23.02.1987
Efri deild: 42. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3279 í B-deild Alþingistíðinda. (2980)

209. mál, sjómannadagur

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Það hefur komið fram hér í ræðum hv. þm. um þetta mál að það var samkomulag í sjútvn. um að standa að sameiginlegu nál. um frv. til l. um sjómannadag. Það byggðist fyrst og fremst á því að við vorum öll sammála um að stuðla að því svo sem kostur væri að löggilding sjómannadagsins sem frídags næði fram að ganga á þessu þingi. Það var nokkur meiningarmunur um vissa hluti í frv., en menn lögðu það til hliðar og töldu æskilegra að þó að menn væru ekki að öllu leyti ánægðir með frv. eða ákvæði þess væri um svo mikinn vinning að ræða að það mætti ekki tefja málið á einhverjum deilum um það sem mætti frekar kalla aukaatriði.

Eins og frsm., hv. 3. þm. Vesturl., benti á eru 49 ár í vor síðan sjómannadagur fyrst var haldinn hátíðlegur og það hefur verið samfellt síðan. Þess vegna líta menn á það sem vissa afmælisgjöf til sjómanna frá hv. Alþingi að löggilda sjómannadaginn á þessu þingi þannig að það sé klárt á 50 ára afmælinu að hér sé um löggildan frídag sjómanna að ræða. Við vorum öll sammála um þá breytingu sem var gerð á 1. gr. frv., þ.e. að breyta tillögum frv. um að sjómannadagurinn yrði haldinn hátíðlegur helgina eftir hvítasunnu þegar fyrsta sunnudag í júní ber upp á hvítasunnu en færa það frekar fram. Það mætti segja að þar hafi verið farið eftir almannarómi í sjávarþorpunum um að það væri æskilegra að vera með þetta frekar á undan en færa það aftur. Það gat þá jafnvel færst alla leið aftur til 14. júní þannig að það væri komið mjög nálægt 17. júní, auk þess sem mönnum fannst komið heldur langt inn í sumarið til hátíðahalda á þennan hátt.

Ég ætla ekki að lýsa andstöðu minni við breytingarnar á 2. gr., en það sem þar er breytt má kannske segja að hafi verið samkomulagsatriði. Að vissu leyti fannst mér þó óþarfi að breyta þarna um tíma, mætti ekki miða við kl. 12 aðfaranótt laugardags, en því var breytt í kl. 12 á laugardegi.

Um aðra þætti breytinga á þeirri grein varð fullt samkomulag, um það að ferjur milli lands og eyja væru undanþegnar þessum ákvæðum á þeim rökum sem formaður nefndarinnar tíundaði áðan. Svo eru talin upp strandferðaskip og sanddæluskip sem skulu halda höfn á þeim stað þar sem þau eru stödd á sjómannadag. Ég lít svo á að t.d. skip eins og Akraborg falli undir skilgreininguna strandferðaskip og þar af leiðandi sé óþarfi að telja upp í þessari upptalningu einnig ferjur.

Fulltrúar Sjómannasambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands komu og lögðu sínar tillögur fyrir nefndina sem voru allar á þann veg að breyta þessu nokkuð til frekari hagsbóta fyrir sjómenn, taka ákveðnar á t.d. í sambandi við Landhelgisgæsluna í 3. gr. Einnig voru þeir með tillögur um að breyta 4. gr. á þann veg sem hér er gert. Nefndin varð sammála um að fallast á tillögur sjómanna, bæði Sjómannasambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambandsins, um að binda ákvæðið um það að Hafrannsóknastofnun skuli skipuleggja sína hafrannsóknaleiðangra þannig að hafrannsóknaskipin geti verið í sínum heimahöfnum á sjómannadag.

Þá kemur að því sem minn fyrirvari er fyrst og fremst um í sambandi við samþykkt frv. Það er 3. mgr. 5. gr., um hin frávíkjanlegu ákvæði um hvenær fiskiskip þurfi ekki að koma til hafnar. Ég er alveg andvígur því að það sé ástæða til að gera þessa frávikningarreglu og síst af öllu til að þjóna stórtogaraútgerðarfyrirtækjum sem eiga vitaskuld mikið auðveldara með að skipuleggja að skip skuli vera í höfn á sjómannadag en þau útgerðarfélög sem reka kannske ekki nema eitt skip eða fiskvinnslustöð sem rekur ekki nema eitt skip. Það er hér látið undan kröfum þeirra Grandamanna og Útgerðarfélags Akureyringa um að þessir hlutir séu frávíkjanlegir og á sama máta er verið að gera þeim skipum sem ætla sér að sigla með ferskan fisk til sölu erlendis þessa hluti léttari með því að kveða svo á að þessi skip hafi einhverja sérstaka undanþágu frá að vera í höfn á sjómannadegi. Mér finnst þetta vera af hinu verra um væntanleg lög og ýti frekar undir að einhverjir skipstjórar og útgerðarmenn hyllist til þess í kringum sjómannadag að láta skip sín sigla á erlendan markað og það kalli á að í kringum sjómannadag verði atvinnuleysi í þessu eða hinu frystihúsinu. Ég legg því til að þetta ákvæði 5. gr. verði fellt og mun greiða atkvæði á þann máta.

Að lokum vænti ég þess að þetta mál eigi fljóta leið í gegnum deildina og að hv. þm. Nd. tryggi fyrir sitt leyti að það verði að lögum á þessu þingi.