17.02.1987
Sameinað þing: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3135 í B-deild Alþingistíðinda. (2828)
Fyrirspurn um stuðnings- og sérkennslu
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Af því að svo vel vill til að hæstv. menntmrh. er staddur hér í fyrirspurnatíma í Sþ. vil ég að athuguðu máli gera hér athugasemd við og gagnrýna svar sem mér hefur verið sent af forseta Sþ. við fsp. minni til hæstv. menntmrh. um stuðnings- og sérkennslu á þskj. 319. Ég fer fram á það við hæstv. forseta að hann kanni hvort hæstv. menntmrh. geti ekki látið athuga þetta mál að nýju með það í huga að vinna svarið upp á nýtt þannig að það gefi gleggri og réttari mynd og réttari upplýsingar um það sem að var spurt. Mér sýnist, og það kemur fram á þskj. 319, að ráðuneytið hafi með bréfi til fræðslustjóranna, þar sem aflað var upplýsinga í tengslum við þetta mál, þrengt allnokkuð að svarmöguleikum fræðslustjóranna og mér er kunnugt um að sumir þeirra a.m.k. hafa kvartað yfir því.
E.t.v. hefði fyrirspyrjandi, sá sem hér talar, getað spurt þannig að svörin yrðu sjálfkrafa meira sundurliðuð, en í því tilfelli að eitthvað orkar tvímælis um hvernig ætti að svara hefði mér þótt eðlilegra að ráðuneytið hefði valið þann kost að sundurliða frekar meira en minna svörin þannig að sem mestar upplýsingar mættu fást í svarinu.
Í töflu 11 í þskj. 319 eru beinlínis villandi upplýsingar og framsetning talna er þar með þeim hætti að hún gefur villandi mynd af því þjónustustigi sérkennslunnar og stuðningskennslunnar sem er í hinum einstöku fræðsluumdæmum. Þetta hafa fjölmargir málsaðilar sem þessu eru kunnugir, svo sem fræðsluskrifstofur, svæðisstjórnir um málefni fatlaðra og fleiri slíkir aðilar, bent á og ég sé mér ekki annað fært, virðulegur forseti, en að gera þessar athugasemdir, bera fram þessa ósk um að svarið verði unnið upp á nýtt. Í öllu falli tel ég óhjákvæmilegt að þingtíðindin geymi formleg mótmæli við þessu svari þannig að það sé ekki ómótmælt að hér sé ekki um réttar og óyggjandi upplýsingar að ræða.
Nú er það svo að hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir hefur ásamt fleiri þm. borið fram beiðni um skýrslu um stöðu sérkennslunnar og framkvæmd reglugerðar um sérkennslu nr. 270 frá 1977. Þess þá heldur ætti hinu virðulega ráðuneyti menntamála að vera það í lófa lagið að vinna upp á nýtt upplýsingar um þessi efni og koma þeim á framfæri. Ég fer sérstaklega fram á að komi það í ljós við þá vinnslu að svarið á þskj. 319 gefi villandi mynd af þjónustustiginu, þ.e. hinni raunverulegu þjónustu sem hvert fræðsluumdæmi nýtur á þessu sviði, verði það prentað upp á nýtt með réttum upplýsingum.