17.02.1987
Sameinað þing: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3162 í B-deild Alþingistíðinda. (2872)

335. mál, iðnráðgjöf í landshlutunum

Iðnaðarráðherra (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Ég hef ekkert annað svar við þeirri fsp. sem hér er borin fram af hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni en það að frv. hefur verið lagt fram, frv. til l. um iðnráðgjöf, á þskj. 609. Eins og kom fram hjá honum mun það verða tekið á dagskrá líklega á morgun í efri deild Alþingis. Efnislega ætla ég ekki að ræða þetta frv., en það er rétt hjá honum að framlagningu þess nú endurskoðuðu var flýtt vegna fsp. þegar hún kom fram.