessi síðari kostur var valinn, m.a. með tilliti til þess hraða sem þarf að vera á afgreiðslu staðgreiðslufrv. og þeirra frv. sem því eru tengd.

Nú er unnið að því í félmrn. og í samvinnu við Samband ísl. sveitarfélaga að breyta þeim drögum að frv. sem fyrir lágu varðandi tekjustofna sveitarfélaga og þá einkum með tilliti til þeirrar róttæku breytingar sem staðgreiðslukerfið leiðir af sér.

Virðulegi forseti. Samning frv. til l. um staðgreiðslukerfi opinberra gjalda og þeirra frv. sem því eru tengd hefur tekið mjög skamman tíma. Það er því mjög nauðsynlegt að þessi frv. hljóti vandaða og ítarlega meðferð hér í þinginu. Ég leyfi mér að leggja til, virðulegi forseti, að því frv. sem ég hef hér gert grein fyrir verði vísað til 2. umr. og hv. félmn. að lokinni þessari umræðu.