17.02.1987
Sameinað þing: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3146 í B-deild Alþingistíðinda. (2845)

343. mál, kennsla í útvegsfræðum við Háskóla Íslands

Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):

Herra forseti. Ég fagna þeim umræðum sem hafa orðið um þessa fsp. og ég vil taka það fram að vitanlega er málið ekki leyst með því að mennta einungis á háskólastigi, það er svo langt í frá. Og vitanlega styðjum við aukna verkmenntun og menntun á öllum skólastigum og verkstigum í sjávarútvegi. Til að undirstrika það bendi ég hæstv. ráðh. og öðrum á að Kvennalistinn á einmitt aðild að þessari till. til þál. sem nú er flutt í annað sinn á þessu kjörtímabili og við höfum ævinlega stutt alla viðleitni til þess að auka menntun meðal þeirra sem vinna í sjávarútvegi. En það er annað að mennta fólk til að verka fisk og til þess að skipuleggja rekstur á matvælaiðnaðargrein og það þarf að sinna því á öllum stigum. Ekkert stigið er merkilegra en annað. Þau eru öll nauðsynleg og þau eru samhangandi. Þess vegna verður að sinna þeim öllum.