24.02.1987
Sameinað þing: 54. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3339 í B-deild Alþingistíðinda. (3026)

309. mál, fangelsismál

Fyrirspyrjandi (Kristín S. Kvaran):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram spurningar til hæstv. dómsmrh. á þskj. 546. Þessar spurningar varða annars vegar það hvað kostar ríkissjóð að halda úti þeim fangelsum sínum sem tiltæk eru og er þá bæði tekið til beinn rekstrarkostnaður og svo það sem snýr að föngunum, svo sem fæðiskostnaður og laun starfsmanna.

Þá er einnig spurt um hvað gert sé ráð fyrir að þörfin fyrir fangelsisrými verði áætluð mikil á næstu árum.

Það er mikilsvert fyrir allan almenning að fá skýr svör við þessum spurningum og að þau liggi fyrir og séu tiltæk á hverjum tíma. Umræða um afbrotamál í þjóðfélaginu er með þeim hætti að stefnumörkun stjórnvalda er nauðsynleg þannig að ekki fari á milli mála t.d. hvað átt er við með afplánun. Ég tel t.d. ekki að afplánun sem kemur til framkvæmda að 3-4 árum liðnum eftir að afbrotið var framið nái á neinn hátt tilgangi sínum. Ég rökstyð það með því að í millitíðinni er viðkomandi hugsanlega búinn að eignast fjölskyldu og búinn að leggja nótt við dag til að koma sér og sínum upp húsnæði og er með miklar fjárskuldbindingar á herðunum. Þá kemur kallið og hann verður að fara í fangelsi til að taka út dóm fyrir afbrot sem framið var fyrir 3-4 árum. Það segir sig sjálft að öll tilvera þessarar fjölskyldu og allra vandamanna hrynur og allt útlit fyrir að viðkomandi lendi í hringiðu afbrota á nýjan leik, nokkuð sem honum hafði e.t.v. tekist að koma sér út úr.

Ég tel að það sé mjög mikils virði að þannig verði staðið að þessum málaflokki í framtíðinni að stefnumörkun gangi til þeirrar áttar að afplánun, í hverju formi sem henni er ætlað að vera, komi um leið og dómsúrskurður liggur fyrir. Ég vonast þess vegna eftir að fá skýr svör frá hæstv. dómsmrh.