18.02.1987
Efri deild: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3218 í B-deild Alþingistíðinda. (2900)
351. mál, þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu
Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):
Virðulegi forseti. Þetta frv. er flutt af því að það láðist við afgreiðslu fjárlaga að taka þessa leiðréttingu með, en frv. er til þess flutt að hækka skattleysismörk vegna þessarar skattheimtu og er gert ráð fyrir 23% hækkun skattleysismarkanna. Þetta er nauðsynlegt til þess að þessi skattur hækki ekki sem því nemur.
Ég legg svo til, virðulegi forseti, að þessu máli verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. Hv. menntmn. er víst hinn venjulegi farvegur þessa máls, en í þessu falli held ég að ég leggi til fjh.- og viðskn.