23.02.1987
Neðri deild: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3328 í B-deild Alþingistíðinda. (3015)

119. mál, umferðarlög

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Það er vel að þetta frv. skuli komið hér til hv. deildar frá Ed. og gæti verið von til þess að ráðrúm reyndist til að afgreiða þetta mál fyrir þinglok. Ég a.m.k. mun styðja það og greiða fyrir því en það eru nokkur atriði sem ég vil nefna á þessu stigi máls, örfá atriði í rauninni því að af mörgu væri að taka ef farið væri að ræða um álitamál í sambandi við þetta frv.

Ég vík fyrst að ökuhraðanum samkvæmt 37. gr. eins og frv. liggur fyrir frá hv. Ed. og raunar er það óbreytt að því er varðar 1. mgr. varðandi ökuhraða í þéttbýli, óbreytt frá upphaflegu frv. eins og það var lagt fyrir þingið. Þar segir: „Í þéttbýli má ökuhraði ekki vera meiri en 50 km á klst.“

Ég er nokkuð undrandi yfir því að þetta skuli vera sett hér fram með svo fortakslausum hætti, og ég skil það svo að þau ákvæði sem síðar eru upp talin í greininni í 3. mgr., um hærri hraðamörk á tilteknum vegum, varði ekki ökuhraða innan þéttbýlis. Þann skilning hef ég fengið staðfestan af fulltrúum í umferðarlaganefndinni og allshn. Ed. Ég tel að þetta ákvæði sé of þröngt varðandi ökuhraða í þéttbýli, þó svo að ég telji að 50 km ökuhraði á klst. innan þéttbýlis sé almennt séð eðlileg regla og víða auðvitað lægri ökuhraði samkvæmt reglum sem setja þarf. Jafnfráleitt tel ég að hafa þetta hámark bundið með þeim hætti sem lagt er til, 50 km á klst., og tel ég raunar að ekki þurfi annað en að vísa til aðalumferðaræða innan þéttbýlis eins og t.d. hér innan höfuðborgarinnar og hvaða þýðingu það hefur að geta haft þarna hærri mörk þar sem það getur verið fullkomlega að skaðlausu án þess að tefla umferðaröryggi í hættu. Ég tel miklu frekar að þessi þröngu takmörk sem þarna eru nefnd séu varhugaverð, svo undantekningarlaust sem þau eru fram sett samkvæmt frv. eins og það liggur fyrir og var lagt fyrir Alþingi.

Varðandi ökuhraða að öðru leyti ætla ég ekki að lýsa sérstökum skoðunum á því. Ég sé að það hafa verið gerðar breytingar og ég styð þær breytingar sem fram hafa komið, en að öðru leyti verður þetta mál til meðferðar hér í nefnd og ég áskil mér rétt til þess að athuga það frekar.

Þá eru það torfærutækin sem hafa verið tekin inn í frv. eftir að það var upphaflega lagt fram og ég vek í fyrsta lagi athygli á því að það er ósamræmi í skilgreiningum eins og málið kemur frá hv. Ed. Í 2. gr., þar sem skilgreind eru hugtök, er talað um torfærutæki, en skv. 41. gr., yfirskrift, er talað um bifhjól og torfæruhjól. Það er ekki fullt samræmi þarna á milli og ég vil vekja athygli á því.

Í 55. gr. er vikið nánar að torfærutækjum og segir þar, með leyfi forseta: „Enginn má stjórna vélsleða eða torfærutæki nema hann sé fullra 16 ára og hafi gilt ökuskírteini til þess eða ökuskírteini til að mega stjórna öðru vélknúnu ökutæki.“ Í 63. gr.er vikið aftur að torfærutæki þar sem segir: „Áður en bifreið, bifhjól, torfærutæki, vélsleði eða dráttarvél er tekin í notkun skal ökutækið skráð og skráningarmerki sett á það.“ Svo segir í 2. mgr. 63. gr.: „Dómsmálaráðherra getur ákveðið að eigi þurfi að skrá ökutæki sem nær eingöngu er notað utan opinberra vega. Skal þá kveða á um það svæði þar sem nota má ökutækið.“

Þetta er varðandi torfærutækin, þau ákvæði sem ég hef rekist á í frv. Það er út af fyrir sig sjálfsagt mál að setja í lög heimildir og fyrirmæli um slík tæki og kröfur sem gerðar séu til ökumanna þeirra. En ég tel í rauninni að þarna þurfi miklu fortakslausari ákvæði inn í umferðarlög varðandi þessi tæki.

Til hvers eru torfærutæki ætluð? Eru þau ætluð til að aka erfiðar vegslóðir, erfiðar slóðir utan alfaraleiða? Nú kveður á um það í náttúruverndarlögum að það megi eigi aka utan merktra vega og slóða. Það er ákvæði í sérlögum, náttúruverndarlögunum, um þetta efni. Ég hef þau hér ekki fyrir framan mig en efnislega er það á þessa leið. En nú vitum við að þessu ákvæði hefur verið slælega framfylgt og eftirlit verið takmarkað í þessu efni og ýmsir aðilar hafa stundað það, m.a. aðilar sem fást við rannsóknir á landinu og ýmsu sem snertir nýtingu þess, þar á meðal í sambandi við orkumál, hafa ekki fylgt þessum ákvæðum og það er mjög miður og það hef ég gagnrýnt og geri enn. Nú eru komin til sögunnar ný tæki, ný tryllitæki, sem svo mætti nefna, svokölluð torfæruhjól, og ég spyr hæstv. ráðh., falla þau undir þessi torfærutæki, torfæruhjólin, fjórhjólin? Falla þau undir þessar skilgreiningar hér? Og ég spyr hæstv. ráðh.: Er innflutningur þessara tækja samkvæmt gildandi lögum? (Forseti: Hv. ræðumaður hefur áhuga á að hæstv. ráðh. fylgist með máli.)

Ég var að beina fsp. til hæstv. samgrh. í sambandi við umferðarmálin og ég var ekki viss um að ráðherrann legði við hlustir. Það snertir torfærutækin og sérstaklega torfæruhjólin, fjórhjólin, sem eru flutt til landsins og upplýst hefur verið að séu hátt á þriðja hundrað, að ég hygg, og farið er að nota utan vega, til að fara um landið utan vega og merktra slóða, upp á fjöll og um holt og móa. Ég spyr hæstv. ráðh.: Er innflutningur þessara fjórhjóla heimill samkvæmt gildandi lögum? Og það gæti verið spurning til hæstv. viðskrh. í leiðinni. Er þetta heimilt og eru einhverjar reglur um þessi fjórhjól í gildi? Og hyggst ráðherrann ekki taka á þessu máli í sambandi við innflutning á þessum tækjum? Ég held í rauninni að það þurfi að skoða það í fullri alvöru hvort það sé eðlilegt að heimila innflutning á tækjum sem þessum, sem eru sérstaklega til þess ætluð að ganga gegn gildandi lögum um akstur í landinu, til þess að fara um landið utan vega með þeim áhrifum sem það hefur á viðkvæma náttúru landsins, gróðurfar, og ógróið land. Mér finnst a.m.k. að það sé skylt að fara alveg sérstaklega ofan í saumana á þessu máli áður en heimildir verða veittar varðandi það og einnig þá í krafti þeirra ákvæða sem hugmyndir eru um að setja í lög um skráningarskyldu varðandi þessi tæki.

Það er áreiðanlega allra hugur að halda landinu í sem bestu ástandi og þá verða menn að taka tillit til þess upp á hvað er verið að bjóða í þessum efnum. Þegar farið er að framleiða tæki sem sérstaklega eru til þess fallin að ganga gegn gildandi reglum og lögum og hafa í rauninni ekkert gildi nema þeim sé beitt með þeim hætti hlýtur það að vera mikið umhugsunarefni. Ég held að löggjafinn þurfi að horfa til þess í sambandi við jafnt framleiðslu hér innanlands á ákveðnum þáttum og eins innflutning á varningi að ekki sé misboðið í rauninni reglum sem í gildi eru samkvæmt sérlögum. Og ég get nefnt sem dæmi þó að það varði ekki þetta mál: Það er innflutningur á öli eða gosdrykkjum í dósum úr varanlegu efni sem menga mjög umhverfið. Ýmsar þjóðir hafa gripið til reglna að þessu leyti og ég held að við þurfum að horfa til þess og alveg sérstaklega í sambandi við þessa löggjöf varðandi torfærutækin.

Þá er það að lokum varðandi Umferðarráð skv. 113. og 114. gr. Það er raunar varðandi 114. gr., varðandi tilnefningu og skipan í Umferðarráð. Þar eru margir aðilar kallaðir sem er verið að tilnefna og ráðherra síðan að skipa fulltrúa í ráðið en það eru ekki þeir aðilar sem eiga að fylgjast með umgengni við náttúru landsins. Ég sé engan slíkan aðila í rauninni sem hefði það öðrum fremur sem verkefni að fylgjast með að lög og reglur að þessu leyti séu virtar og mér finnst einkennilegt að inn í þennan langa lista af fulltrúum sem eiga að tilnefna í þetta ráð skuli ekki vera aðili eins og Náttúruverndarráð sem á þó lögum samkvæmt að fylgjast með því að ekki sé ekið utan merktra vega og akslóða. Ég kem því þeim ábendingum á framfæri við nefndina sem fær þetta mál að sérstaklega sé hugað að þessu efni.

Herra forseti. Ég hef aðeins gert að umræðuefni í rauninni þrjá þætti varðandi þetta stóra mál. Ég gæti að lokum nefnt spurninguna um bílbeltin sem mjög hefur verið til umræðu hér fyrir þinginu. Fyrir nokkrum árum lágu tillögur um það að skylda notkun bílbelta og spurningin um sektun í því sambandi hlýtur að vera ofarlega í huga manna. Ég held að bílbeltin hafi sýnt og sannað gildi sitt til að draga úr slysum í umferðinni og mér finnst í rauninni óeðlilegt að það sé ekki gert ráð fyrir ekki aðeins að það sé lögboðið að hafa slík öryggistæki í bifreiðum, heldur finnst mér einnig til athugunar að það séu ákvæði til þess að heimila sektir ef gegn þeim er brotið.

Ég læt þetta nægja, herra forseti, en vænti að hæstv. ráðh. geti vikið aðeins að því sem ég beindi til hans um torfærutækin.