24.02.1987
Sameinað þing: 55. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3401 í B-deild Alþingistíðinda. (3056)

307. mál, álit milliþinganefndar um húsnæðismál

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Öfugt við það sem voru lokaorð hv. seinasta ræðumanns þá hygg ég að það sé sannmæli að þrautir húsbyggjenda og íbúðarkaupenda hafi ekki í langan tíma verið meiri en í tíð núv. hæstv. félmrh. Þeim sem reynt hafa mun áreiðanlega þykja nóg hafa verið á sig lagt að hafa þraukað þó í húsnæðismálaráðherratíð hæstv. ráðh. þótt ekki bætist við annað böl sem kenna má við Blöndal eða þá „Blöndælu“ af þröngsýni, hleypidómum og virðingarleysi í meðhöndlun staðreynda sem við heyrðum sýnishorn af hér áðan.

Hverjar hafa verið þrautir húsbyggjenda? Það er rétt að rifja upp helstu áfangana:

Í fyrsta lagi hið margfræga misgengi launa og lána. Í hverju fólst það? Það lýsti sér í því í tíð fyrrv. ríkisstjórnar og forvera hæstv. húsnæðismálaráðherra að ríkisstjórn þeirrar tíðar skerti vísitölubætur á laun oftar en ég hirði að telja upp á sama tíma og lánskjaravísitala mældi óskertar verðbætur á lán og jók þannig stöðugt greiðslubyrði lána.

Í annan stað vísum við til og rifjum upp afleiðingarnar af takmörkuðu vaxtafrelsi sem ákveðið var í tíð núv. ríkisstjórnar sumarið 1984 og leiddi til umtalsverðrar hækkunar raunvaxta á sama tíma og húsbyggjendur urðu að fleyta sér áfram frá gjaldþroti með töku skammtímalána úr bankakerfi sem báru óheyrilega háa vexti.

Þriðji stólpinn á þessari leið var verðfall fasteigna. Verstu afleiðingar af þessu öllu saman urðu þær að þeir sem þraukuðu og reyndu að standa í skilum með afborganir af lánum horfðu upp á verðfall eignanna og hækkun raunverulega á skuldum í hlutfalli við endursöluverð eigna sem lýsti sér í því að eignarmyndun í þessu húsnæði varð minni en verið hafði þrátt fyrir skilvísar greiðslur afborgana og lýsti sér í verstu tilvikum í hreinum eignamissi.

Ég sagði: Það hefur verið mikið lagt á húsbyggjendur og þeir sem reynt hafa og hafa þraukað af þessar tíðir, þeim þykir nóg um þótt ekki bætist við „Blöndæla“, að lesinn sé yfir þeim lestur af fordómum, sleggjudómum og skætingi um jafnalvarleg mál eins og við heyrðum hér áðan.

Hver er afrekaskrá hæstv. húsnæðismálaráðherra? Málsvarar hans segja: Auknu fé hefur verið veitt til húsnæðislána. Húsnæðislán eru núna hærri sem hlutfall af verði meðalíbúðar en áður og það mun vera tilefni þeirra ummæla, sem hv. fyrri ræðumaður hér úr þessum stóli lét falla, að ástandið hefði kannske sjaldan verið jafngott. Samt hafði hann í fyrri hluta ræðu sinnar tínt til ýmsar athyglisverðar staðreyndir sem benda nú til þess að þarna hafi hann ofmælt því það er sitt hvað lánsloforð og lánsfé. Það er sitt hvað fyrirheit um eitthvað sem á að gerast og svo hitt að standa við fjármögnun þess arna í reynd. Menn byggja nefnilega ekki á lánsloforðum heldur á lánum.

Herra forseti. Þessi umræða gefur tilefni til að rifja upp að þegar allt var komið í þrot í húsnæðismálum í tíð hæstv. núv. húsnæðismálaráðherra þá greip verkalýðshreyfingin til sinna ráða og knúði það fram í kjarasamningum að teknar yrðu upp róttækar breytingar á löggjöf og fylgdi því eftir með því að beita áhrifum sínum innan lífeyrissjóða verkalýðshreyfingarinnar til þess að tryggja stóraukið fjármagn. Það sem við nú þurfum að gera er að reyna að meta eftir fimm mánuði reynsluna af þessu kerfi og reyna að gera það helst sæmilega hleypidómalaust. Hitt er svo annað mál að þessi kerfisbreyting og þetta aukna fjármagn sem verkalýðshreyfingin hefur lagt á borð með sér og á borð með hinu nýja kerfi verður seint talið til afrekaskráar hæstv. húsnæðismálaráðherra. Það er hins vegar ekkert aðalatriði málsins.

Ég vil fyrst rifja það upp að sá sem hér stendur og flokksbræður mínir, við samþykktum hin nýju húsnæðismálalög og við gerðum það vegna þess að við töldum að þáverandi kerfi væri komið í þrot, það væri fárra góðra kosta völ, það væru engin rök fyrir því að hafna fyrir fram þessari tilraun og það væri þakksamlega þegið þegar verkalýðshreyfingin beitti afli sínu og því fjármagni sem hún hafði umráðarétt yfir í lífeyrissjóðunum til þess að reyna að rétta hlut hins langhrjáða húsbyggjanda. En við sögðum þá strax og við greiddum þessu atkvæði að við gerðum það með vísan til tveggja fyrirvara:

Í fyrsta lagi töldum við þá þegar 1986 að fyrirsjáanlegt væri að það mundi skorta fjármagn til þess að standa við fyrirheit þessa nýja kerfis í reynd, m.ö.o. það yrði að fylgja því eftir, ekki með minnkuðum ríkisframlögum heldur verulega auknum ríkisframlögum. M.a. með vísan til þess að þetta kerfi er greinilega ekki hugsað til frambúðar, þetta fjármögnunarkerfi fullnægir ekki þeim skilyrðum að á grundvelli þess sé unnt að byggja upp eigin fjárhag byggingarlánasjóðanna, sem hlýtur að vera eitt meginmarkmiða þeirrar húsnæðismálastefnu sem sæmilega ráðdeildarsöm og ábyrg ríkisstjórn vill reka. Ég er hér að tala um vaxtamun, þann vaxtamun sem verður annars vegar þegar tekin eru lán, þá á allt að 9% vöxtum, seinna á rúmlega 6% vöxtum og til tiltölulega skamms tíma, og lánuð út á niðurgreiddum lágum vöxtum, 1-3,5%, og lánuð til miklu lengri tíma, allt að 40 ára. Það lá fyrir þá strax að þessi vaxtamunur mundi smám saman binda byggingarsjóðunum slíka bagga að við værum ekki með fjármögnunarkerfi sem stæðist til frambúðar. Því yrði að spretta upp.

Í annan stað vöktum við athygli á því að samkvæmt okkar hugmyndum um lífeyrissjóði getur það ekki orðið frambúðarhlutverk lífeyrissjóðanna að vera lánasjóðir til húsnæðismála fyrst og fremst vegna þess að þeirra hlutverk er þrátt fyrir allt að tryggja þeim sem þá eiga og eiga rétt á lífeyrisgreiðslum sómasamlegan lífeyri. Það er orðið mikið vafamál þegar lífeyrissjóðirnir í heild innheimta í iðgjöldum af launþegum 6-7 milljarða kr. á ári hverju en greiða ekki út á s.l. ári nema rúmlega 1,2 milljarða kr., það er orðin mikil spurning hvernig á að ávaxta þetta fé. Og hvernig munu lífeyrissjóðirnir innan fárra ára standa við sínar skuldbindingar þegar staða þeirra gerbreytist vegna aldursdreifingar í þessu þjóðfélagi, vegna fækkunar vinnandi fólks á bak við hvern lífeyrisþega. Við vísuðum m.ö.o. til þess að það væri sýnilegt að fjárhagsgrundvöllur þessa kerfis væri þrátt fyrir allt ekki nægilega traustur. Það þyrfti aukið ríkisframlag með hliðsjón af vaxtamuninum og það stæðist ekki til frambúðar vegna þess að þetta væri ekki meginhlutverk lífeyrissjóðanna þegar fram í tímann væri litið.

Í þriðja lagi vísuðum við til þess fyrirvara að það væri galli á þessum lögum og þessu kerfi og þessum hugmyndum að hið félagslega kerfi væri vanrækt. Við hefðum viljað sjá, og sögðum það þá, að stærri hluti af skuldabréfakaupum lífeyrissjóðanna færi í Byggingarsjóð verkamanna vegna þess að það lá þá þegar í augum uppi að það er orðin gerbreyting að því er varðar alla fjármögnun húsnæðismála. Sú breyting sem varð við verðtryggingu varð snögg. Sú breyting sem síðan verður við það að við höfum bæði verðtryggingu og háa raunvexti á þessu fjármagni er mikil. Það þýðir ósköp einfaldlega: Þegar tekið er tillit til þess kaupmáttarhruns sem varð á fyrri hluta stjórnartímabils þessarar ríkisstjórnar, að það eru stórir hópar, og þeim fer fjölgandi, sem munu fyrirsjáanlega ekki af venjulegum launum sínum rísa undir greiðslubyrði slíkra lána og þurfa þess vegna, ef það á að gerast að þeim verði tryggt öryggi í húsnæðismálum, þurfa þess vegna að geta leitað til félagslegra lausna í húsnæðismálum. Þetta átti ekkert að koma mönnum á óvart. Þetta lá fyrir þá þegar. Hafi menn efast um það þá, þá rifja ég nú upp að þeir sem guma hvað mest af þeirri réttarbót launþega að taka upp staðgreiðslukerfi skatta, launþega sem hingað til hafa staðgreitt sína skatta þótt viðmiðunin hafi verið árið á undan, þeir sem mest guma af því sem réttarbót ættu að athuga að það mál hefur tvær hliðar. Það snertir þessa umræðu vegna þess að það hefur auðveldað ungu fólki sem er að koma t.d. frá námi með námsskuldir á bakinu og er að byrja þátttöku í atvinnulífinu, þetta fólk hefur verið skattlaust 12-18 mánuði, einmitt meðan það er að koma sér fyrir og meðan húsnæðisfáránleikinn íslenski ætlast til þess að unga fjölskyldan, sem þá er venjulega með lágar tekjur, eigi að binda sér drápsklyfjar skuldbindinga vegna íbúðaröflunar. Nú, þegar staðgreiðsla skatta verður lögleidd, þá verður þarna um að ræða snöggbreytingu til hins verra fyrir stóran hluta ungu kynslóðarinnar í landinu sem er enn ein röksemdin fyrir þeirri nauðsyn að taka upp kaupleiguíbúðir.

Herra forseti. Ég sagði: Við þurfum að meta reynsluna af hinu nýja kerfi, sem nú er orðið tæplega hálfs árs, áður en lengra er haldið. Það er svo spurningin um það hver þessi reynsla telst vera. Það fer eftir henni hvort menn taka undir það, sem hér hefur verið sagt, að gefa þessu kerfi frekara ráðrúm til þess að meta reynsluna eða hvort menn þurfa að staldra við nú þegar í ljósi fenginnar reynslu og sníða af því alvarlega vankanta - því það er rétt, það er engan veginn með öllu óhafandi. Það er enginn að halda því fram.

Spurningin er: Hafa komið fram vankantar og ágallar á þessu kerfi sem rétt er að staldra við nú þegar og leita samkomulags um að sneiða af áður en lengra er haldið? Hverjir væru þeir vankantar hugsanlega?

Í fyrsta lagi: Ríkisframlagið er sýnilega of lágt. Það verður að hækka þetta ríkisframlag til þess að útlánaáætlunin sé raunhæf, til þess að stytta biðtíma og til þess að vega upp á móti vaxtamun.

Í annan stað: Ef við lítum á fjármögnun fasteignamarkaðarins í heild þá hefði það verið mjög skynsamleg ráðstöfun áður, og er orðin mjög brýn núna, að ríkisvaldið beiti sér fyrir því í gegnum sína húsnæðislánastofnun að skilyrða lánveitingar að því er varðar kaup og sölu á eldra húsnæði eða lánveitingar til þess, skilyrða það lægra útborgunarhlutfalli. Lægra útborgunarhlutfalli til þess þannig að draga úr hinni opinberu lánsfjárþörf og tryggja að eigendur fasteigna, sem margir hverjir fengu þessar fasteignir með lánum sem voru niðurgreidd, leggi fram við fasteignaskipti á markaðinum meiri hlutdeild af þeim lánum og minnki þannig lánsfjárþörfina.

Í þriðja lagi sýnist mér reynslan benda til þess að menn verði að horfast í augu við þá staðreynd að það verður að stefna að því í alvöru að auka hlutdeild hins félagslega kerfis.

Dæmi: Menn eru að tala um að nú sé talsvert mörgum umsækjendum synjað um lán með þeim rökum að framtaldar tekjur þeirra bendi ekki til þess að þeir fái staðið undir greiðslubyrði af þessum lánum. Stöldrum við þennan punkt. Hvað mega þessar tekjur vera lágar? Greiðslubyrði af húsnæðismálastjórnarláni til 40 ára upp á 3,5% vexti af venjulegri íbúð er ekkert voðalega há á mánuði hverjum. En þetta lán er hins vegar ekki að hámarki nema 70% af kaupverði. Sá kaupandi, sem ekki á í eigin fé u.þ.b. 30% af þessu kaupverði og ætlar að fjármagna það í gegnum bankalán á óniðurgreiddum raunverulegum markaðsvöxtum, hann er hins vegar í mörgum tilvikum ef hann er venjulegur launþegi sannanlega ekki fær um það að rísa undir greiðslubyrði af venjulegum íbúðarkaupum.

Tökum nú dæmi af láglaunafólki úr Sókn eða úr Framsókn eða úr Iðju, eða úr Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, fólki sem er á taxtakaupi, með takmarkaðan vinnutíma og á tiltölulega lágum launum. Ég hygg að það sé mjög auðvelt að sýna fram á það að þetta fólk rís ekki undir greiðslubyrðinni. En ég minni á: Lífeyrissjóðir þessa fólks, sem þetta fólk greiðir iðgjöld í, leggur fram fé í húsnæðislánasjóðina. Er hægt síðan að koma til þessa fólks og segja: Að vísu er það rétt, þið greiðið iðgjöld í þessa sjóði, áður gátuð þið snúið ykkur til þessara eigin lífeyrissjóða ykkar og farið fram á lán, nú getið þið það ekki lengur. Nú greiðið þið iðgjöld í þessa sjóði. Þessir sjóðir fjármagna síðan húsnæðislánasjóðina. En þegar þið komið sem láglaunafólk til húsnæðislánasjóðsins sem er fjármagnaður af iðgjöldum ykkar þá verður ykkur sagt: Nei, launin ykkar eru svo lág, þið rísið ekki undir lánunum. Burt með ykkur.

Ég spyr - og mundi spyrja hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson ef hann væri hér sýnilegur: Mundi formaður Verkamannasambands Íslands og mundi formaður Dagsbrúnar réttlæta það að þetta fái staðist? Að byrðarnar af því að fjármagna húsnæðislánakerfið séu lagðar á lægst launaða fólkið í landinu en síðan komi það á daginn að það fái ekki risið undir greiðslubyrðinni af þessum lánum af sínum lágu launum og þá sé sagt við það: Þið eruð réttdæmd til þess að leggja fram fé til þess að fjármagna þessa sjóði, sem m.a. eiga núna að fjármagna endurkaup fólks sem fékk niðurgreitt húsnæði hér á velmektardögunum. En þið sjálf? Ykkar réttur er enginn því þið getið ekki risið undir lánunum.

Ég held að þessi punktur, um hlutverk lífeyrissjóðanna og þessa leið við fjármögnun húsnæðislánakerfisins, sé eitt af því sem þurfi að endurmeta núna og ég nefni annað dæmi:

Í umræðum um tillögur okkar jafnaðarmanna um einn lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn og samræmd lífeyrisréttindi hefur t.d. formaður Sjálfstfl. lýst þeirri skoðun sinni að hann vilji slá skjaldborg um óbreytt kerfi og hann telji það hina mestu ósvinnu að koma með tillögu um einn lífeyrissjóð og samræmd lífeyrisréttindi ef það gangi á snið við vilja stjórnenda kerfisins, sjóðakóngana í hundrað lífeyrissjóðum. Við segjum hins vegar, og það er ágreiningurinn: Hverjir eru rétthafar þessa kerfis? Hverjir eru þeir sem greiða iðgjöldin? Það er fólkið í þessu landi sem á að ráða því hver verður framtíðarskipan lífeyrismála, enda viljum við að tillögur okkar um einn lífeyrissjóð og samræmd lífeyrisréttindi verði lagðar fyrir fólk í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá segja andstæðingar þessara tillagna: Tillögur um einn lífeyrissjóð, þ.e. samræmd lífeyrisréttindi að því er varðar réttindin, deildaskiptur eftir landshlutum samkvæmt okkar tillögum, að því er varðar ráðstöfun fjármagnsins og ávöxtunarkjörin, þá segja þeir: Þetta er miðstýring.

Ég spyr: Hundraðsjóðakerfið núna, ætli það sé ekki í reynd dálítið mikið miðstýrt? Flettum upp í símaskránni og spyrjum: Hvar eru heimilisföng þessara sjóða flestra hverra? Ætli þau séu ekki í Reykjavík? Og lítum á það frá fjármagnshliðinni, ávöxtunarhliðinni: Hvar ætli þessir 6 milljarðar kr. sem lífeyrissjóðirnir hafa til ráðstöfunar umfram lífeyrisgreiðslur, hvar ætli þeir séu ávaxtaðir? Ætli þeir séu ávaxtaðir austur á Hellu? Ætli þeir séu ávaxtaðir austur á Seyðisfirði? Ætli þeir séu ávaxtaðir vestur í Ólafsvík? Áreiðanlega að mjög litlu leyti vegna þess að bróðurparturinn fer auðvitað til ríkisins beint í gegnum þessi húsnæðismálalög, til byggingarsjóðanna og eru ávaxtaðir hvar? Fjárfest hvar? Þarf að minna fulltrúa landsbyggðarinnar hér á hinu háa Alþingi á hver hafi verið hlutur landsbyggðarinnar að því er varðar byggingarstarfsemi á undanförnum árum? Það er hægt að telja hér upp í tugatali þau byggðarlög úti á landi þar sem ekki hefur verið byggð ein einasta íbúð á undanförnum árum. Ekki ein einasta. Það heyrir til undantekninga ef nokkur einasta íbúð hefur verið byggð.

Allir vita það að núverandi kerfi er kerfi sem sogar fjármagn sem verður til úti á landi, og greitt er af iðgjöldum launafólks úti á landi, sogar fjármagnið hingað suður í sjóðakerfið í Reykjavík þar sem það er lánað út til byggingarstarfsemi - í Reykjavík. Svo koma sömu menn og bera sig mannalega, segjast vera á móti miðstýringu og kalla skipulagsleysi og óskapnað og misrétti, sem er hvað mesta misréttismál gagnvart öldruðum Íslendingum sem nú eru í þessu þjóðfélagi, núverandi sjóðakerfi, vilja slá um það skjaldborg, óbreytt kerfi, og kenna það við valddreifingu!

Herra forseti. Ég hef nefnt hér tvö dæmi sem eru um alvarlega ágalla á því kerfi sem við erum hér að ræða. Annað lýtur að því að láglaunafólk greiðir inn iðgjöld í lífeyrissjóðina, lífeyrissjóðirnir fjármagna húsnæðislánakerfið, en síðan eru þessu láglaunafólki vísað frá og vitnað til þess að það hafi ekki efni á að standa undir greiðslubyrðinni.

Hitt dæmið er um það að fjármunir sem verða til úti á landi eru í gegnum þetta kerfi sogaðir suður til Reykjavíkur og ráðstafað þar. Einhvern tímann hefði nú heyrst hljóð úr horni í flokki sem kenndi sig við landsbyggð, byggðastefnu, og taldi sig málsvara fólksins úti á landi, sem mér skilst að hæstv. félmrh. sé fulltrúi fyrir, ef einhverjir aðrir hefðu staðið þannig að verki. Nóg held ég að hafi nú verið lagt á landsbyggðina þegar og er ég þar bæði að tala um miðstýrt kvótakerfi og framleiðsluskerðingu í landbúnaði, leyniskýrsluna frægu um það að skera niður, ekki framleiðslu í landbúnaði heldur 2000 bændur, með samdráttarafleiðingum þess í þjónustubyggðarlögunum úti á landi, kvótakerfi í sjávarútvegi o.s.frv.

Herra forseti. Það voru fleiri en við sem gerðum fyrirvara að því er varðaði líkurnar á því að þetta kerfi gæti staðist þegar það var samþykkt hér á hinu háa Alþingi og reyndar áður en það var samþykkt. Ég verð að segja eins og er að það er ekki hægt að líta fram hjá því í þessari umræðu að hæstv. félmrh. hefur verið borinn alvarlegum sökum í því efni. Hann hefur verið borinn þeim sökum að hafa haldið leyndu fyrir Alþingi og þjóðinni ítarlegum skýrslum sem höfðu verið samdar að hans undirlagi og fyrir hans ráðuneyti. Og að því er varðar þær upplýsingar sem í þessum skýrslum voru, þá hefðu þær upplýsingar nægt til þess að vekja athygli manna þá þegar á lykilatriðum, nefnilega þessum:

Í fyrsta lagi að fjáröflun til hins nýja kerfis væri fyrirsjáanlega ónóg. Að fjármagnsþörfin væri meiri. Í annan stað að aukningin á lánsfé í hinu nýja kerfi gegnum lífeyrissjóðina væri ofmetin þegar litið væri á fasteignamarkaðinn í heild og þar með eftirspurnin eftir lánum vanmetin stórlega.

Það eru vissulega alvarlegar ásakanir þegar sagt er að hæstv. ráðh. hafi haldið leyndum slíkum upplýsingum. Ég er hér með í höndunum grein eftir Stefán Ingólfsson sem birtist í Morgunblaðinu í dag, 24. febrúar, undir fyrirsögninni „Rakalaust kjaftæði“, en þar er greinarhöfundur að vitna í ummæli sem hæstv. ráðh. viðhafði í útvarpsþætti þegar hann var spurður hvort rétt væri að hann hefði haldið þessum upplýsingum leyndum. Rakalaust kjaftæði, sagði hæstv. ráðh. Spurningin er: Vill hann endurtaka þau ummæli hér? Þurfum við að sýna honum skýrslurnar, sex talsins, sýna þær hér úr ræðustól, ég er að vísu ekki með þær, en þær eru í salnum samt sem áður, rifja upp dagsetningarnar á þeim og þylja upp fyrir honum aðalatriðið sem fram koma í þessum skýrslum áður en hann viðurkennir þá staðreynd að þessar skýrslur voru til? Þær upplýsingar sem þar koma fram um ofmat á aukningu lánsfjár í nýja kerfinu og vanmat á eftirspurn sem fyrirsjáanleg væri lágu á borðinu og voru þar af leiðandi þess eðlis að það var hægt að sjá fyrir þann vanda sem nú er kominn upp og fyrirbyggja hann. Ég er hér að tala um alvarlega hluti í stjórnsýslu. Ég er að tala um hvort það er rétt eða rangt að hæstv. ráðh. hafi legið á þessum upplýsingum og haldið þeim leyndum. (Gripið fram í: Brottrekstraratriði.) Í flestum löndum væri það.

Hvað segir höfundur þessara skýrslna? Hann segir í fyrsta lagi, með leyfi forseta:

Í janúar og febrúar 1985 gerði félagsvísindadeild Háskólans könnum á kaupum notaðs húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Könnunin var framkvæmd fyrir nefnd sem starfaði á vegum félmrn. Skýrsla deildarinnar með niðurstöðum úr könnuninni birtist í ágúst 1985. Hún ber heitið: „Könnun á húsnæðiskjörum. Kaup notaðs húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu 1984.“ Í ítarlegum töfluviðauka sem henni fylgdi kemur fram að liðlega 34% af fasteignakaupendum séu að kaupa sína fyrstu íbúð. Nákvæmlega sömu upplýsingar er að finna í skýrslu sem unnin var fyrir ráðuneytið úr þeim upplýsingum sem fengust úr könnuninni. Hún nefnist „Áfangaskýrsla 5. Fjármagn á fasteignamarkaði“ og kom út í ágúst 1985 eins og hin. Það má einnig geta þess að sömu upplýsingar er að finna í markaðsfréttum frá Fasteignamati ríkisins, mars 1986. Þetta hlutfall, 34%, skiptir meginmáli þegar fjöldi umsækjenda um lán er áætlaður. Það sýnir nefnilega að í meðalári kaupi 1450-1500 fjölskyldur húsnæði í fyrsta sinn. Það er 300 fjölskyldum fleira en forsendur frv. gerðu ráð fyrir. Endurtek: 300 fjölskyldum fleira en forsendur frv. gerðu ráð fyrir. Þetta eina atriði jafngildir því að fjárþörf kerfisins hafi verið 500 millj. kr. hærri en talið var.

2. Heimildin er „Áfangaskýrsla 2. Fasteignamarkaður á höfuðborgarsvæðinu 1980-1984.“ Þar segir:

„Kaupendur sem komnir eru yfir fimmtugt kaupa sér í auknum mæli litlar íbúðir. Þeim kaupeindum sem eru 51 árs og eldri og keyptu litlar íbúðir fjölgaði um 60% frá 1980 til 1984.“

Á bls. 7 í skýrslunni kemur auk þess fram að 20% allra kaupenda voru á þessum aldri 1984. Það eru 850 kaupendur á ári. Nú er ljóst að þeir sem áttu stórar skuldlitlar íbúðir og voru að minnka við sig áttu ekki lánsrétt í gamla kerfinu. Þeir fengu hann hins vegar með nýju lögunum. Þær upplýsingar sem hér voru nefndar gera mönnum auðveldlega kleift að meta hversu stór hópur mundi þannig öðlast rétt til lána. Ætla má að ekki færri en 450 manns, sem eru að minnka við sig húsnæði og fá greitt reiðufé í milli við kaupin, öðlist lánsrétt. Lán til þeirra má áætla um 500 millj. kr. á ári. Þetta var ekki fyrirséð í upphaflegum reikniforsendum kerfisins. En upplýsingarnar voru í ráðuneytinu og erindi um það voru send og athygli var vakin á því.

3. Mat á fjárþörf kerfisins í heild, þ.e. fasteignamarkaðarins í heild vegna fasteignakaupa í heild sinni:

Í skýrslunni Fjármagn á fasteignamarkaði er í löngu máli fjallað um það hversu gríðarlega fjárfrekur fasteignamarkaðurinn er. Bent er á það að það megi rekja til afarhárrar útborgunar og sagt að miðað við óbreytt ástand sé markaðurinn það fjárfrekur að lánsfjárþörf hans verði ekki leyst með opinberu fé eingöngu. Í skýrslunni er einnig fjallað um hvaða þýðingu lánsfé lífeyrissjóðanna hafi fyrir kaupendur fasteigna. Um þetta er fjallað í sérstökum kafla. Þar kemur fram að lánsfé frá lífeyrissjóðum hafi fram að þeim tíma þegar nýja kerfið tók gildi verið jafnhátt og öll lán frá Húsnæðisstofnun. Þetta er einnig sett fram í töflu í marsblaði Markaðsfrétta. Úr þessari töflu má áætla hver nettóaukning verði á lánsfé því sem veitt er inn á fasteignamarkaðinn með nýja húsnæðislánakerfinu. Þegar tekið er tillit til þess að lán lífeyrissjóðanna beint til félaga munu nánast falla niður og miðað við þær upplýsingar sem fyrir lágu á þeim tíma þegar frv. að lögunum var til umræðu og áður eru nefndar virðist aukningin ekki munu vera meira en 5% af heildarveltu markaðarins. M.ö.o.: það sem hefur verið gumað af sem stórauknu lánsfé til húsnæðismála í heild er þegar nánar er skoðað lítil sem engin aukning, 5% aukning ef litið er á fasteignamarkaðinn í heild, sem er þá upphæð upp á nokkur hundruð milljónir kr., en áhrifin af nýja kerfinu til að hækka fasteignaverð á höfuðborgarmarkaðnum og víðar á sama tíma gerir meira en að gleypa upp alla þessa aukningu. Nettó aukningin er núll.

Með því að nota sömu skýrslur gerði höfundur þessara skýrslna í ágúst spá um hver biðtími umsækjenda eftir lánum mundi verða orðinn í apríl n.k. Biðtíminn var varlega áætlaður 14 mánuðir. Þetta hefur gengið eftir. Biðtíminn er nú þegar orðinn liðlega 15 mánuðir og stefnir í 17 mánuði. Þá mátti áætla hina miklu eftirspurn sem koma mundi á fyrstu árum kerfisins vegna uppsafnaðs vanda í húsnæðismálum. Ætla mátti að þessi hópur væri allt að 500 fjölskyldur. Með því að bæta þeim hópi við hóp fyrstu kaupenda mátti þess vegna vænta þess að allt að 2000 manns í forgangshópi mundu sækja um fyrsta árið. Hverjar eru staðreyndirnar? Á fyrstu fjórum mánuðunum samkvæmt nýju kerfi var umsóknafjöldinn 1900, eins og Stefán Ingólfsson sá fyrir, eins og hann lagði fram skýrslur og gögn um og áætlanir um áður en nýja kerfinu var hleypt af stokkunum.

Til þess að draga saman, herra forseti: Það lá með öðrum orðum fyrir á gögnum í ráðuneytinu, sem unnin höfðu verið fyrir það áður en Alþingi hafði þessi mál til umfjöllunar, hver var fjöldi þeirra sem í meðalári kaupa sínar fyrstu íbúðir og sú áætlun var vanmetin um 300 fjölskyldur eða 500 millj. kr.

Í annan stað. Það lá fyrir áætlun byggð á reynslutölum um hversu margir þeir væru, 450 manns, sem höfðu að jafnaði á undangengnum árum losað sig við stórar eignir, minnkað við sig íbúðareign og öðluðust lánsrétt og bættu þar með við 500 millj. kr. útlánaþörf.

Í þriðja lagi. Samanburðurinn á fjármagni í kerfinu í heild hefur gjarnan verið gerður á röngum forsendum vegna þess að menn hafa sagt: Þetta er nettóaukning, en gleymt að niður féll réttur launþegans til að fá í sumum tilvikum tvöfalt lán hjá lífeyrissjóðnum sínum. Nettóaukningin nær því ekki að vega upp þá verðhækkun fasteigna sem orðið hefur á markaðnum síðan.

Í fjórða lagi lágu fyrir upplýsingar um þann fjölda sem mátti ætla að mundi sækja um rétt í forgangshópi vegna uppsafnaðs vanda greiðsluerfiðleika á liðnum árum, 500 fjölskyldur.

Þessar áætlanir hafa allar staðist og leiða til þeirrar niðurstöðu að kerfið hefur brugðist vonum manna að því leyti að það eru gefin út lánsloforð í stórum stíl sem síðan hefur ekki verið unnt að standa við vegna þess að fjármögnunin er ekki í lagi.

Velkominn í salinn, hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar (GJG: Þakka þér fyrir.) og formaður Verkamannasambands Íslands.

Ég beindi einni lítilli spurningu til hv. þm. áðan þegar ég var að meta kosti og galla hins nýja kerfis núna að fenginni tæplega hálfs árs reynslu. Spurningin er þessi: Telur hv. þm., formaður Dagsbrúnar og formaður Verkamannasambands Íslands, vera í lagi þegar meðlimir Dagsbrúnar, Framsóknar, Sóknar, Iðju, Verslunarmannafélagsins o.s.frv., sem greiða sín iðgjöld í lífeyrissjóðina sína, lífeyrissjóðirnir þeirra greiða síðan fyllilega sinn skerf og ríflega það, 55% og sumir miklu meira, til þess að fjármagna húsnæðislánakerfið, en síðan koma þessir einstaklingar, sem halda þessu kerfi uppi með sínum iðgjöldum, til Húsnæðisstofnunar og sækja um lán og eru þá gerðir afturreka á þeim forsendum að laun þeirra séu svo lág að þau nægi ekki til að standa undir greiðslubyrði lána sem ótal dæmi eru um? Er þetta ekki ágalli á því kerfi sem við lögðum upp með? Er það ásættanlegt fyrir forustumenn og trúnaðarmenn launþega á Íslandi að segja annars vegar við sitt fólk: - Það var að vísu allt komið í hönk í húsnæðismálum. Það er ég búinn að fjalla um. Það viðurkennum við. Það var rausnarlega gert af verkalýðshreyfingunni að bjarga ríkisstjórninni úr snörunni svo sem hún hefur orðið að gera ekki bara í þessu máli heldur fleirum og það er guðsþakkarvert. - En er hægt að segja: Leggið þið fram ykkar iðgjöld í þetta lánakerfi, en þegar talið berst að réttindunum er sagt, nei, því miður launin ykkar eru of lág. Þið getið ekki staðið undir greiðslubyrðinni. Ykkur er nógu gott að halda uppi kerfinu. á sama tíma er bætt við nýjum hópi sem ekki átti lánsrétt áður, því fólki sem á stórar íbúðir, einmitt íbúðirnar sem hv. þm. var að tala um, fimm herbergja íbúðir, sex herbergja íbúðir, þar sem eru 60 fermetrar undir rassinn á hverri persónu, og geta nú komið, þegar þeir eru að selja þessar eignir og minnka við sig, til húsnæðismálastjórnar og fengið lán. (GJG: Hundrað fermetrar.) Já, geta nú komið til húsnæðismálastjórnar, sem er fjármögnuð að verulegu leyti með iðgjöldum láglaunafólks, og fengið lán, um leið og það fær milligreiðslu við sölu á fasteignunum upp á kannske 1-11/2 millj. og þaðan af meira auðvitað, fengið því næst lán niðurgreitt sem er fjármagnað af iðgjöldum láglaunafólksins og farið með það beint upp í Kaupþing og ávaxtað það þar praktuglega á þeim raunvöxtum sem virðast núna vera nokkurn veginn þeir hæstu á OECD-svæðinu a.m.k. Ég spyr þessara spurninga, hv. þm., í því samhengi að ég var að segja: Við skulum nú meta hleypidómalaust reynsluna af þessu kerfi eftir hálft ár, og ég hef sagt: Það er ekki nóg að segja „við skulum bíða og sjá hvað setur“. Það er þegar komið á daginn að það eru þarna vissir ágallar og ég segi að þeir eru:

Ríkisframlagið er of lágt, m.a. vegna vaxtamunar og til þess að standa við eðlilegar forgangskröfur sem þetta kerfi á að leysa.

Í annan stað segi ég: Ríkisvaldið hefur brugðist skyldu sinni um að skilyrða lán vegna kaupa á eldra húsnæði um það að greiðsluhlutfallið og útborgunarhlutfallið er of hátt. Það verður að lækka það. Þar með mundu þeir lækka heildarlánsfjárþörfina og knýja þá sem á sinni tíð fengu niðurgreitt húsnæði til að lána meira á markaðnum við skipti á íbúðum.

Og í þriðja lagi segi ég, hv. þm.: Hið félagslega kerfi var vanrækt. Mér þótti vænt um að það kom fram í máli hv. þm. áðan að það væri ágalli á kerfinu. Við ríkjandi aðstæður er alveg ljóst að við verðum núna að leggja aukna áherslu á hið félagslega kerfi, m.a. ef það á að líðast að fólki í stéttarfélögunum, láglaunafólki, sé vísað frá fyrirgreiðslu Húsnæðisstofnunar vegna lágra launa. En hvert á að vísa því á sama tíma og ekki eru byggðir verkamannabústaðir, á sama tíma og ekki er veitt fjármagni í Byggingarsjóð verkamanna og á sama tíma og þingmeirihlutinn þrjóskast gegn kaupleiguíbúðum? Aftur á móti skal ég segja að það er gleðileg undantekning og ánægjulegt að heyra hleypidómalausa og jákvæða umfjöllun hv. þm. um það efni áðan.

Að því er varðar mat manna á umsóknafjöldanum og hvað sé raunhæft þegar menn eru að tala um biðtíma eða áætla hvort raunhæf byggingaráform búi að baki umsóknum dugar náttúrlega ekki að segja eins og hv. þm. gerði áðan: Þessir menn eru ekki einu sinni komnir með lóðaloforð, lóðafyrirheit eða búnir að ganga frá veðsetningu. Nú birtist daglega í blöðum, m.a. í Morgunblaðinu 22. febrúar, auglýsing frá Húsnæðisstofnun sem hljóðar svo: „Skriflegt lánsloforð frá Húsnæðisstofnun er örugg ávísun á lán. Bíddu, bíddu eftir því áður en þú gerir nokkuð annað. Með lánsloforð í höndum er orðið tímabært að ganga frá bindandi kaupsamningi, fyrr ekki.“ Það er beinlínis beðið um það. Bíddu maður! Þetta er kostur kerfisins. Þú átt að geta sótt um lán og fengið lánsloforð, en þú átt ekki að ganga fyrst frá lóðasamningi. Menn eru auðvitað að fara eftir settum reglum. Menn eru að bregðast við breyttum reglum. Af þessu verður ekkert metið um það hvort byggingaráform manna eru raunveruleg eða ekki.

Í raun og veru tek ég mark á þeim tölum sem ég rakti áðan eftir heimild Stefáns Ingólfssonar hafandi farið í gegnum þær skýrslur og hafandi fylgst með hans málflutningi á mörgum árum. Ég held að þær tölur sem hann hefur nefnt um fasteignamarkaðinn í heild, þ.e. hvað eru það margir sem eru að kaupa í fyrsta sinn og meina það, hvað eru það margir sem á undanförnum árum hafa verið að skipta úr stórum íbúðum í smærri og meina það og hvað eru það margir sem eiga forgangsrétt vegna þess að þeir voru í greiðsluerfiðleikahópnum frá fyrri árum? - allar þessar tölur lagðar saman benda til þess að umsóknafjöldinn sé ekki svo fjarri lagi. Að vísu mundi það gleðja mitt gamla hjarta ef það væri svo að í þeim hópi fólks sem synjað er núna um lán á þeim forsendum að það muni hugsanlega ekki rísa undir greiðslubyrðinni væri að finna þá forréttindahópa og skattsvikara sem samkvæmt skattframtölum væri bónbjargamenn og eru bónbjargamenn. Ég vildi gjarnan beina því til hæstv. félmrh., ef það væri einhver von til þess að fá svör, hvort hann gæti gert úttekt á því hvernig þessi hópur, sem synjað hefur verið um lán, sundurgreinist. Ég á að vísu ekki von á því að hið opinbera kerfi hafi ráð til þess að vinsa þar sauðina frá höfrunum, þ.e. skattsvikarana frá heiðarlegu fólki.

Herra forseti. Mér hefur orðið tíðrætt um ágalla kerfisins og ég tíundaði í upphafi máls míns helstu stólpana á langri leið húsbyggjenda og raunasögu þeirra, nefndi misgengi launa og lána, gífurlega hækkun raunvaxta og úrræði hæstv. félmrh., sem reyndar fékk þá umsögn hjá hv. þm. undir lok hans ræðu að hann hefði búið þjóðinni bestu kjör í húsnæðismálum sem sögur færu af, ef mér skildist rétt.

Afrekaskrá hæstv. ráðh. er aðallega í því fólgin að í stað þess að leysa vandamál hefur hann fengist við að leysa sinn eigin vanda með því að slá honum á frest, með því að leggja hann í nefnd. Og nefndirnar hafa starfað misjafnlega, þar á meðal þessi umrædda milliþinganefnd. En hitt er verra þegar nefndirnar hafa starfað dyggilega og starfsmennirnir starfað dyggilega en nefndarálitunum hefur verið stungið undir stól.

Framan af var brugðist við grundvallarvandanum með því að bjóða upp á viðbótarlán og lengingu á lánum, stundum farið offari með því að segja að bankakerfið mundi samkvæmt samningum greiða fyrir þessu og fréttist nú oft og tíðum heldur lítið af því. En lenging á lánum, það sem hinir hrjáðu húsbyggjendur kölluðu að lengja í hengingarólinni, var þrautaráðið. En stundum var gripið til annarra ráða og nú staldra ég við vorið 1985. Þá átti að afla fjár sérstaklega til þess að hægt væri að leggja hinum hrjáðu líkn með þraut, til þess að hægt væri að verja auknu fjármagni til að leysa vanda greiðsluvandræðahópsins eða harmkvælahópsins. Hvernig var það gert? Það var m.a. gert með því að hækka söluskatt. Hvert er samhengi milli þess að afla fjár með því að hækka söluskatt og segjast vera að leysa vanda hinna hrjáðu húsbyggjenda? Eins og menn vita er lánskjaravísitala saman sett af tveimur þáttum, framfærsluvísitölu og byggingarvísitölu. Hækkun um eitt söluskattsstig skilaði á þessum tíma 7 eða 800 millj. kr. í ríkissjóð. Hún hækkaði að sjálfsögðu framfærslubyrði og framfærslukostnað þeirra fjölskyldna sem átti að hjálpa. Það er dálítið sérstakt með hliðsjón af þeirri staðreynd að hinir hrjáðu húsbyggjendur eru að öllum jafnaði fólk sem leggur nótt við dag til þess að afla tekna. Það hefur þau áhrif að það keyrir það upp í hæsta jaðarskatt. Fólkið sem aflar hæstu tekna er um leið það sem ber af skilvísum launþegum hæstu beina skatta. Síðan er hækkaður söluskattur til að hækka framfærsluna sem færist inn í lánskjaravísitöluna sem hækkar greiðslubyrðina! Hvað er ég hér með að segja? Ég er að segja að það er sitt hvað að vera meðmæltur verðtryggingu fjárskuldbindinga og hóflega jákvæðri raunvöxtun fjár, sem er skynsamleg skoðun, sérstaklega fyrir Íslendinga og skulduga þjóð, eða að útfæra það í framkvæmdinni með þeim hætti að búa til vísitölu sem m.a. tekur inn óbeina skatta og breytingar á óbeinum sköttum og hækkar þar með greiðslubyrði skuldara, færir til eignir milli sparifjáreigenda og skuldara og breytir innistæðueignum í bankakerfinu með einu pennastriki. Það sem á að vera fjáröflun í þágu einhvers verður að refsivöxtum til að þyngja byrðar þess sem átti að bjarga.

Ég minnist þess hér á árum áður, þegar menn ræddu hið gamla sjálfvirka og vitlausa vísitölukerfi launa, hvers andstæðingur ég var eindreginn og mátti þola nokkrar kárínur fyrir hjá verkalýðsforingjum sumum hverjum eða flokksforingjum, hv. 3. þm. Reykv. t.d. Ég minnist þess frá umræðum um það mál þegar við lýstum því yfir að við værum andvíg svo sjálfvirku vísitölukerfi að þá var mikið um það rætt að það væri hrein fásinna að hafa skatta, hvort heldur væru beinir skattar eða óbeinir, inni í vísitöluviðmiðunum. Vont var það þá. En nú spyr ég: Ríkissjóður Íslands er rekinn með dúndrandi halla, og hefur verið lengst af, tæpir 3 milljarðar bara á B-hlutanum þetta árið. Í raun og veru, ef það er mælt út frá lánsfjárþörf opinberra aðila í heild, fullyrði ég að það eru allar líkur á því að ríkisbúskapurinn á Íslandi verði rekinn með að minnsta kosti 6000 millj. kr. halla á þessu ári.

Segjum nú sem svo að hér komi til valda viti borin ríkisstjórn eftir næstu kosningar. Segjum sem svo að hún geri það eitt af forgangsverkefnum sínum að nú dugi ekki lengur, ef góðæri helst, annað en nýta það m.a. til að fara að greiða niður erlendar skuldir. Hún á þá engin önnur ráð en þau að gera það með sköttum, með því að leggja á skatta, og ef það á að leggja á skatta til að jafna hallann á ríkisbúskapnum og ef það á að leggja á skatta til að byrja að greiða niður erlendar skuldir, langtímaskuldir, á það þá jafnframt að þýða refsivönd og gífurlega þyngingu á greiðslubyrði allra þeirra sem tekið hafa þessi lán í húsnæðislánakerfinu og skulda, ja, hámarkslánin 2,1 millj. eða 2,3 millj. eða þetta frá 1,5 til 2,5 millj. kr.? Á að framvísa þeirri ráðdeildarráðstöfun í ríkisfjármálum, að reyna að draga úr ríkisfjárlagahallanum og byrja að greiða niður erlendar skuldir, til húsbyggjenda og annarra skuldara gegnum lánskjaravísitölu með því að þyngja stórlega greiðslubyrði þessa fólks? Þetta er fjarstæðukennt! Að vísu er það svo að hallareksturinn á ríkissjóði núna er meginskýringin á því af hverju raunvaxtastig hér er hærra en í öðrum löndum og hærra en það ella væri.

Hvernig dekkar ríkissjóður sinn halla? Þeir segjast vera á réttri leið og ná árangri. Árangurinn í ríkisfjármálunum er 6 milljarða gat. Og hvernig dekka þeir það? Þeir dekka það með því að gerast keppinautur annarra aðila á lánsfjármarkaðnum, þar á meðal atvinnulífsins, sprengja þar upp vexti í samkeppni og eru meginástæðan fyrir því að raunvextir eru hér hærri en þeir ættu að vera. Ef hin hliðin á kerfinu ætti að vera sú að ríkisstjórn, sem vildi fara að greiða niður, ætti að sprengja upp vexti vegna þess að það er sjálfvirk viðmiðun við láns. kjaravísitölu sjá menn að menn eru komnir í kolvitlaust kerfi.

Það er ekki von að hæstv. félmrh. hafi orðið vel ágengt í að ráða fram úr vanda húsbyggjenda sem lýsti sér fyrst og fremst í misgengi lána og launa og afleiðingum af vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar, gífurlegri hækkun raunvaxta, og afleiðingum af botnlausum hallarekstri þessarar ríkisstjórnar sem er svo ósvífin að vera að hæla sér af einhverjum árangri. Þetta er þó það sem hún vissulega gat ráðið við.

En þeir aðilar í þjóðfélaginu sem bera byrðarnar eru hinn hrjáði húsbyggjandi enn sem fyrr og framleiðslustéttirnar í landinu, landbúnaðurinn skuldum hlaðinn, sjávarútvegurinn skuldum hlaðinn, en þeir sem græða á öllu saman eru að sjálfsögðu forgangshópar þessarar ríkisstjórnar, handhafar og eigendur fjármagns á verðbréfamörkuðum þessa uppboðsþjóðfélags.

Herra forseti. Ég held að nóg rök hafi verið færð fyrir því nú þegar að kerfinu sem við erum að tala um er ekkert alls varnað. Það var til bóta á sínum tíma. En reynslan af því eftir hálft ár er sú sem reyndar var séð fyrir af mörgum, sbr. fyrirvara okkar á hinu háa Alþingi þegar greitt var um það atkvæði og sbr. þær skýrslur sem lágu á borðum félmrh. sem hins vegar voru gerðar að leyniskjölum, sbr. leyniskjalið sem núna er á borðum hans frá Húsnæðisstofnun og staðfestir allar staðreyndirnar um biðtímann og lánsloforðin og óraunhæfar útlánaáætlanir. Það er ekki góður umræðumáti, hæstv. ráðh., að halda leyndum staðreyndum og upplýsingum fyrir fólki sem á að taka hér ákvarðanir og fjalla um mál.

Kerfinu var ekkert alls varnað, segi ég, en það eru á því alvarlegir gallar.

Í fyrsta lagi er það galli að lífeyrissjóðunum er ætlað annað hlutverk. Þeir eiga ekki að vera útlánasjóðir númer eitt fram í tímann að líta.

Í annan stað: Ríkisframlagið er of lágt og það verður að hækka það. Það verður að auka framlög ríkissjóðs af sköttum til húsnæðismála ef við ætlum ekki að láta fjárhag byggingarlánasjóðanna verða að engu vegna vaxtamunar, ef við ætlum að ná því markmiði að byggja upp eiginfjárhag sjóðanna í framtíðinni.

Í þriðja lagi: Það verður að ætlast til þess af hæstv. félmrh. og ríkisstjórn nú þegar að hann skilyrði lán til kaupa á eldra húsnæði því að útborgunarhlutfallið verði lægra en það er nú. Það ber að beita stjórntækjum og ráðum ríkisins til að keyra það niður. Og í fjórða lagi: Það ber að verja auknu fjármagni í hið félagslega útlánakerfi og taka alvarlega skynsamlegar tillögur sem fram hafa komið um endurreisn hins félagslega kerfis sem ég tel alveg tvímælalaust að eigi sér fyrst og fremst framtíð í formi kaupleiguíbúða.

Og þá er ég kominn að „Blöndælu“, herra forseti. Ég sagði áðan að nóg væri á húsbyggjendur lagt að hafa þraukað af hæstv. félmrh. þó ekki bættist við annað böl og verra sem væri Blöndal og hans leiða „Blöndæla“, fordómarnir, hleypidómarnir og geðstirfnin sem einkenndi hans mál, botnlaust skilningsleysi á aðstæðum þess unga fólks sem nú er að byrja að hasla sér völl í þjóðfélaginu.

1. spurning til hv. þm. Blöndals: Er engin þörf fyrir leiguhúsnæði í þessu landi? Hv. þm. hafa tekið eftir því að hv. 2. þm. Norðurl. e. hefur hér úr þessum ræðustól farið með rakalaus öfugmæli um niðurstöður úr könnunum sem gerðar hafa verið um þörf fyrir leiguhúsnæði. Þetta er hlutur sem við þurfum ekkert að deila um vegna þess að niðurstöður af þessum könnunum liggja fyrir. Hverjar eru þessar kannanir?

Í fyrsta lagi: Könnun Félagsvísindastofnunar. Þar var spurt: Hver eftirtalinna atriða telur þú brýnast að leggja áherslu á í húsnæðisöflun landsmanna á næstunni? - og eru taldir upp fimm kostir. Niðurstaðan er sú, eins og þar segir, að 26,3% aðspurðra setja búseturéttaríbúðir eða almennar leiguíbúðir á oddinn meðan 29,2% telja einkabyggingar mikilvægastar, rúmlega fjórðungur.

Næsta könnun. Sérstök könnun á vegum framtíðarnefndar forsrn. á því hverjum augum ungt fólk um tvítugt lítur eigin framtíð og þar á meðal hvaða leiðir það vill fara í húsnæðismálum. Aldurshóparnir 17-23 ára í framhaldsskólum sem og ungra félagsmanna í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson. Niðurstöður: Samanlagt 43% framhaldsskólanema, 46% ungs verslunarfólks telur byggingu leiguíbúða eða búseturéttarbúða mikilvægasta framtíðarverkefni í húsnæðismálum. Og hana nú! Tæpur helmingur.

Þriðja könnun birtist nýlega í Fréttabréfi Húsnæðisstofnunar ríkisins. Þar er um að ræða könnun Húsnæðisstofnunar á þörf fyrir leiguíbúðir þar sem niðurstaðan er sú að það vanti 2500-3000 leiguíbúðir fram til ársins 1990, á næstu þremur árum. Þetta eru lokaniðurstöður úr könnun Húsnæðisstofnunar ríkisins á leiguíbúðaþörf og könnunin er gerð í samræmi við samkomulag aðila vinnumarkaðarins í febrúar s.l.

Þrjár kannanir. Niðurstöðurnar: Fjórðungur til helmingur þess fólks sem spurt er telur byggingu leiguíbúða brýnasta framtíðarverkefnið, bráðnauðsynlegt. Og á næstu þremur árum? Könnun gerð á vegum Húsnæðisstofnunar í samráði við aðila vinnumarkaðarins, 2500-3000 íbúðir bráðnauðsynlegar.

Og svo er eitthvað sem hv. 2. þm. Norðurl. e. þyrfti að gefa gaum. Þörfin er nefnilega mismunandi eftir sveitarfélögum. Sérstaklega er vakin athygli á því að í Norðurlandskjördæmunum, Austurlandi og Suðurlandi var þörfin nálægt meðaltali, 10-13 íbúðir á hverja 1000 íbúa. Ef litið er á höfuðborgarsvæðið virðist þörfin vera um 640 íbúðir á þessum þremur árum, en um 900 íbúðir, tæplega 1000, ef litið er á þarfir almannasamtaka sem láta uppi slíkar óskir. Sér í lagi er þetta rökstutt með því á landsbyggðinni, eins og hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson sagði réttilega hér áðan, að þar er vísað til þarfa atvinnulífsins og á nokkrum stöðum taka menn svo djúpt í árinni að leiguíbúðaskortur standi öllu atvinnulífi fyrir þrifum. Kannske hv. þm. Guðmundur Bjarnason ætti að heyra þetta líka. Leiguíbúðaskortur standi öllu atvinnulífi fyrir þrifum, einkum norðanlands. Þar er fullyrt að leiguíbúðaskortur komi í veg fyrir að ungt fólk setjist að í byggðarlaginu og veigri sér við að setjast þar að af ótta við versnandi atvinnuástand og vilji því ekki binda fé sitt til að byrja með í húsnæði.

Ég tek undir það sem hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson sagði hér áðan. Ég er ekki í minnsta vafa um það að ungt fólk hér á höfuðborgarsvæðinu væri reiðubúið til þess að leita eftir búsetu og til starfa úti á landi ef þess væri nokkur kostur, ef því væri gert kleift að koma sér þar fyrir án þess að ráðast til að byrja með í óviðráðanlegar fjárhagslegar skuldbindingar. Síðan hef ég þá reynslu að margt ungt fólk unir svo vel hag sínum við þá kosti sem landsbyggðarlíf býður upp á umfram höfuðborgarsvæði að það væri líklegt til þess að festa þar sína byggð og búsetu, ef því væri gert það kleift með skynsamlegri langtímaskipulagningu á húsnæðismálum.

Hver væri besta lausnin á því? Við höfum flutt hér, herra forseti, tillögur um kaupleiguíbúðir sem standa mjög fyrir brjóstinu á hv. 2. þm. Norðurl. e. Halldóri Blöndal. Hver er hugmyndin á bak við þessar tillögur? Út af fyrir sig er hún sáraeinföld. Á bak við tillögur um félagslegar lausnir á húsnæðismálum er sá þanki að við ætlum að skipuleggja fjármagn til þess að brúa ákveðið bil milli aldursskeiða. Unga fjölskyldan, sem er að byrja að hasla sér völl, oft með skuldir á bakinu, byrjar starfsferilinn venjulega með mun lægri laun heldur en síðar á æviskeiðinu. Á sama tíma samkvæmt lögmáli hins íslenska húsnæðisfáránleika er til þess ætlast að útgjaldaþörf þessarar fjölskyldu sé mest þegar tekjuöflun er minnst. Á sama tíma og tekjurnar eru lægstar, fjölskyldan er að byrja að koma undir sig fótunum, börnin eru að byrja að fæðast og oft og tíðum er það svo að annaðhvort foreldra, venjulega sem betur fer móðirin, verður að vera heima með börnum sínum til þess að ala þau upp og fjölskyldan hefur þess vegna þar af leiðandi aðeins eina fyrirvinnu. Tekjurnar lægstar, útgjaldaþörfin mest. Það er akkúrat á þessum tíma sem hið íslenska húsnæðislánakerfi segir: Fjölskyldan á strax að binda sér fjárhagsskuldbindingar sem eru henni raunverulega ofviða og breyta venjulegu manneskjulegu lífi í skuldafangelsi utan um hamingjusnautt líf sem endar í hjónaskilnaði, magasári, hjartaveseni og vitleysu (GJG: Og fylleríi.) Og fylleríi, já, rétt.

Kaupleiguíbúðir eru tillaga um félagslega lausn á þessu á mjög skynsamlegan máta og kannanirnar sem ég nefndi hér áðan staðfesta þörfina. En röksemdir hv. 2. þm. Norðurl. e., Blöndals, gegn hinu félagslega kerfi eru nefnilega mjög skondnar. Þær eru aðallega tvær.

Fyrri röksemd hv. þm. kemur fram í blaðagrein með vísan til Hávamála og þaðan, frá Hávamálum, er það rakið að eyjaskeggjar vilji vera sínir eigin herrar. Hvað segir könnunin um þetta? Hvað segja þessar þreföldu kannanir, sem ég var að þylja upp, um það?

Hin meginröksemdin er sú að með félagslegri fjármögnun í húsnæðismálum sé verið að gefa einhverjum eitthvað. Hann tönnlast á því að það sé verið að gefa fólki eitthvað og það sé verið að krefjast þess af skattgreiðendum að þeir gefi hinum fátæku og hinum snauðu. Ja, þvílík speki!

Hverjir eru það sem eru að gefa hverjum í þessu þjóðfélagi? Hverjir eru það sem greiða skattana sína og skyldurnar sínar skilvíslega í staðgreiðslukerfi og hafa gert það alla tíð? Eru það ekki launþegar þessa lands? Hverjir eru það sem hafa notið þeirra forréttinda að hafa sjálfdæmi, þegar kemur að skattframtölunum sínum og borga ýmist ekki neitt eða gerviupphæðir til sameiginlegrar þjónustu? Hverjir eru það sem byggja félagsheimilin utan um fjölskyldur sínar upp á þetta 200, 300, 400, 500, 600 fermetra og sækja sér niðurgreidd lán í almannasjóði, sem m.a. eru greiddir af skattpeningum láglaunafólksins? Hverjir eru það? Hverjir eru að gefa hverjum? Og hverjir eru það sem njóta síðan skattfrádráttar vegna gífurlegrar vaxtabyrði af skuldum sínum sem þeir, sem skjólstæðingar kerfisins, eiga auðvelt með að fá? Og hverjir eru það ef það eru ekki leigjendur í þessu þjóðfélagi sem fá enga hlutdeild í eignamynduninni? Sem eru að niðurgreiða fasteignir fyrir hverja? Ævinlega skal þessi hv. þm. geta snúið öllu á haus. Alltaf skal það vera öfugmæli sem út úr honum kemur.

Það eru staðreyndafalsanir að það sé ekki þörf fyrir leiguíbúðir á Íslandi. Það er búið að kanna það þrisvar fyrir hv. þm. og það er brýn þörf, mikil eftirspurn og ungt fólk bíður eftir því að því verði boðið upp á manneskjulegar lausnir í húsnæðismálum. Það er fjarstæða að það sé verið að gefa nokkrum manni nokkuð. Það er þvert á móti að í núverandi kerfi og í því húsnæðislánakerfi sem við höfum kynnst áður hafa átt sér stað eignatilfærslur frá hinum efnaminni, það hafa átt sér stað eignatilfærslur svo nemur hundruðum milljóna og milljörðum frá hinum eignaminni í þessu þjóðfélagi til hinna sem betur mega sín. Í raun og veru ætti lánstími til leiguhúsnæðis að vera lengri og á lægri vöxtum en önnur lán vegna þess að þar er engin eignamyndun á móti og þar er enginn vaxtafrádráttur sem kemur á móti.

Það er þess vegna sem tillögurnar um kaupleiguíbúðir henta mjög vel og sér í lagi nú þegar sú breyting er að verða á skattakerfinu að það er verið að taka upp staðgreiðslukerfi skatta sem þýðir fyrir ungu fjölskylduna í fyrsta lagi að í stað þess að hafa notið griða frá skattakerfinu í 12-18 mánuði fyrsta árið meðan hún var að koma sér fyrir, þá nýtur hún þess ekki lengur og verður þegar í stað að byrja að greiða þriðjung af tekjum sínum eða allt að því í skatta strax. Til viðbótar þeim greiðslum sem hún gjarnan verður að inna af hendi vegna námslána sem a.m.k. á við um marga. Hún er þess vegna verr sett núna en hún var áður og enn þá brýnna að greiða fyrir aðlögun þessa fólks að þjóðfélaginu með því að gera því kleift að eignast húsnæðisöryggi, að geta komið sér fyrir með þak yfir höfuðið yfir sína ungu fjölskyldu á þeim kjörum að það sé viðráðanlegt hlutfall launa sem menn greiða mánaðarlega. Síðar meir, þegar efnahagur þessarar fjölskyldu vex og henni hefur vaxið fiskur um hrygg, þá getur hún ef hún þess óskar annaðhvort keypt sína íbúð sem þetta kerfi býður upp á eða leitað út úr þessu kerfi og freistað gæfunnar á fasteignamarkaðnum og þá fyrst og fremst vegna þess að hún gæti þá sjálf af eigin aflafé að verulegu leyti risið undir greiðslubyrði.

Höfuðkostir kaupleiguíbúðanna eru þess vegna þeir að sameina kosti eignaríbúða og leiguíbúða, að gefa fólki frjálsan valkost milli eignar og leigu. Þessar leiguíbúðir eiga að vera á sérstökum kjörum fyrir láglaunafólk og aðra sem af félagslegum ástæðum þurfa aðstoðar við í húsnæðisöflun. Þess vegna leggjum við til að þær verði fjármagnaðar eins og verkamannabústaðirnir með 85% láni, en 15% kæmi í hlut framkvæmdaaðila - sem þarf ekki endilega að vera sveitarfélag. Það er engin nauðsyn á því. Ef fram kemur, þegar þetta kerfi hefur fengið sína reynslu, að samtök fólks, hvort heldur eru lífeyrissjóðir láglaunafólksins, sem verið er að gera afturreka, eða aðrir sjóðir stéttarfélaga, nú eða byggingarsamvinnufélög eða hvers kyns önnur félagasamtök vilja ganga inn í það að ábyrgjast þennan hluta, þá er þeim það að sjálfsögðu frjálst og á að greiða fyrir því.

Leiguíbúðir fyrir aðra en láglaunafólk yrðu þá fjármagnaðar að 80% hluta úr Byggingarsjóði ríkisins, 80% vegna þess að við viljum að það verði hið almenna viðmiðunarhlutfall, ekki vegna þess að við ætlum að hafa þarna einhvern mun, milli 70 og 80% yrðu fjármögnuð úr Byggingarsjóði ríkisins en 20% af framkvæmdaaðila sem væri sveitarfélag eða félagasamtök.

Það skal fúslega viðurkennt að fyrirmyndin er ekkert frumleg. Fyrirmyndin er sótt til útlanda og hún hefur gefið þar góða raun. Ég bendi mönnum á að kynna sér reynsluna af þessu kerfi t.d. í Hollandi. Forsvarsmenn þessa kerfis þar í landi segja mér að sennilega hafi ekki eitt einasta atriði í hollensku þjóðfélagi, sem er „sívilíserað“ og mannúðlegt þjóðfélag, átt meiri þátt í því að skapa öryggi, festu og samstöðu í því þjóðfélagi heldur en einmitt þessi gamalgróna reynsla af þessari leið til að tryggja láglaunafólki þar í landi húsnæðisöryggi með viðráðanlegum kjörum. (Gripið fram í.) Rétt, mikið rétt. Og var bylting í íslensku þjóðlífi og rétt að rifja það upp í tilefni af ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e., Halldórs Blöndals, sem nú þykist bera kápu arftaka forfeðranna, höfuðs Engeyjarættar, Bjarna Benediktssonar, fyrrv. forsrh. og Ólafs Thors.

Sú var tíð þegar Alþfl. barðist fyrir og kom á verkamannabústaðakerfinu, sem var þessi bylting að leiða fátæka fólkið ofan af hanabjálkum og upp úr saggakjöllurum þessarar borgar m.a., þar sem reyndar 70% íbúanna þá voru í óhæfu leiguhúsnæði, að viðbrögð íhaldsins þá voru vægast sagt ekkert slorleg. Þeir skáru upp herör gegn slíku. Kölluðu þetta algjöra byltingu. Sögðu að það væri verið að tæma sveitirnar af öllu vinnuafli og hömruðu á því að það væri verið að gefa, það væri ætlast til þess að það væri verið að gefa niðursetningum og fátæklingum það sem þeir ekki verðskulduðu. Svo, mörgum árum seinna, þegar öllum er ljóst að þetta er sjálfsögð leið, þá vill hv. þm. láta eins og þetta sé eitthvert sérstakt keppikefli Sjálfstfl. að verja verkamannabústaðakerfið. Ja, heyr á endemi! En það er nefnilega ekki allt sem sýnist með það ágæta kerfi lengur, því miður, sem er m.a. ástæðan fyrir því að við þurfum nú að grípa til aðgerða til að finna nýjar leiðir fyrir hið félagslega kerfi.

Nú vil ég, með leyfi herra forseta, taka aðeins eitt dæmi um það hvernig komið er fyrir verkamannabústaðakerfinu, og það er bara eitt dæmi af mörgum. Hér er úrklippa úr blaði, föstudagurinn 6. febrúar, DV. Fyrirsögn: „Keypti í verkamannabústað árið 1982. Áhvílandi lán orðin hærri en brunabótamat.“ Og síðan segir hér, með leyfi forseta:

„Maður nokkur, sem keypti í verkamannabústað árið 1982, stendur nú í þeim sporum að áhvílandi lán á íbúðinni eru orðin hærri en sem nemur brunabótamati íbúðarinnar og munar þar rúmum 61 þús. kr. Lánin sem hér um ræðir eru húsnæðismálastofnunarlán og tvö lífeyrissjóðslán. Samtals eru þau nú 2 millj. 548 þús. kr. en brunabótamatið, sem talið er nálægt söluverðmæti íbúðarinnar, er nú 2 millj. 480 þús. kr. Á þeim tíma sem liðinn er frá því að íbúðin var keypt hefur viðkomandi borgað eðlilegar afborganir af þessum lánum og nema þær rúmum 200 þús. kr. þannig að segja má að hann hafi á þessu tímabili tapað tæplega 300 þús. kr. á því að vera íbúðareigandi.“ - Ég endurtek, tapað 300 þús. kr. á því að vera íbúðareigandi. En það er fleira athyglisvert.

Á sínum tíma kostaði íbúðin 546 þús. og bar honum að greiða 10% af því verði fyrir afhendingu, en afgangurinn var húsnæðismálastjórnarlánið. Þegar íbúðin var keypt vann maðurinn sem smyrjari á einu SÍS-skipanna - SÍS-skipanna, hæstv. félmrh. - og hafði í grunnlaun 7819 kr. á mánuði þannig að hann hefði þurft að vinna í 5,9 ár til þess að borga íbúðina upp. Í dag er þessi taxti smyrjara hjá SÍS 28 759 kr. og til að borga íbúðina nú þarf maðurinn að vinna í 7,4 ár, en þarna munar 25%. Bara frá 1982 til 1. febr. 1987.

Þetta er að vísu ekkert einkennandi fyrir verkamannabústaðina. Þetta er lýsing á því sem er að gerast almennt séð, en það er margt fleira sem veldur því að verkamannabústaðakerfið nýtist ekki. Í fyrsta lagi er allt of lítið byggt af verkámannabústöðum. Í annan stað er reynslan víða sú að þeir eru allt of dýrir og kostir kaupleigukerfisins eru að öðru leyti margvíslegir umfram þetta. Þess vegna má auðvitað vel fara svo að kaupleigukerfið leysi hitt af hólmi um það er lýkur, um það skal ég ekkert fullyrða, en mér þykir vænt um að heyra að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson og margir aðrir forustumenn í verkalýðshreyfingunni og launþegahreyfingunni eru byrjaðir að skilja að þetta er mjög þýðingarmikið mál sem getur átt framtíð fyrir sér.

Ég er ekkert hissa á því þótt menn hafi það eftir sveitarstjórnarmönnum að þeir séu ekkert ginnkeyptir fyrir því að hefjast handa nú þegar. Ég á ekkert von á því að það gerist með þeim hætti. Auðvitað kostar þetta fjármagn að svo miklu leyti sem við erum að tala um 15% hlut sveitarfélaga af því það eru leiguíbúðir. Auðvitað kostar þetta fjármagn. En er þetta fjármagn mikið? Er þetta óviðráðanlegt? Auðvitað gera sveitarfélögin það ekki á sama tíma og tekjustofnar þeirra, t.d. eini verðtryggði tekjustofninn af Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hefur verið skertur um a.m.k. 700 millj. á tímabili núv. hæstv. ráðh., a.m.k., sennilega miklu meira. Og samkvæmt upplýsingum frá sveitarstjórnarmönnum nú bara um 400 millj. kr. á þessu ári. Það gerist ekki með þeim hætti. Auðvitað þýðir þetta það að við ætlumst til þess að lífeyrissjóðirnir, meðan það kerfi er, lífeyrissjóðir láglaunafólksins sérstaklega, geri um það nýja samninga að þeir verji hluta af því fé sem þeir nú ráðstafa til Byggingarsjóðs ríkisins til þessa forgangsverkefnis fremur en vera að lána 500 millj. kr. til villueigendanna sem eru að losa stóru gömlu íbúðirnar og fá þarna milligjöf í stórum stíl á niðurgreiddu verði.

Í annan stað leggjum við til að ríkisvaldið geri sveitarfélögunum þetta kleift, að byrja þetta átak með byggingu kaupleiguíbúðanna, með rúmlega 250 millj. kr. framlagi á ári hverju, þ.e. til láns fyrstu tvö árin til þess að komast af stað. Ef þær röksemdir stæðust að menn vildu endilega vera í eigin húsnæði fremur en leigu, þá mundi náttúrlega endurgreiðslan koma mjög fljótlega til baka því að þeir sem gera kaupsamning í þessu kerfi endurgreiða að fullu ekki aðeins 80% lánið heldur líka 20% hlutann, að fullu með verðbótum og vöxtum, þannig að ef rök hv. þm. Halldórs Blöndals stæðust um það að eyjarskeggjar samkvæmt Hávamálum vilja ævinlega eiga steinsteypuna sem umlykur sjálfa þá, þá munu þeir náttúrlega endurgreiða. Að öðru leyti er á það bent að sveitarfélög hafa hingað til að sjálfsögðu ekkert hikað við það að leggja fram fé til þess að reisa leiguíbúðir. Öll slík form eru okkur þekkt. Spurningin er bara ósköp einfaldlega sú hvort kaupleiguíbúðakerfið hafi ekki kosti umfram þau gömlu form, bæði vegna sveigjanleika kerfisins, vegna þess að sá sem byrjar sem leigjandi getur orðið kaupandi og nýst það, og svo vegna þess að þarna er um að ræða lausn að því er varðar láglaunafólk, sem byrjar á að líta á málið frá allt öðru sjónarhorni, nefnilega: Hvert er það hlutfall launa sem dugar fyrir húsnæðiskostnaði? Skipuleggjum þá fjármögnun í samræmi við það. - Fremur en að ætla að byrja á að spyrja: Hversu dýrt sem það er og hversu óhagkvæmt sem það er, þá skuluð þið taka á ykkur byrðar sem þið ráðið ekki við.

Herra forseti. Ég hef að vísu í alllöngu máli reynt að koma á framfæri hvað það er við nýja kerfið sem verða að teljast ágallar og er tímabært að reyna að breyta.

Það er í fyrsta lagi þetta: Það er brýnt, ef þetta kerfi á ekki að valda verulegum vonbrigðum að óþörfu, að auka ríkisframlagið til húsnæðismála, bæði vegna vaxtamunarins og vegna þess að raunsæjar tölur um útlánaþörf og raunsæjar tölur um eftirspurn kalla á aukið fjármagn.

Í annan stað: Það er brýnt að nú þegar verði gerðar ráðstafanir til þess að skilyrða lán til kaupa á eldra húsnæði um það að útborgunarhlutfall á ári hverju verði lækkað til þess að minnka heildarlánsfjárþörfina og auka hlutdeild fasteignaeigenda í því fjármagni sem er í umferð á fasteignamarkaðinum.

Í þriðja lagi: Það er mjög brýnt og þýðingarmikið, og sérstaklega nú, að auka fjárframlög til hins félagslega kerfis, binda enda á deilur um kaupleiguíbúðir, verkamannabústaði, leiguíbúðir, búseturéttaríbúðir, ná samstöðu um það form sem sennilega mun þjóna hagsmunum láglaunafólksins í framtíðinni best og verja til þess verulegum fjármunum á næstu árum. Samkvæmt þeim könnunum sem fram hafa farið er síst of í lagt sú áætlun sem við gerum ráð fyrir um 6000 íbúðir næstu tíu árin.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.