28.10.1986
Sameinað þing: 8. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (281)
47. mál, almenningsbókasöfn
Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svarið, en heldur þótti mér það snubbótt. Í núverandi lögum um almenningsbókasöfn nr. 50 frá 1976 segir svo um markmið þeirra, með leyfi forseta:
„Allar byggðir landsins skulu njóta þjónustu almenningsbókasafna svo sem nánar er kveðið á um í lögum þessum. Almenningsbókasöfn eru mennta-, upplýsinga- og tómstundastofnun fyrir almenning. Þau skulu gefa fólki sem bestan kost á að lesa og færa sér í nyt bækur og veita afnot af nýsigögnum, svo sem hljómplötum, segulböndum og öðrum miðlunargögnum til fræðslu og dægradvalar“.
Sú stefnumörkun sem hér kemur fram er í fullu samræmi við yfirlýsingu UNESCO um hlutverk almenningsbókasafna.
Nú er alveg ljóst að flest sveitarfélög landsins eru gersamlega vanmáttug til að veita til bókasafnanna því fé sem þarf til þess að þau nálgist það markmið sem þeim er sett.
Nú hafa menn um langt skeið lýst ótta sínum um að bókin sem slík hljóti að fara halloka í baráttunni við nýja fjölmiðla, að börnin hætti að lesa, en verði í stað þess algerlega háð hinu myndræna efni o.s.frv. Óttist menn þessa þróun má ástand almenningsbókasafna ekki vera eins og það er nú þar sem segja má að einungis á þéttbýlustu svæðunum sé nokkur mynd á þjónustu almenningsbókasafna.
Þá vil ég leiðrétta hæstv. ráðh. eða skýra fullyrðingu mína. Með þeirri skýrslu og þeim tillögum sem ráðuneytinu barst fylgdi bréf. Það er ég með í höndunum og er það sannarlega dagsett, hæstv. ráðh., 12. okt. 1983 og undirskrifað þá. En það er algjört aukaatriði.
Hitt er meira áhyggjuefni að ég veit ekki alveg hvort hæstv. ráðh. trúir því sjálfur að hann beri fram frv. til nýrra laga um almenningsbókasöfn á þessu þingi þar sem skýrar er kveðið á um verkaskipti ríkis og sveitarfélaga varðandi rekstur bókasafna. Mér hefur verið tjáð að allar líkur séu á að enn verði skipuð ný nefnd. Ég hlýt að spyrja hæstv. ráðh. hvort einhver fótur sé fyrir því og þá hvers vegna sú nefnd komi til starfa ofan á þær nýtanlegu tillögur sem lágu fyrir frá hinni upphaflegu nefnd svo að þingið fái að vita í raun og veru hvort þess megi vænta að nýtt frumvarp verði lagt fram. En ég vona það og treysti því að hæstv. núverandi menntmrh. beiti sér fyrir því að Íslendingar eignist almenningsbókasöfn sem starfi í samræmi við yfirlýsta stefnu UNESCO um þjónustu almenningsbókasafna.