16.02.1987
Efri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3091 í B-deild Alþingistíðinda. (2797)

119. mál, umferðarlög

Árni Johnsen:

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir brtt. við frv. til umferðarlaga.

Í fyrsta lagi vil ég ræða nokkuð um þá brtt. sem fjallað er um varðandi 37. gr. Þar segir að svo eigi að orðast: Utan þéttbýlis má ökuhraði ekki vera meiri en 80 km á klukkustund og 100 km á klukkustund á vegum með bundnu slitlagi. Það er gert ráð fyrir hækkun hámarkshraða í 37. gr. til samræmis við það sem nú þegar tíðkast á þjóðvegum. Það má benda á að lögregla hefur í fæstum tilvikum afskipti af bílum er aka undir 100 km hraða á klukkustund á þjóðvegum í nágrenni Reykjavíkur, svo sem á Keflavíkurvegi og veginum austur yfir fjall, þannig að þarna er komið inn atriði sem skiptir máli, en þó tel ég að það sé eðlilegt að það megi leyfa 100 km hraða á vegum með bundnu slitlagi. Það segir ekki að það eigi heldur að það megi. Það eins og annað kemur til með að vera matsatriði í þessu efni, en ég tel það nær raunveruleikanum eins og tíðkast í daglegu verklagi umferðarlögreglu og annarra lögregluþjóna sem sinna skyldum á vegum úti.

Í brtt. varðandi 3. mgr. segir að svo orðist: Ákveða má hærri hraðamörk á tilteknum vegum, þó eigi meiri en 110 km á klukkustund ef aðstæður leyfa og æskilegt er að greiða fyrir umferð, enda mælir veigamikið öryggissjónarmið eigi gegn því. Það segir þarna að það megi ákveða 110 km hraða. Það er ljóst að við lifum ekki á traktorsöld. Við lifum á tímum batnandi vega og betri ökutækja og það er æskilegt að lögin hljómi við raunveruleikann. Það er því mun eðlilegra að mínu mati að þarna sé horft fram á veginn og það sé unnt að leyfa 110 km hraða á ákveðnum leiðum sem það býður upp á.

Það má t.d. einfaldlega segja að á leiðinni frá Reykjavík og austur á Hvolsvöll er vegur sem býður upp á þennan hraða, býður tvímælalaust upp á þennan hraða, og það er auðvelt að draga úr hraða þegar farið er gegnum plássin. Það má nefna t.d. líka veginn fyrir austan Selfoss úr því að við erum á þessari leið. Þar ber við á ákveðnum kafla að oft séu hestar við veginn og á vegi og auðvitað þarf að taka tillit til ákveðinna hluta. En þessi till. gerir ráð fyrir að það sé tekið tillit til hlutanna eins og þeir eiga sér stað. Það er viðtekin venja og regla hjá lögreglunni að stöðva ekki bíla sem eru undir 100 km hraða á hinum ýmsu svokölluðu hraðbrautum með bundnu slitlagi. Og ef það er viðtekin venja hlýtur að vera eðlilegt að geta gert ráð fyrir heldur meiri hraða á ákveðnum köflum.

Í brtt. varðandi 107. gr. segir: Orðin „Hafi maður verið sviptur ökuréttindum ævilangt má þó eigi veita ökuréttindi að nýju fyrr en svipting hefur staðið í fimm ár.“ falli út. Í ákvæðum 103. gr. um sviptingu ökuréttinda er ekki sérstaklega fjallað um ævilanga sviptingu heldur er þar einungis gert ráð fyrir að við ítrekun brots er varði 1., sbr. 3. mgr. 44., gr., skuli svipting eigi vera skemur en þrjú ár. Í gildandi lögum eru ákvæði í 81. gr. um sviptingu að fullu og öllu. Virðist með frv. nú eiga að fella úr lögunum þetta refsihugtak og sýnast því ekki efni standa til að halda því inni í 107. gr.

Í annan stað er til þess að líta að þriggja ára reglan, er fram kemur í fyrra málslið 1. mgr. 107. gr. í frv., hlýtur að teljast fullnægjandi. Hafi maður ekki gerst brotlegur við umferðarlög eða t.d. áfengislög á næstu þremur árum eftir sviptingu ökuleyfis má ætla að hann hafi bætt ráð sitt og þrjú ár eru langur tími til að vera án ökuréttinda, a.m.k. fyrir þá sem þurfa á bíl að halda við störf sín. Það skiptir einnig máli í þessu sambandi, þegar borin er saman 103. og 107. gr., að þarna hljómar ekki saman og ég tel mjög auðsætt mál að þetta orðalag í 107. gr. sé hortittur og hafi fyrir misskilning ekki verið tekið út.

Notkun bifreiða er nú á tímum orðinn stór hluti daglegs lífs. Bíllinn er nauðsynlegt farartæki flestra og atvinnutæki stórs hóps. Refsing í formi ökuleyfissviptingar er órökrétt fyrst og fremst fyrir það hversu mismunandi refsingin kemur niður á mönnum. Í annan stað er það staðreynd að í stækkandi samfélagi er sífellt erfiðara að halda virku eftirliti með því að réttindasviptir aki ekki. Fjölmargir aka því eftir að hafa verið sviptir ökuleyfi. Á það einkum við á höfuðborgarsvæðinu, en í dreifðari byggðum er eðlilega minna um slíkt þar sem menn þekkjast betur.

Hér er þó ekki gengið svo langt að mæla fyrir niðurfellingu ökuleyfissviptingar heldur reynt að sporna við ofnotkun þeirrar refsingar. Ég velti því fyrir mér að það væri ástæða til að bera fram brtt. sem legði af ökuleyfissviptingar því að í raun og veru eru þær úreltar í nútímaþjóðfélagi. Það sem í rauninni stóð í vegi fyrir því að hægt væri að leggja slíka till. fram með rökum og mæla með því að í stað sviptingarinnar kæmi annaðhvort há sekt eða fangelsisvist, eins og tíðkast í nærliggjandi löndum. Í Noregi t.d. er 21 dags fangelsi við fyrsta broti, ölvun við akstur. Þetta er mismunandi. Það er heldur minna í sumum löndum, mismunandi eftir löndum. En vandkvæði í þessu efni hér á landi eins og staðan er er einfaldlega að það er ekki húspláss til að hýsa þann fjölda sem hægt er að reikna með.

Á s.l. ári voru sviptir ökuleyfi 1800 menn á Íslandi. Það er ekki nokkur lifandi leið að koma þeim í hús á einu ári. Það er staðreynd á Stór-Reykjavíkursvæðinu að stærstur hluti þeirra manna sem eru sviptir ökuleyfi um lengri eða skemmri tíma aka engu að síður. Þetta er opinbert leyndarmál. Þetta komast menn ekki upp með úti á landsbyggðinni. Þess vegna er þarna mismunun í framkvæmd refsingar sem ástæða er til að taka tillit til.

En ég árétta að setningin í 107. gr. um sviptingu ökuréttinda ævilangt er óþarfi og gengur í rauninni á skjön við þær nýjungar sem fjallað er um í 103. gr.