23.02.1987
Efri deild: 42. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3314 í B-deild Alþingistíðinda. (3004)
359. mál, stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka Íslands
Stefán Benediktsson:
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans til mín þó að ég búist ekki við því að hann reynist sannspár í því að kalla mig 4. þm. Austurl. Ég þóttist samt skilja á máli hans að hann væri að tala þar til mín. (Samgrh.: Það er nú auðvelt að leiðrétta þetta.)
Hvað viðkemur eftirlaunamálunum veit hæstv. ráðh. að upphæðir hafa verið nefndar í þessu máli, en það er eins og eftir því sem á þá umræðu leið hafi menn sífellt hræðst meira þær tölur sem þeir voru að nefna. Það að menn eru gersamlega orðnir klumsa gagnvart þessu eftirlaunamáli gefur visst tilefni til gruns um að þessar upphæðir séu enn þá hrikalegri en menn höfðu ætlað. Þegar ég talaði um eftirlaun bankastjóra var ég ekki að tala um þær greiðslur sem ætti eftir að greiða til þeirra það sem eftir væri af þeirra ævi heldur var ég að tala um það á ársgrundvelli svo að ekkert færi á milli mála.
Það kemur í ljós að greinin sem viðkemur skuldbindingum þessa nýja banka til ráðningar þess starfsfólks sem þegar er fyrir í bankanum er í raun og veru meira sýndarmál en alvara þar sem þar er enginn aðili bundinn strax að lokinni þeirri endurráðningu frekar en hver vill þannig að það verður eftir sem áður samningsatriði milli starfsmannafélags og viðkomandi yfirvalda bankans hvernig úr rætist fyrir starfsfólki.
En seinustu upplýsingar í þessu máli, sem komu fram núna rétt áðan, eru æðiskondnar. Í dag var verið að ræða um frv. til kosningalaga. Þetta frv. hefur má segja þá eiginleika hvað kjósendur varðar að þeir gætu þess vegna allt að eins verið að stinga atkvæðinu sínu í bréfakörfuna vegna þess að þeir hafa ekki hugmynd um hvað þetta atkvæði gerir í kosningum. Þegar þeir greiða atkvæði vita þeir ekkert hvaða áhrif þeir eru að hafa á stjórnmál á Íslandi. Ráðherra lýsti eiginlega enn þá skondnari mynd af lýðræði í landinu. Við sitjum hér á löggjafarþingi sem fulltrúar þjóðarinnar og ráðum m.a., eins og ráðherra lýsti, yfir bönkunum í umboði þjóðarinnar. En lýðræðið er samt sem áður svo skrýtið að stjórn Starfsmannafélags Búnaðarbankans og Stefán Valgeirsson í sameiningu komu í veg fyrir að hægt væri að fara þá leið sem flestir töldu skynsamlegasta í þessu, þ.e. sameina Útvegsbanka og Búnaðarbanka. Það var upplýst undir rós, án þess að nefna nöfn, að samanlagt hafa líklega innan við tíu manns raunverulega komið í veg fyrir að þessi kaup banka væru sameinuð. Við hérna 60 á þingi höfum ekkert að segja í þessum málum að því er virðist þó við eigum að vera fulltrúar þjóðarinnar sem á þennan banka. Það er rétt eins og manni sé hreint og beint varnað inngöngu í þær stofnanir sem við eigum síðan, þegar hrikta tekur í, að bera ábyrgð á og gjalda fyrir ef illa er farið með vald okkar.
Ég vil ekki trúa því að þetta sé svona. Ég tek undir orð hv. 11. þm. Reykv. að jafnskörulegur maður og hæstv. ráðh. er getur ekki látið það spyrjast um sig að hann láti innan við tíu manns koma í veg fyrir að hann framkvæmi það í þessu máli sem hans hugur stendur til. Ég trúi því ekki að Stefán Valgeirsson og stjórn Starfsmannafélags Búnaðarbankans hafi meiri áhrif á stjórn þessa lands en hæstv. viðskrh.