23.02.1987
Efri deild: 42. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3313 í B-deild Alþingistíðinda. (3003)

359. mál, stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka Íslands

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Ég segi fyrir mitt leyti að ég hefði ekkert haft á móti því þó að yfirstjórn Búnaðarbankans hefði mótmælt þessu því að þetta er ríkisbanki sem samfélagið á og sem alþm. fyrst og fremst ráða yfir ef breytingu á að gera á honum en ekki bankastjórarnir. Að því leyti erum við algerlega sammála.

Hins vegar kom fram ályktun starfsfólksins. Að vísu talaði ekki allt starfsfólkið við mig, en það komu æðimargir og þar var mikill ágreiningur.

Vitaskuld hefði mátt þess vegna sameina bankana og segja við starfsfólkið: Þið sem eruð svona á móti því verðið bara að fara. Það hlýtur að vera hægt að ráða nýja. En svo koma líka ýmsir aðrir og þar á meðal menn sem eiga sæti á hinu háa Alþingi sem elska mikið bankann sinn og töldu þetta alveg hræðilegt. Ef ég hefði mátt ráða þessu einn og Alþingi hefði viljað gefa mér umboð til þess, sem það hefði aldrei gert, hefði þetta mál tekið allt aðra stefnu. En því var ekki að heilsa. Það er eins og ég sagði hér áðan: Þetta vandamál er ekki eingöngu innan stjórnarflokkanna. Þetta vandamál er víðast hvar innan stjórnmálaflokkanna og er búið að vera, eins og ég sagði áðan, í rúma tvo áratugi og hefur ekki verið auðleyst og verður ekki. Ég vek enn á ný athygli á því sem ég sagði frá í framsöguræðunni að nú er maður að koma á samstarfi á milli tveggja banka og auka það. Það er auðvitað gert með það fyrir augum að auka skyldur Búnaðarbankans til atvinnulífsins. Þessi nefnd verður skipuð næstu daga. Það er ekki komin tilnefning frá einum aðila enn þá. Hún sest strax niður til að vinna og hún þarf að hafa hraðar hendur varðandi þó nokkuð mörg atvinnufyrirtæki og hagræðingu í fjölda útibúa.