17.02.1987
Sameinað þing: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3157 í B-deild Alþingistíðinda. (2864)

327. mál, Landhelgisgæslan

Guðmundur Bjarnason:

Herra forseti. Mér þykir tilhlýðilegt að nota mér þann rétt að gera stutta athugasemd þar sem ég er formaður þessarar umræddu landhelgisnefndar. Eins og kom fram í svari hæstv. dómsmrh. hefur reyndar nefndin allan þennan tíma verið að störfum með allmiklum hléum þó, en þýðir þó það að hún hefur ekki lagt upp laupana ef svo má orða það. Við höfum hist öðru hverju og við höfum farið yfir ýmis efni sem Gæsluna varða og við höfum skilað frá okkur tveimur áfangaskýrslum.

Í fyrri skýrslunni var greint frá ýmsum brýnustu þörfum Gæslunnar, en þar varðaði auðvitað mestu hvað fjárveitingavaldið vildi gera til að styrkja stöðu hennar. Það var spurning um að veita fjármagni til þess að takast á við ýmis verkefni sem brýn voru. Því miður hefur það ekki gengið eftir sem skyldi og öll árin síðan hafa menn verið að leggja til og berja á nánast sömu þáttum og sömu þörfum fyrir Gæsluna til þess að hún hefði möguleika á að sinna sínum verkefnum eins og menn telja æskilegt.

Eins og fram kom í svari hæstv. ráðh. erum við með drög tilbúin nánast á borði hjá okkur. Nefndin hélt fund núna nýlega, fjallaði þá m.a. um þau nýju viðhorf sem uppi hafa verið eða umræður um björgunarmál og hugsanlega stjórnstöð vegna leitar og björgunarstarfa.

Ég vildi aðeins láta koma fram að við höfum verið að fjalla um þessi mál og í þessum drögum að lokaskýrslu er fjallað um m.a. hlutverk Gæslunnar og nauðsynlegan tækjabúnað til að gegna því hlutverki, um mannahald og þar eru einnig drög að nýju lagafrv. fyrir Gæsluna. Ég vonast til þess að okkur takist að ljúka þessu nefndarstarfi á næstu vikum.