24.02.1987
Sameinað þing: 54. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3340 í B-deild Alþingistíðinda. (3027)
309. mál, fangelsismál
Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):
Herra forseti. Á þskj. 546 hefur hv. 1. landsk. þm. beint til mín nokkrum spurningum um fangelsismál.
Fyrst er spurt hver sé heildarkostnaður ríkissjóðs við fangelsismál 1983, 1984, 1985. Í þeim tölum sem fara á eftir er tekinn saman heildarkostnaður við fangelsismál samkvæmt ríkisreikningi fyrir viðkomandi ár að meðtöldum kostnaði við skilorðseftirlit ríkisins, fangavarðaskóla og framlag til félagasamtakanna Verndar. Á Akureyri er í tengslum við lögreglustöðina rekin fangelsisdeild fyrir allt að sex fanga. Kostnaður vegna hennar er ekki meðtalinn þar sem hann er í ríkisreikningi ekki aðskilinn frá öðrum löggæslukostnaði á Akureyri.
Í fyrstu spurningunni er óskað eftir upplýsingum um hvernig kostnaður við fangelsismál skiptist í a) rekstrar- og húsnæðiskostnað og b) laun fangavarða, fæði og annað. Í svari mínu mun ég styðjast við þá sundurgreiningu sem ríkisreikningur byggir á, þ.e. heildarkostnaður fyrir hvert ár og honum skipt í laun og annan starfsmannakostnað, ýmis rekstrargjöld, annar kostnaður og sértekjur til frádráttar.
Árið 1983 var heildarkostnaður ríkissjóðs vegna fangelsismála 45 millj. 115 þús. kr. Launakostnaður var 30 millj. 840 þús. kr., rekstur 16 millj. 672 þús. kr. og annar kostnaður 3 millj. 862 þús. kr. Sértekjur til frádráttar eru 6 millj. 260 þús. kr.
Árið 1984 var heildarkostnaður ríkissjóðs vegna fangelsismála 56 millj. 337 þús. kr. Launakostnaður var 36 millj. 999 þús. kr., rekstur 21 millj. 265 þús. kr. og annar kostnaður 4 millj. 904 þús. kr. Sértekjur til frádráttar voru 6 millj. 831 þús. kr.
Árið 1985 var heildarkostnaður ríkissjóðs vegna fangelsismála 78 millj. 887 þús. kr. Launakostnaður var 50 millj. 198 þús. kr., rekstur 33 millj. 901 þús. kr., annar kostnaður 1 millj. 109 þús. kr. Sértekjur til frádráttar voru 6 millj. 322 þús. kr.
Í öðru lagi er spurt: Hve margir fangar voru í fangelsum landsins árin 1983, 1984 og 1985? Að meðaltali voru 66,25 fangar að afplána dóma á dag árið 1983, 59,16 árið 1984 og 73,25 árið 1985. Til viðbótar má nefna að árið 1986 voru 87,67 fangar í afplánun á degi hverjum. Í gæsluvarðhaldi voru að meðaltali 3,3 fangar árið 1983, 7,5 árið 1984 og 6 árið 1985. Í afplánun á vararefsingu vegna sekta voru 2,4 fangar að meðaltali á dag árið 1983, 2,3 árið 1984 og 1,3 árið 1985. Í geymslu vegna rannsóknar mála á þeim fresti sem lögreglan hefur og eftir að krafa um gæsluvarðhald hefur verið gerð en áður en úrskurður var kveðinn upp voru að meðaltali á dag 0,7 árið 1983, 1,1 árið 1984 og 1,1 árið 1985. Samtals voru því 72,7 fangar að meðaltali á dag árið 1983, 70,2 árið 1984 og 81,7 árið 1985.
Í þriðja lagi er spurt hvort dreifing afplánunar dóma hafi verið jöfn yfir allt tímabilið. Ef átt er við hvort jafnmargir óskilorðsbundnir refsivistardómar hafi borist til fullnustu umrædd þrjú ár er svarið að árið 1983 bárust 223 óskilorðsbundnir refsivistardómar til fullnustu og var heildarrefsitími þeirra rúmlega 87 ár. Þar af voru sjö dómar þar sem refsitími var meiri en eitt ár og var refsitími þeirra tæp 39 ár samtals. Árið 1984 barst 201 dómur til fullnustu og var heildarrefsitími 93,5 ár. Þar af voru tólf dómar með lengri refsitíma en eitt ár og var refsitími þeirra rúmlega 44 ár. Árið 1985 bárust 348 dómar til fullnustu og var heildarrefsitíminn tæplega 111 ár. Þar af voru tólf dómar með lengri refsitíma en eitt ár og var refsitími þeirra samtals 24 ár. Til viðbótar má nefna að árið 1986 barst 361 dómur til fullnustu og var refsitími þeirra 147 ár. Þar af voru 18 dómar með lengri refsitíma en eitt ár og var refsitími þeirra samtals rúm 51 ár.
Ég á eftir að svara 4. og 5. spurningu og mun gera það í síðari tíma mínum.