28.10.1986
Sameinað þing: 8. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í B-deild Alþingistíðinda. (295)

76. mál, Skógrækt ríkisins

Fyrirspyrjandi (Magdalena Margrét Sigurðardóttir):

Herra forseti. Ég ber fram fsp. til landbrh. um starfsemi Skógræktar ríkisins. Í 1. gr. laga um Skógrækt ríkisins segir:

„Skógrækt ríkisins skal rekin með því markmiði að vernda, friða og rækta skógarleifar sem eru í landinu, að græða upp nýja skóga þar sem henta þykir, að leiðbeina um meðferð skóga og kjarrs og annað það sem að skógrækt lýtur. Til þess að ná þessum markmiðum starfa skógræktarstjóri og skógarverðir.“

Skógrækt ríkisins starfrækir á nokkrum stöðum á landinu ræktunarstöðvar. Það er augljóst að slík starfsemi er mikil lyftistöng fyrir allt ræktunarstarf í þeim landshluta og sú þekking sem þar er nýtist langt út fyrir viðkomandi gróðrarstöðvar. Aðrir landshlutar eru nær algerlega án þjónustu þessarar stofnunar. Þannig er t.d. á Vestfjörðum að þrátt

fyrir að þar séu 21% þess landsvæðis sem birkikjarr vex á hér á landi er ekki nema mjög lítið af starfsemi Skógræktar ríkisins þar.

Þar sem skógrækt er ekki lengur áhugamál fáeinna sérvitringa heldur vænleg búgrein er mikils um vert að landkostir til skógræktar séu með vísindalegum hætti og ræktunarmöguleikar kannaðir um land allt. Þess vegna spyr ég hæstv. landbrh.:

„1. Hvernig skiptist fjármagn Skógræktar ríkisins á milli kjördæma?

2. Hve margir skógarverðir eru starfandi hjá Skógrækt ríkisins og hve margir starfa í hverju kjördæmi?"