24.02.1987
Sameinað þing: 54. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3342 í B-deild Alþingistíðinda. (3030)
309. mál, fangelsismál
Fyrirspyrjandi (Kristín S. Kvaran):
Herra forseti. Ég vildi aðeins, herra forseti, fá að þakka hæstv. dómsmrh. fyrir þessi svör og tel mjög eðlilegt að þessi svör liggi fyrir og sérstaklega í umræðunni um till. sem ég lagði hér fram í haust um hvort endurgjaldslaus vinnuþjónusta gæti komið í stað afplánunar dóma í fangelsi. Þótti mér eðlilegt að svör við þessum spurningum gætu legið fyrir. En þau eru komin fram í dagsljósið núna og hlýt ég að ítreka það að þau koma að góðu haldi í þessari umræðu áfram.