28.10.1986
Sameinað þing: 8. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í B-deild Alþingistíðinda. (296)

76. mál, Skógrækt ríkisins

Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):

Herra forseti. Fsp. hv. 2. þm. Vestf. voru sendar til Skógræktar ríkisins og óskað eftir upplýsingum þaðan. Við fyrri fsp. kemur það svar að rekstrardeildir Skógræktar ríkisins séu ekki skipulagðar eftir kjördæmum nema að nokkru leyti a.m.k. og fyrir því sé ekki hægt að svara spurningunni nákvæmlega.

Hins vegar er gefin upp sundurliðuð áætlun fyrir árið 1986 með skiptingu á rekstrardeildir. Hún er þannig að á Suðvesturlandi, sem nær yfir Reykjanes og einnig Þingvallasvæðið, eru brúttóútgjöld áætluð 1 millj. 473 þús. kr. Síðan kemur gróðrarstöð á Grundarhóli í Kollafirði. Hennar útgjöld eru áætluð 3 millj. 531 þús. kr. Þriðja svæðið er Borgarfjarðarsýsla. Þar eru útgjöldin áætluð 3 millj. 627 þús. kr. Þá eru saman Vesturland norðan Hvítár og Vestfirðir og þar eru áætluð útgjöld 3 millj. 610 þús. kr. Norðurland vestra: 1 millj. 164 þús. kr. Norðurland eystra: 6 millj. 35 þús. kr. Austurland: 10 millj. 373 þús. kr. Þar af eru eigin tekjur reyndar 5 millj. 410 þús. kr. Þær eru mismunandi miklar á einstökum svæðum. Síðan eru Tumastaðir, gróðrarstöð: 5 millj. 195 þús. kr. Þar af eru eigin tekjur 3 millj. 430 þús. kr. Suðurland fyrir utan Tumastaði og Þingvallasvæðið: 6 millj. 75 þús. kr. Að lokum er Haukadalssvæðið á Suðurlandi sér með 3 millj. 144 þús. kr. Svo er kostnaður aðalskrifstofu og rannsóknarstöðva og er þá miðað við að þær starfi fyrir landið allt. Það eru 13 millj. 175 þús. kr. Alls eru brúttóútgjöld Skógræktar ríkisins áætluð 57 millj. 404 þús. kr. Eigin tekjur 21 millj. 237 þús. kr. en ríkisframlagið 36 millj. 167 þús. kr.

Við annarri spurningunni um skógarverði er það svar að sá telst skógarvörður sem er yfir hverri rekstrardeild utan aðalskrifstofu, rannsóknastöðvar og Haukadalssvæðisins, en deildarstjóri á aðalskrifstofu sér um rekstur Haukadals eins og skógarvörður mundi gera. Skógarverðir eru níu með starfsheiti og þeir eru á þeim svæðum sem ég gat um. Það eru Suðvesturlandssvæðið, Gróðrarstöðin í Kollafirði, Borgarfjarðarsýsla, Vesturland norðan Hvítár og Vestfirðir, Norðurl. v., Norðurl. e., Austurland, Tumastaðir og Suðurland að öðru leyti.

Ég vil taka undir það með hv. fyrirspyrjanda að það er að sjálfsögðu nauðsynlegt að nýta landkosti til skógræktar. Þar hefur verið unnið undirbúnings starf, með þeirri úttekt sem fram kemur í drögum að landnýtingaráætlun, þar sem eru dregin upp á kort þau svæði sem talin eru líklegust til skógræktar. Síðan eru áform hjá Skógræktinni að útfæra nánar þessa áætlun á næstu árum með sérstakri úttekt, þannig að þá mundi það liggja betur fyrir sem fram kom í máli fyrirspyrjanda hvað þá væri mikið af Vestfjörðum sem væri talið æskilegt og hagkvæmt til skógræktar.