17.02.1987
Sameinað þing: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3152 í B-deild Alþingistíðinda. (2854)
323. mál, Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins
Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að spyrja sjútvrh. tveggja spurninga:
„1. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar varðandi framtíð Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins?
2. Er fyrirhugað að leggja sjóðinn niður eða er stefnt að því að beita verðjöfnun á útflutning á óunnum fiski?"
Ég tel að Verðjöfnunarsjóður hafi haft mikið gildi á sínum tíma. Hann var reyndar stofnaður 1969. Aðstæður allar hafa breyst síðustu 20 árin. Hins vegar hefur sjóðnum lítið verið breytt. Það vakna ýmsar spurningar, t.d. hvort fiskmarkaðir, m.ö.o. frjálst fiskverð, og verðjöfnunarsjóðir séu samrýmanleg. Verðjöfnun á þorski skiptir mestu máli. Raunar nær sjóðurinn aðeins til um 40% af þorskaflanum, þ.e. þess hluta þorskaflans sem er saltaður. Ísfiskur, sem nú er 13% af þorskaflanum, er alfarið utan sjóðsins og frystingin hefur verið óvirk gagnvart sjóðnum allar götur frá 1981. Reyndar hefur verðhækkun á frystum afurðum orðið mjög veruleg, en afkoma frystingarinnar þrátt fyrir það hefur ekki leyft greiðslur í sjóðinn.
Ég er með dæmi hér um hvernig þetta getur virkað, gjaldtaka Verðjöfnunarsjóðs. Það er of langt að rekja það í stuttum fyrirspurnatíma, en niðurstaða þess segir merkilega sögu.
Í dæminu er fjallað um tandurfisk sem seldur er til Spánar og Portúgals. Á grundvelli dæmisins er reiknað með 10 kr. greiðslu í Verðjöfnunarsjóð pr. kg, en til framleiðenda 111 kr. pr. kg. Þá er gert ráð fyrir í næsta dæmi að Spánverjar fallist á 15% hækkun þar sem skortur væri hugsanlega á þeirra markaði. Með fyrri viðmiðun plús þessi 15% yrðu áhrif verðhækkunarinnar þau að greiðsla í Verðjöfnunarsjóð hækkaði um 65% en greiðslan til framleiðandans hækkaði um aðeins 6%. Ekki er vafi á því að þessar aðferðir geta latt menn til þess að afla sér betri markaða, hærra verðs. Hagnaðurinn er svo óverulegur og rennur að stórum hluta í Verðjöfnunarsjóð.
Á fiskiþingi í haust var samþykkt tillaga með miklum meiri hluta atkvæða þess efnis að verðjöfnun tæki til allra útfluttra sjávarafurða, þar á meðal ísfisks. Að öðrum kosti verði Verðjöfnunarsjóðurinn lagður niður. Ástæða er til að slíkar samþykktir séu gerðar, enda er um hróplega mismunun að ræða. Auk saltfisksins má benda á rækjuútflutning. Greitt er í Verðjöfnunarsjóð af unninni rækju, en ekki af óunninni rækju, sem freistar manna og hefur freistað manna að flytja út mikið magn af óunninni rækju til þess að komast hjá verðjöfnun. En ég spyr þeirra spurninga sem ég hef þegar tilgreint.