17.02.1987
Sameinað þing: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3136 í B-deild Alþingistíðinda. (2830)
Fyrirspurn um stuðnings- og sérkennslu
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég þakka fyrir að þessi umræða er hér hafin utan dagskrár vegna þess að það hefur komið fyrir aftur og aftur að þm. hafa fengið hér skriflegt svar við fyrirspurnum sem er ekki fullnægjandi eða gallað að mati þm. En það er mjög erfitt hins vegar að fara fram á leiðréttingu. Það er í raun og veru enginn formlegur vegur til þess nema með endurfluttri fsp. Ég hef borið fram fyrr á þessu þingi fsp. til hæstv. menntmrh. með beiðni um skriflegt svar um fjölda dagvistarheimila og barnaheimilisplássa í landinu. Ég hef sömuleiðis borið fram fsp. til hæstv. landbrh. um breytingar á verðlagi landbúnaðarafurða frá 1. des. s.l. með beiðni um skriflegt svar. Í báðum tilvikunum var um að ræða ófullnægjandi svör að mínu mati eða ég hefði a.m.k. viljað ræða svörin nánar. En eins og þingsköpin eru nú er í raun og veru erfitt að sjá hvaða leið þm. eiga að fara til að knýja á um skýrari svör. Ég tek þess vegna undir þá ósk hv. 4. þm. Norðurl. e. að hæstv. forseti hlutist til um að á þessum málum verði ráðin bót svo sem kostur er.