16.02.1987
Efri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3096 í B-deild Alþingistíðinda. (2800)

119. mál, umferðarlög

Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég hygg að hv. 5. þm. Vesturl. hafi lent í einhverjum torfærum í skilningi sínum á þessum brtt. Ég tel að brtt. feli það skýlaust í sér að torfærutæki eða torfæruhjóli má ekki aka í þéttbýli eða á stofnbrautum utan þéttbýlis. (DA: Er torfærutæki og torfæruhjól það sama?) Torfærutæki er vélknúið ökutæki sem ætlað er til fólks- eða vöruflutninga og/eða til dráttar, ýmist ætlað til aksturs á vegum jafnt sem vegleysum eða aðallega á vegleysum og er á tveimur, þremur eða fjórum hjólum og er innan við 400 kg að eigin þyngd. Þetta held ég að sé mjög skýrt. Þessum tækjum má ekki aka í þéttbýli eða á stofnbrautum utan þéttbýlis.

Hér hafa komið fram brtt. frá hv. 3. þm. Suðurl. og ég kem fyrst að umferðarhraðanum. Allshn. leggur til að umferðarhraðinn sé 80 til 90 og heimild upp í 100 km hraða þar sem bestu aðstæður eru. Hv. 3. þm. Suðurl. leggur til að umferðarhraðinn á malbikuðum vegum sé 100 km en allshn. álítur að það sé hentugast að hafa einfalda reglu í þessu. Malbikaðir vegir eru nefnilega margs konar. Þeir eru misjafnlega greiðfærir, sumir eru góðir og hægt að láta gamminn geisa á þeim, en hins vegar eru fjöldamargir vegir hér þar sem malbikið er einfalt og þeir vegir henta alls ekki til þess hraðaksturs sem hv. 3. þm. Suðurl. leggur til. Þetta eru meginrökin fyrir því að allshn. lagði ekki til hærri hámarkshraða en hér er. Þess má geta að menn hafa viljað gjalda varhug við því að það myndaðist einhver óformlegur hámarkshraði sem lægi 10 km ofan við þann hraða sem ákveðinn er í lögum. Það er hætta á því að ef hraðinn fer upp fyrir 100 km verði hraðinn í raun kannske 120-130 km á klukkustund. Ég veit að hv. 3. þm. Suðurl. getur ekið á sínum góða bíl á leiðum á Suðurlandi, sem eru margar greiðfærar, á þessum hraða, en við teljum að það sé ekki hægt að taka þetta upp sem almenna reglu um land allt.

En vegna hinnar till., um sviptingu ökuréttinda, vil ég til skýringar lesa athugasemdir frv. um 103. gr. þessara laga. Þar stendur eftirfarandi um 3. mgr.:

„3. mgr. er nýmæli. Er lagt til að ítrekað brot á 44. og 45. gr. varði a.m.k. tveggja ára ökuréttindasviptingu í stað ævilangrar sviptingar nú. Þó varði ítrekað brot á ákvæðum 1., sbr. 3. mgr. 44. gr., a.m.k. þriggja ára ökuréttindasviptingu. Endurtekið ítrekað brot varðar hins vegar ævilangri sviptingu, sbr. 2. mgr. 102. gr. frv.“

Í 102. gr. stendur: „Réttindasvipting skal vera um ákveðinn tíma og eigi skemur en einn mánuð eða ævilangt ef sakir eru miklar eða brot er ítrekað öðru sinni.“

Nefndin litur svo á að meðan ekki er tekið upp nýtt kerfi í þessum efnum sé tilefni þessarar sakar svo alvarlegt, ítrekaður ölvunarakstur og að keyra ítrekað ölvaður, það sé ekki ástæða til þess að slaka á í þessum efnum nema þá að annað kerfi sé tekið upp varðandi refsingar, en það er ekki lagt til í þessu frv. Ég fyrir mína parta get því ekki stutt þessar brtt. hv. 3. þm. Suðurl., en einstakir nefndarmenn aðrir hafa óbundnar hendur að því leyti vegna þess að í nál. voru almennir fyrirvarar.