24.02.1987
Sameinað þing: 55. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3373 í B-deild Alþingistíðinda. (3045)
6. mál, rannsóknir á botnlægum tegundum á grunnsævi
Frsm. atvmn. (Garðar Sigurðsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. atvmn. um till. til þál. um rannsóknir á botnlægum tegundum á grunnsævi.
Nefndin fékk fjórar umsagnir um þáltill., frá Líffræðistofnun Háskólans, Landssambandi ísl. útvegsmanna, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Hafrannsóknastofnun, og eru þessar umsagnir allar jákvæðar, samt með mismunandi áherslum og leggur nefndin til að þáltill. verði samþykkt með ofurlítilli breytingu sem er prentuð á sérstöku þskj.