17.02.1987
Sameinað þing: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3147 í B-deild Alþingistíðinda. (2847)

267. mál, lausafjárkaup

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Viðskrh. fékk prófessor Arnljót Björnsson til að hafa umsjón með athugun vinnuhóps á vegum ráðuneytisins á því hvort nauðsynlegt væri að endurskoða lög um lausafjárkaup, en þau eru nr. 39 frá 1922, einkum með tilliti til endurskoðunar á lögum um þetta efni á öðrum Norðurlöndum. Eftir að hafa fylgst náið með hinu samnorræna starfi var ákveðið að bíða eftir niðurstöðu þeirrar endurskoðunar áður en frekari ákvarðanir yrðu teknar um endurskoðun laganna hér á landi. Hin samnorræna nefnd skilaði tillögum sínum en þær hafa verið umdeildar mjög. Á grundvelli þeirra er ætlunin að semja lagafrumvörp en skv. upplýsingum sendiráða Íslands á Norðurlöndum hefur slíkt frv. einungis komið fram í Finnlandi og því er útilokað að gera sér nokkra grein fyrir stöðu tillagnanna að svo stöddu en telja verður það afar mikilvægt fyrir framhald endurskoðunar á lögum okkar.

Auk þess að tekið verði mið af framvindu endurskoðunar annarra Norðurlanda er jafnframt afar brýnt að hugað verði að nauðsynlegri endurskoðun á löggjöf okkar er staðið gæti í vegi fyrir endurskoðun á lögum um lausafjárkaup. Í því sambandi vil ég vísa til álitsgerðar prófessors Arnljóts Björnssonar vegna hugmynda um endurskoðun 54. gr. 1. nr. 39 frá 1922, sbr. og nál. fjh.- og viðskn. á 107. löggjafarþingi, 329. mál. Í álitsgerð Arnljóts kemur fram að nauðsynlegt sé að taka til endurskoðunar ákvæði fyrningarlaga áður en endurskoðun á lögum um lausafjárkaup geti farið fram hér á landi og sé í raun og veru tímabær. En endurskoðun fyrningarlaga heyrir undir dómsmrn.

Af þessu svari sést að það hefur verið fylgst mjög náið með starfi hinnar samnorrænu nefndar og sömuleiðis með því hvernig málum miðar áfram á hinum Norðurlöndunum en að ráði þessara sérfræðinga er talið rétt að bíða enn um sinn með endanlega samningu á frv. til l. um lausafjárkaup.