23.02.1987
Neðri deild: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3335 í B-deild Alþingistíðinda. (3017)
119. mál, umferðarlög
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Hér áðan var ég að beina fsp. til ráðherra sem ekki hefur kvatt sér hljóðs í umræðunni. Hæstv. dómsmrh. var ekki viðstaddur og hann ber nú aðalábyrgð á þessu máli, en hæstv. samgrh. og viðskrh. var viðlátinn og ég leyfði mér að bera fsp. fram við hann sem hann hefur ekki séð ástæðu til að svara.
Ég vil þá koma á framfæri við hæstv. dómsmrh. fsp. minni varðandi torfærutækin og benda honum í fyrsta lagi á að ekki er fullt samræmi í þessu máli eins og það er fyrir lagt varðandi skilgreiningar. Annars vegar skv. 2. gr. torfærutæki og hins vegar yfirskrift 41. gr. bifhjól og torfæruhjól. En það er nú kannske ekki meginatriðið heldur ætla ég að inna hæstv. dómsmrh. eftir því hvort hann sé ásáttur með að inn í landið er verið að flytja torfærutæki í formi fjórhjóla og sjálfsagt af fleiri gerðum sem engin skráningarskylda er á samkvæmt gildandi lögum og í rauninni engin heimild til notkunar á eins og ég skil gildandi lagaákvæði. Jafnframt liggur það fyrir að þessi tæki eru fyrst og fremst til þess ætluð að aka utan vega og slóða og böðlast yfir holt og móa og jafnvel upp á fjöll, á auðu landi. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. hvort hann telji það við hæfi að innflutningur slíkra tækja sé heimilaður og hvaða ráðstafanir hann hafi gert í því sambandi varðandi innflutning á þessum tækjum. Ég tel það vera mikið ábyrgðarmál að heimila slíkan innflutning. Það er öllum ljóst að í rauninni er með beinum hætti verið að ýta undir brot á náttúruverndarlögum með slíkum innflutningi. Víða er tekið á þeim málum þannig að innflutningur og framleiðsla á slíkum tækjum er ekki heimiluð sem og á öðrum varningi sem brýtur gegn almennum ákvæðum laga.
Mér finnst nauðsynlegt að á þessu máli sé tekið í sambandi við umferðarlögin, endurskoðun þeirra, og þætti gott að heyra hér álit hæstv. dómsrh. á þessu. Ég bendi jafnframt á, sem ég ekki gerði í ræðu minni áðan, að í skilgreiningu á torfærutækjum skv. 2. gr. eins og hún liggur hér fyrir segir:
„Torfærutæki:
Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til fólks- eða vöruflutninga og/eða til dráttar, ýmist ætlað til aksturs á vegum jafnt sem vegleysum eða aðallega á vegleysum og er á tveimur, þremur eða fjórum hjólum og er innan við 400 kg að eigin þyngd.“
„Ýmist ætlað til aksturs á vegum jafnt sem vegleysum eða aðallega á vegleysum.“ - Hvað er verið að lögleiða hér? Er verið að færa hér í lög orðalag sem stríðir gegn ákvæðum náttúruverndarlaga um það að ekki megi aka utan merktra vega og vegslóða? Hvaða augum lítur hæstv. ráðh. á þetta? Nú er málið vissulega í meðförum þingsins og þetta var ekki inni í frv. eins og ríkisstjórnin lagði það fyrir, en er það virkilega ásetningur þingsins að fara að lögheimila slík tæki og akstur sem gengur þvert á náttúruverndarlögin? Ég vil ekki trúa því.
Ég vil minna hv. formann allshn. alveg sérstaklega á þetta atriði, hann er því miður ekki í þingsal, en ég vænti að það nái eyrum hans að hér er um mál að ræða sem ég hvet allshn. sérstaklega til þess að athuga jafnframt því að mér finnst alveg sjálfsagt að í Umferðarráði eigi Náttúruverndarráð fulltrúa.