17.02.1987
Sameinað þing: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3146 í B-deild Alþingistíðinda. (2846)

267. mál, lausafjárkaup

Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Fyrir nokkrum vikum lagði ég fram fsp. til hæstv. viðskrh. um endurskoðun á lögum um lausafjárkaup. Lögin um lausafjárkaup eru einn af hornsteinum þeirra laga sem snúa að neytendum hér á landi og málefni neytenda hefur satt að segja ekki mjög oft borið á góma hér í þinginu í vetur og ekki á undanförnum árum. Þó hefur það gerst nokkrum sinnum, t.d. með frv. til l. um afborgunarkaup sem ég flutti hér ásamt hv. þm. Jóni Magnússyni og einnig með tillögu um hækkun á framlagi til Neytendasamtakanna sem ég flutti hér í tengslum við afgreiðslu fjárlaga. Lögin um lausafjárkaup eru mjög mikilvægur þáttur þessa máls og þess vegna hef ég leyft mér að leggja fyrir hæstv. viðskrh. þessa fsp.:

„Hvað líður endurskoðun laga um lausafjárkaup?"